Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Qupperneq 45
DV Fókus
LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 4S
f§
„Hvað er einn eftirmiðdagur á
krossi?" spurði Halldór Laxness og
bætti við: „Miðað við að jarða böm
sín ár eftir ár.“ Mel Gibson reynir hér
að svara spurningunni með því að
sýna okkur nákvæmlega hversu mikl-
ar þjáningar frelsarans vom í smáat-
riðum. Maðurinn/Guðinn er barinn
og svo svipaður inn að beini, þymi-
kómnu er lamið inn í höfuð hans,
hann er látinn bera krossinn upp á
hæð, og er síðan negldur við hann.
Þar er hann látinn hanga þar tii hann
drepst, en Nýja Testamentið tekur
reyndar fram að hann hafi verið fljót-
ari að deyja en flestir aðrir, og því hafi
ekki gerst nauðsynlegt að brjóta fæt-
ur hans eins og siður var. í kaþólsk-
um sið, og reyndar í lúterskum fram-
an af, var ofuráhersla lögð á píningu
og dauða Jesú Krists. Hann dó jú fyr-
ir syndir okkar. Vegna dauða hans
emm við öll hólpin. Vonlaust er að
ræða mynd eins og þessa frá kvik-
myndafræðilegum sjónarhóli ein-
göngu án þess að velta fyrir sér
trúnni.
Hvað er einn eftirmiðdagur
hangandi á krossi?
Spumingin stendur samt enn.
„Hvað er einn eftirmiðdagur hang-
andi á krossi?" Krossfestingar vom
vinsæl aftökuaðferð á tímum Rómar-
veldis. Þegar Spartacus og þrælaher
hans töpuðu fyrir herjum heimsveld-
isins var allur herinn, um 7000
manns, krossfestur. Áætlað er að um
kvartmilljón gyðinga hafi verið kross-
fest meðan þeir lutu stjórn keisarans.
Hvers vegna var dauði og píning
þessa eina manns öllum hinum
langtum mikilvægari? Var það vegna
þess að hann var saklaus? Vom þá
allir hinir ömgglega sekir?
Er það vegna þess að hann var
pyntaður meira en gengur og gerist?
Það vitum við ekki, eins og áður sagði
dó hann fljótlega, en jafnvel þó svo
hafi verið, er allur munurinn á til-
gangslausum dauðdaga og frelsun
mannkyns nokkur svipuhögg til eða
frá?
Er þá málið að hann var sonur
Guðs? En emm við ekki öli böm
Guðs? Hvemig getur skapari alls átt
einkason? Var hann kannski Guð
sjálfur? Hvers virði er þá að pfnast í
nokkra tfma vitandi að ekki bara
maður sjálfur, heldur einnig allt
mannkyn, á eilíft lff í vændum? Einn
af veikustu punktum kristinnar trúar
hefur ávallt verið hinn þrískipti, en
samt eilífi og ódeilanlegi Guð, sem
Margar kvikmyndir hafa veríð byggð-
ar á ævi frelsarans, enda hefur sagan
verið mönnum hugleikin í um 2000 ár.
Sama hvaða trúarskoðanir maður hef-
ur eiga flestar kvikmyndirnar J)-*
sameiginlegt að vera frekar gó
>að
ar.
Mjög vanmetin mynd sem fjallar
um Tómasarguðsspjall. Ung
kona fser sár Krists á dulrsenan
hátt. Sýnir fram á hvernig pólitik
fyrstu aldanna eftir Kristsburð spil-
aði inn íhvað telst trúarritning og hvað
ekki.
Venv Bia Fish (1991)
Mynd sem svipar til hins kanadiska Jesú,
en er meiri farsi en trúarstúdia. Bob , ’*•
Hoskins leitar að fyrirsætu fyrir ff-
Jesúmyndir.ogfinnurhanaíJeff
Goldbium, en Goldblum fer að lifa
sig heldur mikið inn f hlutverkið.
Liklega besta Jesúmynd allra
tíma. Meistari Scorsese rannsak-
ar hið mannlega eðli mannsonar-
ins. Krossasmiðurinn Jesú þráir ekk-
ert heitar en að eignast börn með Mariu
Magdalenu, en þarfað díla við það að
þurfa að bjarga mannkyninu i staðinn. Og
fórn hans verðurmun meiri fyrir vikiö.
Mikið var að gera hjá Jesúáhugamönnum
þetta árið, þvi fransk-kanadíski snillingur-
inn Denys Arcand gerði einnig tn
mynd um lifKrists. Hér er fjallað ■ 'y'
um leikhóp sem setur á sviðævi \
Jesú, og atburðir i raunveruleikan-
um fara að endurspegla guðspjöll-
in. Hér er fórnin þó augljóslega mannkyn-
inu til bóta.
Jesús varjú hippi, en eins og ieiðtogar
hippanna endar hann sem súperstjarna
þar sem söfnuðurinn tilbiður mann-
inn frekar en verkin. Það er
kannski lýsandi að maðurinn
sem lék lærisvein númer eitt, Pét■
ur, fór að leika í klámmyndum eftir
að Jesús hvarf af sjónasviðinu.
Ekki gamanmynd eins og nafn-\
ið gefur til kynna, heldur háal-
varleg mynd byggð á Lúkasar-
guðspjalli sem reynirað vera eins trú
Bibliunni og hún getur. Hefur verið notuð i
trúboðastarfsemi um viða veröld.
Llfe of Brian (1979)
Hápunktur ferils Monty Python manna er
ein fyndnasta mynd allra tima. Greyið Bri- .
an fæðist sama dag og Jesús, og er tekinn í
misgripum fyrir frelsarann alla ævi. Rétt
eins og Scorsese tíu árum siðar er íffe _
hér fjallað um þann sem verð- Wj
ur óviljugur frelsari.
Charlton Heston er mættur aftur tilr,
leiks.„Gonna get Biblical on yer (
ass."Færþó ekki heldur hér að
taka með sér haglarann þar jfjfiJS
sem hann fermeð hlutverkJó- ifJ.
hannesar skírara. Max Von Sydow
er frelsarinn, enda fyrir tima affermative
action og þvi sjálfsagt að hafa Svía I hlut-
verkinu.
(1141
#r
Italski leikstjórinn Pasolini leik-
stýrði mögulega ógeðslegustu
mynd allra tíma, þrátt fyrir til-
raunir Gibson til að toppa
hann,með 101 Dagar Sódómu.
Hér sýnir hann Kristsem Marxista (sem
hann vissulega var) sem kemur til þess að
færa sverð, ekki frið.
Ein „stærsta" stórmynd allra
tlma. Jesús er í aukahlutverki,
en það er hestakerrukappakst- tá,
urinn sem stelur senunni. m
Charlton Heston í sínu besta hlut-
verki, þó maður viti að eftir á að hyggja
myndi hann helst senda NRA á þetta Róm-
verjahyski.
enginn hefur almennilega getað út-
skýrt.
Og hvers vegna var fórnin nauð-
synleg? Varð allt betra í kjölfarið?
Hefur heimurinn ekki verið blóðugri
en nokkumtímann fyrr, þar sem
krossferðir, heimsstyrjaldir og helfar-
The Passion ofthe
Christ.
SýndiRegnboganumog
Smárabíó.
Leikstjóri: Mel Gibson.
Adalhlutverk: Jim Caviezel,
Monica Belluci og Maia Morg
enstern.
ir hafa allar verið háðar af fólki sem
opinberlega blótar Jesú?
Hverjir eru svo hólpnir? Allir?
Jesús segir að til himna komist eng-
inn nema í gegnum hann. Hvað þá
með allar þær milljónir sem fæddust
og dóu fyrir krossfestingu, eða hafa
fæðst og dáið síðan án þess að hafa
nokkum tímann heyrt um hana?
Fara þeir þá allir til helvítis? Og hvers
vegna, fyrst Guð predíkar fyrirgefn-
ingu, gat hann ekld bara fyrirgefið
liðinu án þess að láta greyið mann-
inn ganga í gegnum þetta alltsaman?
í lok myndarinnar, þegar Jesús
gefur upp öndina, sést Satan öskra af
angist. Jesús þurfti jú að drepast til að
allt skyldi verið fullkomnað. En hvað
ef Jesús, Rómverjarnir og æðstu-
prestarnir hefðu klappað hvomm
öðrum á bakið og ákveðið bara að
vera vinir? Hefði Satan þá unnið? All-
ar þessar spurningar veltust um í
höfði mér eftir að ég horfði á mynd-
ina, og komst svo að þeirri niður-
stöðu að það er ekki heil brú í krist-
inni trú.
Krossfestingin sem líknardráp
Það er margt gott og gilt í boðskap
Jesú sem á erindi við nútímamann-
inn, reyndar nóg til að byggja líf sitt á.
Jesús Kristur er sakleysinginn mikli
sem fer út í heim. Það þarf engan
spámann til að sjá að illa muni fara,
ifia fer fyrir góðum mönnum í vond-
um heimi. En það er boðskapurinn
sem máli skiptir. Þetta yfirsést Gib-
son í áhuga sínum, og eiginlega til-
beiðslu á ofbeldinu. Reyndar feilar
hann hér sem sögumaður, hann fer
yfir um í húðstrýkingunum og nær
aldrei að toppa það. Eftir svipuhögg-
in er Jesú lifandi lík í fláðu skinni. í
afar langdregnu atriði gengur hann
upp á hæðina, og dettur í sífellu,
enda nær dauða en lífi. Það er varla
að vesalingurinn geri sér grein fyrir
því hvar hann er eða hvað er verið að
gera við hann. Krossfestingin virkar
næstum sem líknardráp þegar hér er
komið við sögu.
Mel Gibson reynir að fá áhorfand-
ann til að meðtaka kristna trú með
því að leggja áherslu á kvalafullan
dauðdagann. Jesús er ekki sá kraft-
mikli hugsjónamaður sem bauð
valdastétt samtíma síns byrginn.
Hann er fyrst og fremst fórnarlamb.
Þessi þáttur kristinnar trúar á rætur
að rekja til eldri trúarbragða, þar sem
ávallt þurfti að færa fórnir til að
blíðka grimma guði, er til í trúar-
brögðum í flestum heimshlutum,
hvort sem um er að ræða Gyðingdóm
við botni Miðjarðarhafs, Ásatrú á
norðurslóðum eða mannfórnir Az-
teka í Mið-Ameríku. Guð kristinna
manna gengur skrefinu lengra, óg
heimtar að sjálfum sér sé fórnað. Ætti
þar með endir að vera bundinn á
hugmyndir um fórnir til Guðanna.
Það er erfitt að sjá hvernig slfkt eigi
erindi við nútímamanninn. Guð er
dauður. En kærleiksboðskapur Jesú
lifirenn. ValurGunnarsson
Stjörnuspá
Gísli Rúnar Jónsson skemmtikraftur er 51
árs í dag. „Fyndinn, Ijúfur og myndarlegur
maður birtist hér. Hann er hlýr, gjafmild-
ur, skemmtilegur og vinamargur en fólk
dregst samstundis að persónuleika hans
við fyrstu kynni. Hann leitar nánast uppi
ævintýri hvar sem hann stígur
niður fæti og tekst sífellt á við
nýja reynslu. Oft á tiðum er
i villtur og óábyrgur,"
segir í stjörnuspá
hans.
Gísli RúnarJónsson
\A, Vatnsberinn ao.jan.-is. febrj
vV ---------------------------------
Máttur ástarinnar er mikill og
ert þú minnt/ur á það hér. Ef þú lætur
verk þín stjórnast af ást eyðir þú ekki
orku þinni að nauðsynjalausu.Vertu
þolinmóð/ur gagnvart félögum þínum
og ekki síður fjölskyldu.
Fiskarnir (i9.febr.-20.mars)
K
Líkami þinn upplifir tvenns
konar tilfinningar. Önnur tilfinningin er
vellíðan og hin vanlíðan. Þér er ráðlagt
að hlusta vel á þau svör sem líkami þinn
sýnir þér ómeðvitað þegar kemur að
vali sem birtist samhiiða stjörnu fiska [
lok mars.
Cp
Hrúturinn (21. mars-19. a
Helgin framundan verður 7*'
áhugaverð mjög og þú kemur sjálfinu
eflaust á óvart með framtakssemi þinni.
Þú ert áköf/ákafur þegar metnaður
þinn er annars vegar og þér er ráðlagt
að halda ótrauð/ur áfram þó að á móti
blási.
ö
Nautið (20. apríl-20. mal)
Velferð nautsins er ákveðin af
æðri öflum. Þú hefur án efa lagt á þig
ómælda erfiðisvinnu til að ná þeim ár-
angri sem þú býrð við i dag og nú er
komið að þér að njóta tilverunnar að
þínu mati.
W\bmm (21.mai-2ljúnfí
Reyndu eftir fremsta megni að
forðast óþarfa áhyggjur sem kunna að
hvíla á herðum þínum þessa dagana.
Ekki ásaka sjálfið ef smávægilegar
hindranir verða á vegi þínum og trúðu á
sjálfið og sjá, sigurinn er i höfn.
\írabbm(22.júnf-22.júii)__________
Aukin innsýn kemur fram þeg-
ar stjarna krabbans er skoðuð. Reyndu
eftir fremsta megni að ná fullri stjórn á
því sem þú ert að fást við þessa stund-
ina og ekki hika við að sýna skipulags-
hæfileika þína íverki.
Ljónið (23.júli- 22. ágúst)
Gefðu þér tíma til að hinkra
aðeins við. Bíddu eftir lausninni. Hafðu
vakandi auga með óvissunni þegar þú ^
horfirfram á við því lausnin kemur af v
sjálfu sér ef þú aðeins hlúir að því sem
skiptir sannarlega máli.
Meyjan (23. ágúst-22. septj
Ekki réttlæta langanir þínar
fyrir sjálfinu heldur fullvissaðu sjálfið að
þrár þínar komi til með að rætast í fyll-
ingu tímans. Áhyggjuleysi ætti að ein-
kenna líðan þína helgina framundan.
VogÍn (23.sept.-23.okt.)
Ekki leyfa þér að láta líf þitt
stjórnast af peningum því þá stíflar þú
framgang mála til betrumbóta hjá sjálf-
inu. -
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0rj
Gjafir þínar felast í orðum þín-
um, gleymdu því eigi dagana framund-
an. Ekki líta hlutina of alvarlegum aug-
um yfir helgina framundan. Reyndu að
efla kímnigáfu þína ef þú getur og
leyfðu þér að hlúa að barninu sem býr
innra með þér.
/
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.desj
Þú ert minnt/ur á að mikil-
vægt er að þú sendir langanir þínar frá
þér inn í tómarúmið sem sáir hug-
myndum þínum í frjóa mold og jjað án
þinnar vitundar og á þaö við um þessar
mundir.
Steingeitin (22.des.-19.janj
Þú nærð árangri með lagni og
skynsemi og ættir aldrei að láta neinn
telja þér trú um annað og þá allra síst
að þú beitir hörku til að nálgast drauma
þína. Hlustaðu vel á tilfinningar þínar
næstu daga í stað skynseminnar sem á
það til að koma fram hjá þér ómeðvit-
að.
SPÁMAÐUR.IS*