Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004
Fókus JXV
„Og hvað sagðirðu við hana?"
„Að ég hefði hitt Önnu Lindh í fyrradag og nú
væri hún dáin og að ég ætti afmæli og svo fór
ég að gráta."
„Og hvað gerði hjúkrunarkonan þá?"
„Hún fór líka að gráta."
Lindh. Hann hefur átt við geðræn
vandamál að stríða. Þegar hann
framdi verknaðinn var hann undir
áhrifum lyfsins Flunitrazepam. Það
er lyf sem glæpamenn nota til að
herða sig við ofbeldisverk og forðast
tilfinningaleg viðbrögð. Læknar hafa
nú komist að þeirri niðurstöðu að
hann sé ekki geðveikur og Mijailovic
verður því væntanlega dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi þann 23. mars.
Minningar og myndir frá dögum í
september sækja nú á mig sem og
aðra íbúa Svíþjóðar. Myndir af utan-
ríkisráðherranum Önnu Lindh sem
var myrt á hrottafenginn hátt þegar
hún var í búð með vinkonu sinni að
skoða föt.
Nú sem þá fylgjast börn með
fréttum. Fyrirsagnir blaðanna æpa á
þau af veggjum og auglýsingaspjöld-
um og mynd morðingjans blasir við
þeim hvert sem litið er.
Tvö af þessum börnum í Stokk-
hólmi eru dætur mínar.
Sú eldri, Hanna Mia Matsdóttir, er
fædd í Reykjavík 11. september árið
1991 en hefur alist upp í Stokkhólmi.
Á tíu ára afmæli hennar var flug-
vél flogið á tvíburaturnana í New
Anna Lindh veifaði til
hennar ofan afsvið-
inu. Hanna Mia vink-
aði á móti.
York. Hún gleymir ekki þeim afmæl-
isdegi.
Hún varð tólf ára daginn sem
Anna Lindh dó og hún mun seint
gleyma því heldur.
Fyrir sautján árum var forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, Olof Palme,
myrtur úti á götu i miðborg Stokk-
hólms.
Hann var á leið heim úr bíó
ásamt konu sinni Lisbet. Enn hefur
enginn verið dæmdur fyrir drápið.
Morðið á Olof Palme er eins og
opið sár í sænskri þjóðarvitund. Sjálf
var ég að vinna á Háskólabókasafn-
inu í Stokkhólmi daginn eftir morð-
ið. Allir komu fram til og tala við
okkur í afgreiðslunni. Enginn gat
hugsað sér að sitja einn inni í sal og
lesa undir próf.
Við kveiktum á kerti fyrir framan
mynd af Palme. Þegar við lokuðum
safninu fórum við nokkur saman
niður í bæ. Alls staðar var fólk á ferli
og hlýja á milli manna í kuldanum.
Það var eins og fólk hefði sterka þörf
fyrir að vera nálægt hvort öðru.
Borgin og fólkið breyttust.
Þegar utanríkisráðherrann Anna
Lindh var myrt þann 10. september
árið 2003 í miðborg Stokkhólms, að-
eins 500 metra frá staðnum þar sem
Palme var skotinn, var eins og sama
þögn legðist aftur yfir bæinn.
Anna Lindh var ekki aðeins fram-
úrskarandi utanríkisráðherra og góð
manneskja. Hún var ótal Svíum fyr-
irmynd og von margra var sú að hún
yrði næsti forsætisráðherra Svíþjóð-
ar. Greind hennar og sjarmi lét eng-
an ósnortinn.
í hvert sinn sem ég sá hana eina í
karlahópi á alþjóðlegum fundum
fann ég fýrir stolti yfir því að hún var
fulltrúi landsins sem ég bý í.
í september 2003 var móðir mín í
heimsókn frá íslandi. Þá var kosn-
ingabaráttan um evruna í algleym-
ingi. Út um alla borg voru stór plaköt
og áberandi myndir af Önnu Lindh á
hverri stoppistöð. Hún barðist ákaft
fyrir því að Svíar tækju upp evruna.
Hanna Mia og Anna Lindh Þessi mynd
birtistí sænska blaðinu Expressen eftir
blaðamannafund Önnu Lindh, Görans
Persson og Grikkjans Papandreou. Uppi i
tröppunum stendur Hanna Mia með "Já"
blöðruna sína. Anna Lindh hafði gefið sér
góðan tíma til að spjalla við ísiensku
stúlkuna.
Þann 9. september skruppum við
mæðgur að skoða föt í NK. Þegar við
komum heim var Hanna Mia - ellefu
ára, alveg að verða tólf - ekki komin
heim úr skólanum. Skömmu síðar
birtist hún og var mikið niðri fýrir. Á
leiðinni heim hafði hún komið við á
Medborgarplatsen þar sem hún var
að ná sér í blöðrur og merki vegna
evrukosninganna. Og Hanna Mia var
með töskuna fulla af JÁ merkjum og
blöðru sem á stóð „JA till EMU“. Það
s'fem hún var mest uppveðruð yfir var
að hún hafði hitt Önnu Lindh utan-
ríkisráðherra og talað við hana. Og
hún sýndi okkur miða með eigin-
handaráritun hennar.
Á öðrum miða var reyndar einnig
eiginhandaráritun forsætisráðherr-
ans Görans Persson en það fanst
henni ekki eins skemmtilegt.
Anna Lindh hafði nefnilega geflð
sér tíma fyrir hana og verið svo góð
og spurt hvað hún ætlaði að verða.
Hún sagði henni einnig að hún ætti
strák á hennar aldri.
Hanna Mia gat þá ekki stillt sig um
að segja að móður hennar þætti
Lindh vera fínn utanrfldsráðherra og
þá bað hún að heilsa mér. Þegar
Þann 11. september árið 2003 var
Sabína Eriksson fimm ára að leika sér
úti á lóð dagheimilis síns í Arvika í
Vármland í Svíþjóð. Hún vissi ekki að
þetta væri síðasti dagurinn í lífi
hennar. í nágrenninu sagði starfsfólk
á opinni geðdeild sjúklingum á
morgunfundi frá því að utanríkisráð-
herrann Anna Lindh væri látin eftir
morðárás daginn áður. Þá stóð einn
sjúldinganna upp og sagðist ætla að
ná sér í kaffi ffammi. En hann gerði
það ekki. í staðinn gekk hann út í
búð, keypti sér hníf og á göngu sinni
sá hann Sabínu vera að leika sér við
jafhaldra sína inni á lóð barnaheimil-
isins. Hann stakk hana tíu sinnum og
fór síðan aftur á geðdeildina. Þar sett-
ist hann rólegur niður og starfsfólkið
tók ekki eftir neinu.
Þegar lögreglan kom sagðist hann
hafa fengið hugmyndina vegna
morðsins á Önnu Lindh.
Árið 2003 jókst umræða um geð-
heilbrigðismál í Svíþjóð vegna tíðra
ofbeldisverka geðveiks fólks. Fjöldi
þessa fólks getur ekki lifað eitt og
óstutt úti í samfélaginu og þarf á
læknishjálp að halda. Þann 19. maí
2003 réðist 32 ára geðveikur maður
að fólki við járnbrautarstöð. Myrti 72
ára mann og særði sjö.
Þann 31. maí 2003 ók fimmtugur
maður á bíl inn í göngugötu í Gamla
Stan. Hann drap tvo og særði 30
manns.
Vegna sparnaðar var stórum hluta
geðdeilda í Svíþjóð lokað fýrir
nokkrum árum og gefið í skyn að nú
fengi fólk meira frelsi en gæti auðvit-
að mætt í samtöl þegar þess þyrfti.
Það var einmitt svona samtal sem
morðingi Sabínu var í. Einn af þeim
sem átti stóran þátt í sparnaðarráð-
stöfunum í heilbrigðiskerfinu var
sósíaldemókratinn Bo Holmberg,
eiginmaður og nú ekkill utanríkisráð-
herrans Önnu Lindh.
í Arvika safnaðist fjöldi blóm-
vanda og bangsa við dagheimili
Sabínu. Morðið vakti óhug og
martraðir hjá mörgum börnum.
í kjölfar þessara atburða urðu
miklar umræður í Svíþjóð. Flestir eru
sammála um það að þótt ofbeldi hafi
aukist og sé allstaðar í kringum okkur
þá sé það ekki eðlilegt ástand. Börn
þurfa á hjálp fullorðinna að halda til
að tala um óttann og aðrar tilfinning-
ar sem hann vekur.
Nú standa yfir réttarliöld gegn
Mijailo Mijailovic, morðingja Önnu
Olof Palme Morðið á honum er enn eins
og opið sár i sænskri þjóðarvitund. Það
hefur enn ekki verið upplýst.
íslenska stelpan
Réttarhöld standa nú yfir íStokkhólmi yfir morðingja Önnu Lindh utanríkisráðherra. Fyrir Helgu Brekkan hafa réttar-
höldin sérstaka merkingu þar sem ellefu ára dóttir hennar hitti Önnu Lindh daginn áður en morðið átti sér stað og Helga
þurfti að reyna að skýra út fyrir dóttur sinni hvernig annað eins gæti gerst.