Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Side 47
DV Síðast en ekki síst LAUGARDACUR 20. MARS 2004 47 -------------------------j* Afsakið auglýsingar í umræðunni um frjálsa sam- keppni vill það gjarna bera við að þeir sem hlynntastir eru henni fjargviðrist út af ósanngjarnri sam- keppnisstöðu við ríkisfyrirtæki. Sjálfsagt hafa þeir stundum sitthvað til síns máls, en þegar talið berst að auglýsingamarkaði og aðkomu Rík- isútvarpsins að honum finnst mér oft að töluvert skorti upp á að rök- semdir þeirra gangi upp. Þannig heyrist helst talað um að óeðlilegt sé að sjónvarpsstöð sem rekin er fyrir almannafé keppi við einka- fyrirtæki um þeirra einu tekjulind. Þetta er auðvitað rangt að tvennu leyti. í fyrsta lagi eru augýsingar ekki eina tekjulind einkastöðvanna. Við- skiptajöfrar út um allan bæ virðast sjá sér hag í að dæla fjármunum í þær, að því er virðist í þeim eina göfuga tilgangi að viðhalda mót- vægi við Ríkisútvarpið á fjölmiðla- markaði. Hvorki Samherjabræður né Bónus- og Samsonfeðgar hafa hins vegar sést á vappi uppi í Efsta- leiti með fullar töskur af peningum nýlega. í öðru lagi er Ríkisútvarpið fjársvelt. í stað þess að vera rekið af hinu opinbera með myndarbrag er því með valdboði gert að innheimta afnotagjöld á eins óvinsælan og óhagkvæman hátt og hægt er að hugsa sér. Það er engu líkara en að núverandi fyrirkomulag á inn- heimtu afnotagjaldanna hafi verið búið gagngert til í þeim tilgangi að fara illa með peninga og afla fyrir- tækinu óvinsælda (jafnvel til að rýra verðmæti þess og gera það auðveld- ara í sölu). Sjónvarpið hefur hins vegar skyldum að gegna sem frjálsu stöðvarnar hafa ekki, það getur ekki bara boðið upp á samtíning af því vinsælasta og einsleitasta frá út- Davíð Þór Jónsson skrifar um RÚV og auglýsingamarkaðinn. Kiallari löndum eins og þær. Fyrir vikið verður það að afla sér aukatekna. Auðvitað væri æskilegast... ... að sjónvarpsstöð aflaði sér tekna með því að framleiða sjón- varpsefni til að selja öðrum sjón- varpsstöðvum. En þeir sem hæst tala um hvað það sé ósanngjarnt að Sjónvarpið steli af þeim auglýsing- um eru einmitt þeir sömu og síst vilja heyra á það minnst að opna því þennan möguleika á tekjuöflun, þ. e. að veita þá meira fé til dagskrár- gerðar í staðinn. Nákvæmlega hvernig Sjónvarpið á að vera þegar fjárveitingar til þess eru skornar við nögl og því meinaður aðgangur að öðrum tekjum er hins vegar öllum hulin ráðgáta. Markmiðið virðist vera að dagskrá Sjónvarpsins verði eins og léleg vídeóleiga úti á landi af því að samkeppnin á auglýsinga- markaði verði ekki almennilega frjáls fyrr en Ríkisútvarpiðverður útilokað frá henni. Við þetta má bæta öðru sem lítið er rætt... ... en ekki er vanþörf á að koma að í þessari umræðu. Auglýsinga- tímarnir hafa í raun verið óopinber kvikmyndaháskóli þjóðarinnar um áraraðir. Fremstu kvikmyndagerð- armenn okkar lærðu til verka í aug- lýsingum. Sjónvarpsauglýsingar hafa lagt grunninn að rekstri öflugra fyrirtækja í kvikmyndagerð á ís- landi, atvinnugrein sem veitir stöðugt fleiri manns vinnu og aflar sífellt meiri gjaldeyristekna. Það væri reiðarslag fyrir þennan at- vinnuveg ef auglýsingar yrðu bann- aðar í Sjónvarpinu. Eg leyfi mér að fullyrða að afar fáar vandaðar og metnaðarfullar auglýsingar yrðu framleiddar á íslandi ef þeir sem burði hafa til að auglýsa þannig yrðu í nafni frjálsrar samkeppni sviptir frelsinu til að auglýsa í lang- vinsælasta miðli landsins. Frelsið virðist nefnilega vera orðið svo mikilvægt að til að tryggja það beri að takmarka frelsi ákveð- inna aðila eins og framast er unnt. Frjálsu stöðvarnar eiga að hafa frelsi til að keppa hver við aðra án þess að eiga á hættu frjálsa sam- keppni frá Ríkisútvarpinu og fyrir- tæki eiga að hafa frelsi til að auglýsa alls staðar annars staðar en þar sem langmest er horft. Það er óneitan- • Meðal markaðsfræðinga ríkir gríðarleg spenna því hingað er von á einu helsta markaðsfræðigúrú heims hingað til lands. Það eru samtök auglýsenda sem standa fyrir komu mannsins sem heitir Dr. Kevin Lane Keller. Hann mun flytja fyrirlestur á námstefnu sem menn fullyrða að sé á heimsmælikvarða og sú merkasta sem hér hefur verið efnt til síðan Philip Kotíer kom hingað fyrir tæpum tíu árum... • Ekki fer sem horfir að Gísli Mart- einn verði með þátt sinn í kvöld undirlagðan af Júróvisjón þó svo að frumflutt verði okkar framlag þar í kvöld. Jónsi í Svörtum föt- um er af því tilefni gestur þáttarins sem og Bjöm Jörundur. Dr. Gunni heyrði brot af laginu og segir það hafa minnt sig á Vilhjálm Vilhjálms- son heitinn. Gunni telur að um fín- an þátt verði að ræða, Gísli eitur- hress að vanda og sjálfur spili hann tvö lög í þættinum. „Allavega skárra en þegar Bára bleika og Svavar öm vom gestir í síðasta þætti, djfsús kræst á köflóttum teini ástarinnar!" segir Gunninn viss í sinni sök um ágæti sitt... lega grátbroslegt hvernig hugtakið frelsi á það til að þvælast mest fyrir þeim sem það er einmitt tamast í munni. í lok áttunda áratugar síðustu aldar sendi rithöfundurinn Ása Sólveig frá sér tvær skáldsögur, Einkamál Stefaníu 1978 og Treg í taumi 1979. Hún þótti fjalla á raunsæjan hátt um stöðu kvenna og hlutverk í fjöl- skyldu, hjónabandi og daglegu lífi. Asa Sólveig hlaut styrk úr Rihöf- undasjóði RIÍV árið 1979, menning- arverðlaun DV 1979 fyrir Einkamál Stefaníu og var tilnefnd til bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir sömu bók árið 1980. Ekki hefur komið út bók eftir Ásu Sólveigu í bráðum tvo áratugi. • Athygli hefur vakið að hinn gamli fiskifræðingur össur Skarphéðins- son, formaður Samfylkingarinnar, hefur f tómstund- um sínum verið iðinn við að setja ffam ítar- legar fyrir- spurnir á þingi umhinaýmsu furðufiska, svo sem rauðserk, stinglax, blálöngu, laxsíld, bláuggatún- fisk og búra auk fyrirspurnar um ál sem mikla athygli vakti. Ástæðan mun vera sú að Samfylkingin er að undirbúa mikið þingmáf um nýt- ingu sjávarfangs sem á að leggja fram í upphafi þings í formi mikils doðrants þar sem ýmsir vannýttir möguleikar verða reifaðir.Telja menn augljóst að Samfylkingin muni gera kröfu um sjávarútvegs- ráðuneytið í næstu ríkisstjórn þó ekki megi teljast líklegt að Össur taki það sæti þar sem hann er kandídat flokksins í utanríkisráðuneytið fái flokkurinn ekki forsætisráðuneytið. Knái klósenpappírssölumaöurinn „Ég er að fara af stað á fullu að selja strax í næstu viku, segirÁgúst Bjarki Davíðsson albúinn að taka slaginn. Hann er sölumaður, ekki dauðans, heldur klósettpapp írs og eldhúsrúllna. Tegundin er úrvals, Lótus. Þessi starfi er tilfallandi og liður í því að safna fyrir fari með Herjólfi tif Vestmannaeyja. Hann er að fara á Shell-mótið í fótbolta ásamt félögum sínum í Þrótti. Þangað steðjar nú fjöldi drengja á aldrinum 9 og 10 ára. Ágúst Bjarki er níu ára en er alveg að verða tíu. Hann á afmæli 23. júní sem er einmitt dag- urinn sem fyrtrhugað er að leggja upp í þessa miklu ævintýraferð. Ágúst Bjarki er í 6. flokki, í framlín- unni, sókndjarfur og hefúr skorað fúllt af mörkum. Sölumaðurinn knái er ekki alveg með það á hreinu hversu mikið hann þarf til að ná endum saman og hvenær nóg sé komið fyrir ferðinni. Hann ætlar að hafa vað- ið fyrir neðan sig og semr markið á 35 þúsund. Ágúst Bjarki telur nokkuð víst að hann nái því marki enda er hann harður sölumaður. Ágúst Bjarki ætíar að ganga á milli húsa þar sem hann mun tíunda gæði vörunnar auk þess sem hann mun skírskota til hins góða málefnis. Jafnframt ætlar hann að heija á fyrirtæki og hefur komið agentum sínum til að senda tölvupóst á starfsmenn. Þá er hægt að ná mörgum í einu. Til dæmis hafa starfsmenn Fréttar ekki farið varhluta af söluhæfileik- nm Ágústar Bjarka sem þegar hefur selt þó nokkrar klósettpappírsrúllur í DV-húsinu. VAXTALAU 5 HAMINGJA BJDÐUM VAXTALAU S AR GREIÐSLUR í 1 2 MÁNUÐI E F KEYPT E R FYRIR K R. EÐA MEIRA* DÆMI UM VERO í 1 2 MÁNUOI VAXTALAUST VENTAGE bdrdstqfubqro □ Q 6 STÓLAR 10.B04 KR. TEKK COMPANY mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmimmmmmmmmmmmmmmmmmmmm ^BÆJARLIND 14-16 | 20 1 KÓPAVDQI | SÍMI 564 4400 I FAX 564 4435 | TEKK@TEKK.IB | WWW.TEKK.IB □ pið: laugardaga 10-16 dg sunnudaga 13-16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.