Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Page 36
36 LAUGARDAGUR 20. MARS 2004
-------------------------
Sport DV
siguráKR
Stúdínur tryggðu sér
sæti í úrslitum 1. deildar
kvenna í körfuknatdeik á
fimmtudagskvöldið þegar
þær báru sigurorð af KR-
stúlkum, 62-52, í öðrum
leik liðanna í undanúr-
slitum í DHL-höllinni á
fimmtudagskvöldið. ÍS
vann fyrsta leikinn í Kenn-
araháskólanum á mánu-
dagskvöldið og einvígið,
2-0. Katie Wolfe var yfir-
burðamanneskja hjá KR,
skoraði 26 stig og tók 5 frá-
köst, systurnar Hildur og
Guðrún Arna Sigurðar-
dætur skoruðu sex stig hvor
'<fe'n Guðrún Arna tók 12
fráköst og Hildur 9. Alda
Leif Jónsdóttir var stiga-
hæst hjá ÍS með 18 stig og
varði 7 skot, Casie Lowman
skoraði 12 stig og Hafdís
Helgadóttir (sjá mynd)
skoraði 11 stig og tók 10
fráköst. Þetta er í fyrsta sinn
sem Stúdínur slá út KR-
stúlkur í úrslitakeppni og í
fyrsta sinn síðan 1995 sem
KR-stúlkur eru ekki í loka-
úrslitum.
Fimleikamót í
.Höllinni
Um helgina fer fram
Islandsmót í fimleikum í
Laugardalshöll. Keppni
hófst í gær í hópfimleikum
og verður þeim framhaldið
í dag. Keppni í áhaldafim-
leikum fer fram í dag og á
morgun.
Gunnar
Heiðar ekki
Jtil Sogndal
Eyjamaðurinn Gunnar
Heiðar Þorvaldsson mun
ekki fara til reynslu til
norska liðsins Sogndal. ÍBV
náði ekki samkomulagi við
Sogndal um greiðslu á
tryggingu fyrir Gunnar
Heiðar og því varð ekkert úr
för hans
‘Sjö lið spila í
Ameríku
Sjö evrópsk stórlið
munu taka þátt í móti í
Bandaríkjunum í sumar.
Ensku liðin Chelsea, Liver-
pool og Manchester United
verða meðal þátttökuliða
auk ítölsku liðanna AC
Milan og Roma, þýska
liðsins Bayern Múnchen og
skoska liðsins Celtic. Hvert
lið leikur þrjá leiki og
verður leikið vítt og breitt
um Bandaríkin og Kanada,
meðal annars í Seattle,
•floronto og New Jersey.
Nóg komið Claudio Ranieri fínnst nóg komið afleikmannakaupum hjá Chelsea og vill fá að Meira og meira Roman Abramovich er greiniiega ekki á sama máli og Ranieriþví að hann
búa til lið úrþeim ieikmönnum sem hann hefur úr að moða nú. Reuters viil halda áfram að styrkja leikmannahóp Chelsea affullum krafti. Reuters
Þaö er himinn og haf á milli skoðana Claudio Ranieri, knattspyrnustjóra Chelsea,
og Romans Abramovich, eiganda liðsins, um stefnu í leikmannamálum
Ranieri rífst við Roman
Rússinn Roman Abramovich og Cfaudio Ranieri eru komnir í hár saman vegna djúpstæðs
ágreinings um leikmannahópinn hjá Chelsea. Abramovich vill halda áfram að kaupa leikmenn til að
styrkja liðið meira en Ranieri telur að nóg sé komið og vill fá frið til að byggja upp lið úr öllum
leikmönnum sem hafa runnið inn um dyrnar á Stamford Bridge á undanförnum mánuðum. Það er
ekki ólfldegt að þessi ágreiningur þeirra sé enn einn naglinn í knattspyrnustjóralíkkistu Ranieris sem
hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan Abramovich keypti félagið sfðasta sumar - sérstaklega ekki
varðandi atvinnuöryggi en fjölmargir hafa verið orðaðir sem eftirmenn hans ekki ef heldur þegar
hann verður látinn taka poka sinn.
Grunur manna hefur lengi verið sá að það sé
ekki Claudio Ranieri, knattspymustjóri Chelsea,
sem stýri því hvaða leikmenn eru keyptir til
félagsins heldur sé það i höndum eiganda þess,
Rússans Romans Abramovich, og Peter Kenyon,
sem er yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu.
Þessu til staðfestingar þá hélt Ranieri á fund hjá
Abramovich í janúar, á meðan leikmanna-
markaðurinn var opinn og tjáði honum að hann
væri ánægður með leikmannahópinn sem hann
hefði í höndunum og bað Abramovich um að
Hann eyðir jafnmiklum tíma í að
svara spurningum um hug-
sanlega framtíð hans hjá fé-
laginu og frammistöðu liðsins.
kaupa ekki fleiri leikmenn í bili. Ranieri hefur haft
áhyggjur af því að of margir leikmenn myndu
skapa vandamál og ekki er laust við að hann hafi
haft nokkuð til síns máls. Jimmy Floyd Hasslebaink
vill komast burt sem fýrst, Claude Makelele er ekki
sáttur sem og Damien Duff og Joe Cole.
Hver stýrir leikmannakaupunum?
Ekki er hægt að sjá að Rússinn hafi hlustað á
Ranieri því að nokkrum dögum seinna var félagið
búið að kaupa Scott Parker frá Charlton fyrir tíu
milljónir punda. Ásíðustu vikum hafa síðan
Roman og félagar gengið frá kaupum á tékkneska
landsliðsmarkverðinum Petr Cech og hollenska
ungstirninu Arjen Robben. Hollendingurinn ungi
er fjórtándi leikmaðurinn sem Abramovich
kaupir frá því að hann keypti félagið fyrir níu
mánuðum en hann hefúr alls eytt um 140
milljónum punda í þessa fjórtán leikinenn. Er svo
furða að menn velti því fyrir sér hver stýri stefnu
liðsins í leikmannakaupum?
Valtur í sessi
Til að bæta gráu ofan á svart þá líður varla sú
vika að einhver þjálfari eða knattspyrnustjóri sé
ekki nefndur til sögunnar sem eftirmaður
Ranieris. Eftir hvem tapleik er Sven Göran
Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, dreginn á
flot sem mögulegur eftirmaður ítalans. í síðustu
viku tilkynnti Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern
Múnchen, að hann hefði hafnað tilboði Chelsea
um að taka við félaginu í sumar. Forráðamenn
Chelsea hafa reyndar borið þetta til baka en
ólíklegt er að þetta séu eingöngu hugarórar
Hitzfeld. Fabio Capello, þjálfari Roma, og Carlo
Ancelotti, þjálfair AC Milan, hafa einnig verið
nefndir til sögunnar.
Ranieri er ekki f öfundsverðri stöðu. Hann
eyðir jafnmiklum tíma í að svara spurningum um
hugsanlega framtíð hans hjá félaginu og
frammistöðu liðsins, hann virðist ekki ráða neinu
um hvaða leikmenn eru keyptir til félagsins og
sennilega verður hann farinn fyrr en varir. Það
yrði sjónarsviptir af þessum geðþekka ítala sem er
alltaf jákvæður, sama hvað á dynur, og hefur ekki
bugast - sem er meira en margur maður í hans
sporum hefði gert. oskar@dv.is
Úrslit réðust í 1. deild karla í körfubolta
Skallagrímur meistari
Skallagrímsmenn voru sjóðheitir
þegar þeir tryggðu sér 1. deildar-
meistaratitilinn í körfubolta eftir úr-
slitaleik í Borgarnesi í fyrrakvöld
gegn Fjölni úr Grafarvogi.
Skallagrímur skoraði alls 122 stig
í leiknum og settu leikmenn liðsins
meðal annars niður 17 þrista.
Skallagrímur vann leikinn að lokum
með 35 stigum, 122-87, eftir að hafa
haft 14 stigyflr í hálfleik, 50-36. Bæði
lið voru þegar búin að tryggja sér
sæti í Intersport-deildinni næsta
vetur. Skallagrímur vann deildar-
keppnina líka í vetur og er liðið því
vel að titlinum komið.
Steven Howard skoraði 30 stig
fyrir Borgnesinga, Sigmar Egilsson
var með 20 og gaf 12 stoðsendingar,
Pálmi Þór Sævarsson skoraði 17,
Egill Egilsson var með 16 og Davíð
Ásgrímsson var síðan fimmti leik-
maður liðsins til að skora 15 stig eða
meira er hann bætti við 15 stigum.
Hjá Fjölni skoraði Pálmar Ragn-
arsson mest eða 22 stig en hann
skoraði 26,3 stig að meðaltali í
þremur leikjum úrslitakeppninnar.
Þá var Hjalti Vilhjálmsson með 18
stig og Halldór Gunnar Jónsson
bætti við 11 stigum og Brynjar Þór
Kristófersson var með 10 stig.
Skallagrímur vann nú 1. deild
karla í þriðja sinn en þeir unnu hana
einnig 1973 og 1991.
Breiðablik og Þór Þorlákshöfn
féllu úr úrvalsdeildinni fyrir
skömmu og var dvöl Þórsara því
aðeins eitt ár að þessu sinni á meðal
þeirra bestu.
Skallagrímsmenn fagna Leikmenn Skallagrims sjást hér með sigurlaunin i 1. deild karla i
körfu en þeir tóku Fjölnismenn i bakariið á fímmtudagskvöldið i úrslitaleik. DV-mynd Valli