Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Page 37
DV Sport
LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 37*
Alonsovottar
fórnarlömbum
virðingu
Spænski ökuþórinn
Fernando Alonso, sem
ekur fyrir Renault-liðið í
Formúlu 1 kappakstrinum,
ætlar að votta fórnarlömb-
um hryðjuverkaárás-
arinnar í Madríd á
dögunum sérstaka
virðingu í kappakstrinum í
Malasíu á morgun. Alonso
ætlar að bera lítinn
spænskan fána á hjálmi og
búningi sínum og tileinka
hverjum þeim sigri sem
hann fer með af hólmi
spænsku þjóðinni. „Ég var
í fríi þegar hörmungamar
dundu yfir og fékk bara
fréttir í gegnum fjölskyldu
mína. Þetta var erfiður tími
fyrir alla heimsbyggðina og
ég vil nota tækifærið og
færa aðstandendum fórn-
arlambanna mínar dýpstu
samúðarkveðjur," sagði
Aionso á blaðamannafundi
í gær. Michael Schumacher
notaði tækifærið og hvatti
forráðamenn Formúlunnar
til að breyta ekki keppnis-
dagatalinu af ótta við
hryðjuverk. „Það er ekki
hægt að hafa áhyggjur af
hryðjuverkum því þau geta
gerst hvar sem er og
hvenær sem er.“
Rio Ferdinand ósáttur viö ákvörðun áfrýjunardómstóls sem hafnaði áfrýjun hans
um styttingu átta mánaða bannsins
Rio Ferdinand viðurkenndi í
gær að hann væri niðurbrotinn
maður eftir að áfrýjunardómstóll
hafnaði áfrýjun hans um að stytta
átta mánaða bann sem hann var
dæmdur í 19. desember síðast-
liðinn fyrir að missa af lyfjaprófi í
september á sfðasta ári.
Dómstóllinn, sem samanstóð af
þremur einstaklingum, komst að
þeirri niðurstöðu að Ferdinand
hefði ekki misst af lyfjaprófinu ffæga
tQ að fela ólögleg lyf en var samt
ófáanlegur tQ að stytta bannið. Þetta
gerir það að verkum að Ferdinand
mun ekki spQa með enska
landsQðinu á Evrópumótinu í
Portúgal í sumar né heldur mun
Manchester United njóta krafta
hans þar sem eftir lifir keppnis-
tímabQs.
Ferdinand byrjaði að taka út
bannið 20. janúar síðasdiðinn og
mun því ekki vera laus úr viðjum
bannsins fyrr en 20. september
næstkomandi.
Niðurbrotinn maður
„Ég er niðurbrotinn yfir úrskurði
dómstólsins. Ég mun ekki verða
hamingjusamur maður fyrr en ég
get farið að spila knattspyrnu á
nýjan leQc. Þegar öllu er á botninn
hvolft þá er ég knattspymumaður og
vil spila,“ sagði Ferdinand.
Hann sagði jafnframt að
tQhugsunin um að eiga möguleika á
Afrýjunin mistókst Rio
Ferdajand tókil ekkiad fcí
áttcftpáiwða banninu
hnekkt fyiiráfrýjunarclóm-
ítólilfyriadaij,
Reuters
„Þegar öllu er á botn- -
inn hvolft þá er ég
knattspyrnumaður og
vilspila."
því að spQa með enska landsliðinu í
Portúgal hefði haldið honum
gangandi til þessa.
„Það sem hefúr haldið mér
gangandi undanfarið var sú von að
ég myndi spila aftur á þessu
keppnistímabQi en þeir hafa svipt
mig voninni. Ég veit ekki hvað ég
geri næst. Ég æda að fara yfir málin
með mínum mönnum og taka síðan
ákvörðun í framhaldinu. Ég er
þakklátur öQum þeim sem hafa stue;-»
við bakið á mér í þessu máli en ég er
vonsvikinn," sagðí Ferdinand.
Getur áfrýjaö aftur
Það er þó ekki öQ nótt úti fyrir
Ferdinand. Hann getur enn áfrýjað
til íþróttaáfrýjunardómstóls í Sviss
en það er ekki talið vænlegt til
árangurs þar sem sá dómstóll hefur
völd tíl að lengja bannið f tvö ár.
Forráðamenn Manchester Uni-
ted sendu frá sér yfirlýsingu í gær
þar sem fram kom að félagið hefði
orðið fyrir vonbrigðum með
niðurstöðu dómstólsins en myndi
áfram standa þétt við bakið á
Ferdinand.
oskartsidvjs^
Tilboð á Heigarbiaði DV í
Bónus, Hraunbæ - þú kaupir
Helgarblað DV og færð í
kaupbæti Coke og Twix.
Kaupendur DV framvísa kassastrimli við útgang
og fá góðgætið afhent.