Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004
Fókus DV
j_8 bQfða mifalvanctu mátta
oagsíns um letó og ég vaknau
Vegferðír Sveins
og HJorvars
2004
Sveinn og Hjörvar ákveða að
yfirgefa félaga sína hjá Góðu
fólki McCann eftir að ekkitekst
samkomulag um eignaraðild
þeirra að fyrirtækinu. Heimild-
ir DV herma að þeir hafi jafn-
vel viljað taka fyrirtækið yfir.
Uppsögnin barst Gunnlaugi
Þráinssyni framkvæmdastjóra
með símskeyti og kom að sögn
algerlega flatt upp á hann, en
hann varþá að veita viðtöku 7
lúðrum á auglýsingahátíð
ÍMARK.
1998
Sagan endurtekur sig. Hjörvar
og Sveinn segja skilið við aug-
lýsingastofuna Fíton og ganga
í raðir Góðs fólks. Skilnaðurinn
var ekki fallegur en þeir höfðu
höfðu þá sett fram afarkosti.
Þeir vildu eignaraðild að fyrir-
tækinu eða þeir gengju út og
tækju með sér viðskiptavini, til
dæmis B&L.
1993
Leiðir Sveins og Hjörvars lágu
saman á Atómstöðinni sem
Hjörvar hafði stofnað ásamt
Birni Jónssoni sem nú er á Fít-
on. Atómstöðin sameinaðist
Grafít og úr varð Fíton
ekki, þegar Síminn hefur leitað eftir
útboðum og fram hefur farið forval,
eða „fegurðarsamkeppni", hafa
Nonni og Manni valist til þess að
annast verkefnið þrátt fyrir að niður-
staðan í fegurðarsamkeppninni hafl
ekki gefið til kynna að sú stofa sé
heppilegust til verksins. Vilja menn
rekja það til þess að Ármann Kr.
Ólafsson, annar stofnenda Nonna og
Manna, er fyrrverandi aðstoðarmað-
ur Halldórs Blöndal í samgönguráðu-
neytinu. Einn heimUdarmanna
blaðsins tók svo djúpt í árinni, eftir
slíkan gjörning, að þetta hefði leitt
honum fýrir sjónir að í auglýsinga-
geiranum skipti engú máli hversu vel
unnið væri eða hversu heilir menn
væm í því sem þeir gerðu, Eitthvað
allt annað ráði ákvarðanatökunni.
jakob@dv.is
Tveir af lykilmönnum Góðs fólks
McCann gengu nýverið út og hafa
tekið til starfa hjá Nonna og
Manna - einum helsta samkeppn-
isaðilanum. Samningaviðræður
um sameiningu þessara auglýs-
ingastofa voru á lokastigi þegar
þeim var slitið snögglega og í kjöl-
farið hættu mennirnir. Talið er að
þessar sviptingar séu liður í dansi í
kringum gullkálfinn - Símann.
Fagleg vinnubrögð Hjörvar
þykir landsliðsmaður I auglýs-
ingateiknun og happafengur
fyrir hvaða stofu sem er. Hér eru
þrjú dæmi um auglýsingar
sem hann hefur gert fyrir
Gott fólk. Allar þessar aug-
lýsingar hafa vakið mikla
athygli og auglýsingin
séra Pálma sem módel var
tilnefnd til lúðurs á slðustu
Ímark-hátíð.
Skömmu áður en þeir Sveinn L.
Jóhannsson, Hjörvar Harðarson og
Dagur Hilmarsson gengu út af aug-
lýsingastofunni Gott fólk McCann
vom viðræður um sameiningu við
auglýsingastofuna Nonna og Manna
á lokastigi. Hafði stafsfólki Nonna og
Man'na verið tilkynnt um sameining-
una. Mikili hiti er í auglýsingaheim-
inum eftir þessar síðustu hræringar
og blómstra samsæriskenningar sem
aldrei íýrr og er þá mikið sagt. Veg-
ferð Sveins og Hjörvars er ef til vill
dæmigerð um það hvernig kaupin
gerast á eyrinni þegar auglýsinginga-
heimurinn er annars vegar.
Síminn feitur göltur að flá
Sameiningarsamræðum var
skyndilega slitið af hálfu Nonna og
Manna og strax í kjölfarið hættu þeir
þrír. Nýjustu tíðindi herma að Sveinn
og Hjörvar séu gengnir til liðs við
Nonna og Manna. Fyrir utan að vera
reynslumiklir á sviði auglýsingagerð-
ar, en Hjörvar þykir með flinkari
teiknurum „í landsliðsflokki" og
Sveinn mikilvirkur almannatengill,
þá vom það þessir tveir sem vom
helstu tengiliðir við stærsta viðstipta-
vin Góðs fólks McCann - Símann -
sem er einn feitasti gölturinn að flá í
auglýsingageiranum. Hjörvar teikn-
aði til að mynda nýja lógó Símans en
talað er um að 400 milljónir hafi farið
í markaðs- og breytta ímynd fyrir-
tækisins. Er þetta verkefni eitt hið
stærsta sem hefur verið lagt í hér-
lendis og því eftir nokkru að slægjast.
Heimildarmenn DV innan auglýs-
ingageirans segja að inn í þessa tölu
sé reiknaður innri kostnaður fýrir-
tækisins. Kostnaður við það eitt að
smíða skilti á búðir Símans sé um-
talsverður. Hins vegar setja menn
spurningarmerki við kostnað í
tengslum við hina svissnesku ráð-
gjafaþjónustu sem Síminn leitaði til.
Svisslendingarnir komust að þeirri
niðurstöðu, eftir langa umhugsun að
Síminn væri gott nafn. Kostnaðurinn
bara við þann lið hlýtur augljóslega
að teljast mikill.
Dramatískur auglýsinga-
heimur
Bæði Gott fólk McCann og Nonni
og Manni hafa Símann á viðskipta-
mannaskrá sinni. Hjörvar segir ofmat á
Brynjólfur Bjarnason forstjóri Símans
Nýtt merki fyrirtækisins var kynnt til sögunn
ar fyrir nokkru en það var einmitt Hjörvar
Harðarson sem hannaði merkið. Talið er að
hræringar i augiýsingaheimi snúist að
nokkru um gullkálfinn Simann.
sögðu störfum sínum lausum. Segir
sagan meira að segja að á meðan
„samstarfsmenn" þeirra voru að
veita verðlaununum viðtöku hafi þeir
verið að hreinsa til á skrifstofum sín-
um. Viðskilnaðurinn var fremur hrá-
slagalegur og Guðlaugur fram-
kvæmdastjóri Góðs fólks McCann
sagði þetta hafa komið sér í opna
skjöldu. Þó gat uppsögn þeirra vart
verið algerlega eins og þruma úr
heiðskíru lofti því Sveinn og Hjörvar
höfðu þá um nokkurt skeið verið í
viðræðum við Gunnlaug um að þeir
myndu eignast ráðandi hlut í fyrir-
tækinu. Talað er um að þeir hafi jafn-
vel viljað taka Gott fólk McCann yfir.
Gunnlaugur vildi ekki tjá sig um
þetta tiltekna mál við DV en sagði þó
að búast mætti við að Sveinn og
Hjörvar myndu reyna að höggva í
viðskiptamannahóp stofunnar, það
liggi í hlutarins eðli, og þar væri Sím-
inn örugglega ofarlega á blaði.
Annað það sem hefði átt að vera
til þess að brotthvarf þeirra Sveins og
Hjörvars kæmi ekki flatt uppá Gunn-
laug er sú staðreynd að fyrir nokkrum
árum þegar þeir gengu til liðs við
Gott fólk, þá hættu þeir mjög snögg-
lega á auglýsingastofunni Fíton.
Segja aðilar innan auglýsingageirans
að þetta sé nánast sem sagan sé að
endurtaka sig.
Upplýsandi tölvupóstur
Aður en Hjörvar og Sveinn gengu
þeim Sveini að æda þá hina
einu sem em í tengslum við
Símann, ýmsir aðrir innan
Góðs fólks hafi komið nálægt
vinnu fyrir Símann þó svo að
hann hafi teiknað merkið. Og
Hjörvar hafnar því aðspurður
að þráðbeint samhengi sé milli
þess að þeir Sveinn hófu störf
hjá Nonna og Manna og að
upp úr samningaviðræðum
stofanna hafi slitnað. „Það var
ekki á borðinu hjá okkur þegar
við fómm út - ekkert plan í
gangi hjá okkur. Við sögðum
einfaldlega upp. Og varðandi
starf hjá Nonna og Manna þá hefur
þetta einfaldlega þróast svona. Margir
höfðu samband við okkur og við opnir
fýrir öllu,“ segir Hjörvar. Hann skýtur
ekki loku fyrir að samningur þeirra við
Nonna og Manna feli í sér eignaraðild
að fyrirtækinu, eða svokallað „stock
option". Hjörvar segir jafnframt að það
séu engar ýkjur að hinn íslenski aug-
lýsingaheimur geti verið afar drama-
tískur.
Jón Sæmundsson er Nonninn í
Nonna og Manna. Hann segir, líkt og
Hjörvar, að einfaldlega hafi slimað
upp úr samningaviðræðum stofanna
vegna þess að Gunnlaugur Þráinsson
framkvæmdastjóri Góðs fólks hafi ekki
viljað samþykkja tilboð sitt. „Þetta
tengist ekkert. Við vomm bara að ráða
þá í vinnu. Reynslumiklir og hæfileika-
ríkir menn. Ráðnir til vinnu í síðustu
viku. Þetta gerist ekki á sama tíma,
þannig að ég skil ekki þessar sögur.“
Hráslagalegur viðskilnaður
Gott fólk McCann auglýsingastof-
an hrósaði sigri á síðustu IMARK-há-
tíð, hrifsaði tfi sín 7 lúðra af 10, en í
sömu andrá vom þessir þrír lykil-
menn stofunnar að semja símskeyti
til framkvæmdastjórans þar sem þeir
Heimildarmenn innan
auglýsingaheimsins
segja Ijóst að sú stofa
sem hafi Símann á við-
skiptavinaskrá sé í
góðum málum.
tfi liðs við Gott fólk voru þeir á
auglýsingastofunni Fíton.
Heimildir DV herma að þegar
þeir gengu þaðan út árið 1998
hafi sá skOnaður ekki verið fal-
legur. Þeir munu hafa viljað
kaupa sig inn í fýrirtækið og
settu afarkosti: Ef ekki yrði
gengið að kröfum þeirra væm
þeir famir. Innbyggt í þá hótun
var að þeir myndu taka með sér
einn stærsta viðskiptavin Fíton
á þeim tíma sem var B&L. Þeir
fýlgdu þeirri hómn sinni eftir
en á urn það bO ári var fyrirtæk-
ið búið að færa sig frá Fíton og
yfir á Gott fólk - feitur biti.
Samkvæmt upplýsingum DV
höfðu þeir lengi verið í þreifingum
við Gunnlaug á Góðu fólki. Að því
komust Fíton-menn því þeir komust
ekki til þess að eyða tölvupósti og var
það víst mjög upplýsandi fyrir Fíton-
menn að lesa hann.
Leiðir Sveins og Hjörvars lágu
saman á Atómstöðinni sem Hjörvar
hafði stofnað ásamt Birni Jónssyni
sem nú er á Fíton. Atómstöðin sam-
einaðist Grafít og úr varð Fíton.
Nonni var spurður hvort hann óttist
ekki að sagan muni enn endurtaka
sig í náinni framtíð. Ég kann þá sögu
ekki nógu vel. Ég er svo ungur. Kann
ekki að bera hana saman við það sem
er að gerast núna. Get ekki tjáð mig
um það.“
Nonni og Manni með tak á
Símanum
Heimildarmenn innan auglýs-
ingaheimsins segja ljóst að sú stofa
sem hafi Símann á viðskiptavinaskrá
sé í góðum málum. Jón Sæmunds-
son, Nonni, staðfestir það en vOl ekki
meina að tengsl Sveins og Hjörvars
skipti sköpum. „Ég er með samning
við-Símann og hef verið fr á 1992. Ég á
mjög gott samstarf við Símann enda
frábær viðskiptavinur og frábært fólk
sem þar er,“ segir Nonni. Aðspurður
hvort hann ædi sér ekki að sækjast
eftir auknum viðskiptum við Símann
sver hann það ekki af sér. „Maður er
náttúrlega aUtaf að stefna að stærri
bita af kökunni."
Fleiri en einn og fleiri en tveir
þeirra sem DV hafði samband við
undrast það tak sem Nonni og Manni
virðast hafa á Símanum. Oftar en
auglysinnaheimi
Dramatík