Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Blaðsíða 10
J 0 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004
Fréttir DV
Fimm ákærðir
í Madrid
Þrír Marokkómenn og
tveir Indverjar voru í gær
ákærðir íýrir hryðjuverkin í
Madrid sem urðu 202 að
bana í síðustu viku. Fimm-
menningarnir neita sök og
bera því við að hafa verið
sofandi þegar sprengju-
árásirnar voru gerðar. Þeir
neita jafnframt aðild að
hryðjuverkasamtökum al-
Kaída. Marokkómennirnir
eru ákærðir fyrir morð á
190 manns og Indverjarnir
eru ákærðir fyrir að vera í
vitorði með þeim fyrr-
nefndu. Forsprakki flmm-
menninganna, Jamal
Zougam, lét tárin renna
niður kinnarnar þegar hon-
um var lesin ákæran. Talið
er víst að hann hafi starfað
með hryðjuverkasamtök-
um.
>-----------------------------
Fæddi tvö pör
aftvíburum
Sá einstaki atburður
gerðist á sjúkrahúsi í Hou-
ston að kona fæddi tvö sett
af eineggja tvíburum. Tví-
burarnir eru drengir og
voru teknir með keisara-
skurði en þeir fæddust tíu
vikum fyrir tímann. Þeir
dvelja nú á vökudeild en
læknar eru bjartsýnir á að
þeir verði útskrifaðir innan
tíðar. Foreldrarnir Jeffrey
og Sheryl McGowen eru í
skýjunum en þau höfðu
árum saman reynt að eign-
ast barn. Hamingja þeirra
er fjórföld og afar sérstök
tilfinning að eiga tvenna
tvíbura á sama aldri. Lík-
urnar á að kona gangi með
tvö pör af eineggja tvíbur-
um eru einn á móti 11
milljónum.
Helgi Ólafsson,
stórmeistari í skák
Helgi er skarpgreindur og
ósérhlífinn dugnaðarforkur
sem hefur unnið gott starf
að framgangi skdklistarinn-
ar. Besta sönnun þess er að
Hetga tókst að fá bæði
Kasparov og Karpov tii að
koma og tefla saman á
skákmóti norður í Atlants-
hafi. Helgi kann vel
skemmta sér þegar það á
við.
Hjalti Jósefsson, framkvæmdastjóri kjötvinnslufyrirtækisins Ferskra afurða ehf. á
Hvammstanga, er sagður hafa stolið 115 milljónum í kjötbirgðum. Nú svarar hann
fullum hálsi, fagnar lögreglurannsókn og leggur fram mótkæru.
Hjalti ætlar að
kæra KB banka
Hjalti Jósefsson, framkvæmdastjóri hins
gjaldþrota kjötvinnslufyrirtækis Ferskra afurða
ehf. á Hvammstanga, segir að grunur um stuld á
vörubirgðum upp á 115 milljónir króna úr kjöt-
geymslu fyrirtækisins í Búðardal byggist á „bulli
og vitleysu" upp úr skýrslu endurskoðunarfyrir-
tækisins KPMG.
Hjalti 'segir að hann og samherjar hans séu nú
að undirbúa kæru á hendur KB banka, meðal
annars vegna þess að útibústjóri bankans í Búð-
ardal hafl heimildarlaust farið inn á reikninga
íyrirtækisins og millifært peninga.
Greitt undir borðið?
„Þessi skýrsla KPMG, þar sem fjallað er um að
vörubirgðir hafi horfið, er með eindæmum og
hreint út sagt furðulegt að löggiltir endurskoð-
endur láti annað eins fara frá sér. Þeir eru að gefa
sér að við höfum fengið greitt undir borðið frá
kjötvinnslum og verslunum og áætla að við höf-
um fengið 200 krónum meira fyrir kílóið en við
gefum upp. Þessar alvarlegu ásakanir í garð okk-
ar og kaupendanna eru bull.“
Á skiptafundi í þrotabúi Ferskra afurða ehf. nú
í vikunni var samþykkt að kröfu KB banka að
meintur stuldur á vörubirgðum yrði kærður til
opinberrar lögreglurannsóknar. Jafnframt telur
KB banki að 60 milljónir króna hafi verið greidd-
ar framhjá afurðarlánakerfi bankans. Kröfur í
þrotabúið hljóða upp á 326 milljónir króna, en
þar af eru kröfur frá bændum 60 milljónir.
Skiptastjóri er Sveinn Andri Sveinsson hæstarétt-
arlögmaður.
Fagnar lögreglurannsókn
Hjalti segist ekki skilja hvernig hann eða hans
samstarfsmenn eigi að hafa getað stolið vöru-
birgðum úr geymslunni í Búðardal að næturlagi.
„Þessi aðstaða hefur verið leigð fyrirtækinu Dala-
lamb ehf. Starfsmenn þess hljóta þá að hafa skil-
ið geymsluna eftir opna, því ekki höfum við lykla
og engin ummerki hafa sést um innbrot sem ég
veit um. Nei, þetta tal um stuld er þvæla og
starfsmenn Dalalambs kannast ekki við að hafa
sagt það sem eftir þeim er haft.“
Hjalti segist ekki kvíða lögreglurannsókn.
Hjalti Jósefsson, fráfarandi forstjóri Ferskra afurða Ég fagna þess vegna rannsókn tögregiunnar. Ekki síst með það ihuga
að mér finnst skiptastjóri þrotabúsins fyrst og fremst gæta hagsmuna KB banka. “
„Þvert á móti finnst mér
málið best komið hjá
lögreglunni, úrþví sem
komiðer."
„Þvert á móti finnst mér málið best komið hjá
lögreglunni, úr því sem komið er. Ég fagna þess
vegna rannsókn lögreglunnar. Ekki síst með í
huga að mér finnst skiptastjóri þrotabúsins fyrst
og fremst gæta hagsmuna KB banka,“ segir
Hjalti.
fridrik@dv.is
Velunnari Sigurgeirs Kristinssonar gagnrýnir félagsmálayfirvöld
Félagsmálastjóri sakaður um trúnaðarbrest
„Hann lak upplýsing-
um og sveik trúnað við
mig,“ segir Sigurbjörg
Eyjólfsdóttir, listakona í
Ölfusi, um samskipti sín
við félagsmálafulltrúa
staðarins. Sigurbjörg er
ein þeirra sem látið hefur
sér annt um Sigurgeir
Kristinsson í Þorlákshöfn.
Hún sagði félagsmála-
stjóranum, Kristni A.
Kristinssyni, frá áhyggj-
um sínum á sfðasta ári en
fékk önnur viðbrögð en
hún bjóst við í fyrstu.
„Mér hreinlega ofbauð hvernig
farið var með Sigurgeir og því fór ég
til Kristins og sagði honum sólarsög-
una,“ segir Sigurbjörg. „Ég sagði
honum að Sigurgeir liði fyrir einelti
vinnufélaga sinna; þeir væru sífellt
að hrekkja hann og aðbúnaður hans
væri slærnur," segir hún.
„En aðallega blöskraði
mér að honum var bannað
að hitta vini sína og þetta
bað ég félagsmálastjórann
að athuga.“
Sigurbjörg segir að sér
hafi komið á óvart hve fá-
lega var tekið í kvartanir
hennar. Henni hafi svo
brugðið þegar Heimir,
vinnuveitandi Sigurgeirs,
hringdi í hana um kvöldið
- ómyrkur í máli.
„Flann spurði hvern
andskotann ég væri að
skipta mér af málum sem mér kæmi
ekki við,“ segir Sigurbjörg sem grun-
aði strax hvernig Heimir vissi af
heimsókn hennar til félagsmála-
stjórans.
„Því miður var þetta ekki í fyrsta
skipti sem félagsmálastjórinn lak
upplýsingum til Heimis og því
hringdi ég í félagsmálaráðuneytið og
spurði hvort þessi vinnubrögð væru
ásættanleg," segir Sigurbjörg. „Þau
svör sem ég fékk var að ef rétt reynd-
ist þá væri um alvarlegan trúnaðar-
brest að ræða."
Sigurbjörg, sem gagnrýndi að-
búnað Sigurgeirs þegar DV leitaði til
hennar, segir að umræðan hafi haft
mikil áhrif á hana. Hún var sú fyrsta
sem kom fram undir nafni og tjáði
sig um bágbornar aðstæður hans.
„Þetta mál þurfti að koma fram í
dagsljósið," segir Sigurbjörg. „Sigur-
geir hefur verið lagður í einelti og
býr við aðstæður sem eru ekki
nokkrum manni sæmandi. Ég skora
á fólk að bæta úr hans málum svo
endir fáist í þessa harmsögu."
Ekki náðist í Kristin Kristinsson
félagsmálastjóra.
simon@dv.is
Sigurbjörg Eyjólfsdótt-
ir listakona Segirfarir
sinar ekki sléttar afsam-
skiptum við félagsmála-
fuiltrúa.