Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Síða 24
18
TlMARIT VFI 1960
HELGI HERMANN EIRÍKSSON
SJÖTUGUR
(Helgi Hermann Eiríks-
son, verkfræðingur, varð
sjötugur 3. maí 1960. Af
því tilefni héldu hinir
mörgu vinir og velunnar-
ar hans honum hóf að Hó-
tel Borg laugardaginn 7.
mai. Þar voru haldnar
margar ræður, m. a. eftir-
farandi, sem Jakob Gísla-
son, formaður VFl, flutti,
en hann sat hófið sem
sérstakur fulltrúi félags-
ins, — H. G.J.
Herra veiziustjóri,
kæra afmælisbam,
góðir veizlugestir.
Afmælisbarnið, heiðursgestur kvöldsins, Helgi Her-
mann Eiríksson, hefur verið félagi í Verkfræðingafélagi
Islands í 40 ár. Hann kom hingað heim árið 1920 með
námuverkfræðingaprófi frá verkfræðiháskólanum i Glas-
gow. Hann er eini íslenzki verkfræðingurinn með prófi
í þeirri grein, enda litil þörf námuverkfræðinga hér á
Islandi. Sá námurekstur, sem á dagskrá var hér á landi,
þegar Helgi Hermann Eiríksson var við verkfræðinám
og Helgi síðan stjómaði, hafði því miður ekki skilyrði
til þess að verða langvinnur í landinu. Breytt markaðs-
skilyrði og vísindalegar og tæknilegar nýjungar, er fram
komu erlendis, urðu þess valdandi, að fjárhagslegur
grundvöllur silfurbergsnámsins þvarr og sú starfsemi
lagðist niður hér á landi.
Helgi Hermann sneri sér þá að öðrum verkefnum,
og hafa þeir, sem á undan mér hafa talað hér í kvöld,
svo og aðrir á öðrum vettvangi, skýrt frá því, með hve
miklum og góðum árangri hann hefur beitt sínum góðu
gáfum, miklu hæfileikum og dugnaði að lausn þeirra
mikilsvarðandi málefna, sem hann hefur beitt sér fyrii',
og við þjóðfélagslega þýðingarmikil störf. Skal ég ekki
endurtaka það, sem aðrir hafa sagt, með því að rekja
þetta nánar.
Þótt Helgi Hermann Eiríksson hyrfi nokkuð snemma
frá hinum eiginlegu verkfræðistörfum, hefur hann alla
tíð látið félagsllf verkfræðingastéttarinnar til sin taka
og kollegarnir þar ekki látið hann sleppa við að taka á
sig trúnaðarstörf og sinna ýmsum ábyrgðarmiklum fé-
lagsstörfum.
Alveg frá því fyrsta tók Helgi Hermann þróttmikinn
þátt I umræðum á fundum og afgreiðslu mála, og er
dálítið gaman I því sambandi að rifja upp fyrsta fund-
inn, er Helgi Hermann sat I Verkfræðingafélaginu.
Helga hafði verið veitt innganga I VFl á stjórnar-
fundi 17. október 1920. Þá sátu I stjóm þeir Thorvald
Krabbe, form., Geir Zoega, varaform., Guðm. Hliðdal,
ritari og Paul Smith, gjaldkeri.
Helgi var siðan boðinn velkominn I VFl á næsta fé-
lagsfundi þar á eftir eins og siður er, en það var 61.
fundur félagsins, haldinn 17. nóvember 1920 að Hótel
Island og hófst kl. 19.00. Þetta var allmerkilegur fund-
ur eins og sjá má I fundargerð. Þar segir m. a. svo:
,,Formaður setti fundinn og bauð gestina velkomna, en
það voru þeir Pétur Jónsson, atvinnumálaráðherra, Guð-
mundur Björnsson, landlæknir, Bjarni Jónsson frá Vogi,
Klemenz Jónsson, fyrrv. landritari og Skatteboe, verk-
fræðingur frá Kristianíu. Jón Magnússon, forsætisráð-
herra og Eggert Claessen höfðu einnig verið boðnir á
fundinn, en gátu ekki mætt. Steingrímur Jónsson, verk-
fræðingur, flutti erindi um fossamálið. Hafði uppkast að
erindinu áður verið sent bæði félagsmönnum og gestun-
um. Fór svo fram venjulegt borðhald, en formaður bauð
velkominn nýjan félagsmann, Helga Hermann Eiríksson,
námaverkfræðing. Þvi næst hófust fjörugar umræður
um fossamálið og tóku þátt I þeim: Bjarni Jónsson, Jón
Þorláksson, Helgi Hermann og Klemenz Jónsson auk
frummælanda. Þegar komið var miðnætti, var umræðum
ekki lokið, og var þeim þá — eftir tillögu frá Jóni Is-
leifssyni — frestað til framhaldsfundar, er haldinn skyldi
að viku liðinni. Á fundinum mættu 15 félagsmenn".
Framhaldsfundurinn var haldinn á sama stað 24. nóv.
1920 og voru þar enn tignir gestir, m. a. Jón Magnús-
son, forsætisráðherra, og Pétur Jónsson, atvinnumála-
ráðherra. Urðu aftur fjörugar umræður og komu fram
tvær tillögur til fundarályktunar, önnur þeirra frá Helga
Hermanni Eiríkssyni.
Helgi lét þannig ekki á sér standa að taka þátt I fé-
lagslífi og störfum Verkfræðingafélagsins.
1 stjórn Verkfræðingafélagsins var Helgi Hermann
kosinn skömmu eftir að hann kom I félagið. Hann var
lengi ritari félagsins og hefur aðeins einn maður annar
verið það jafn lengi og hann.
Helgí var fulltrúi okkar I samstarfsnefnd verkfræð-
ingafélaga Norðurlanda.
Hann hefur átt sæti I ýmsum nefndum, en ég ætla
ekki að teygja tímann með þvi að rekja nánar starf
Helga I félagsmálum okkar verkfræðinganna. Aðeins
vil ég að lokum geta þess, að hann hefur síðasta ára-
tuginn átt sæti í framkvæmdaráði húsnæðissjóðs, sem
hefur haft það verkefni með höndum að afla Verkfræð-
ingafélaginu eigin húsnæðis. Ég hef haft þá ánægju
að starfa með Helga I húsráðinu ásamt fleiri góðum
mönnum, undir formennsku Finnboga prófessors Þor-
valdssonar, I húsráði hefur Helgi ekki legið á liði sínu
fremur en annars staðar, og við getum nú fagnað því,
að góðum áfanga er náð I þvi áhugamáli félagsins, þar
sem það á nú stóra hæð I vönduðu húsi og hefur þar
gott og skemmtilegt húsrými fyrir skrifstofu, stjórnar-
og nefndarfundi o. fl.
Nú við sjötugsafmæli þitt, Helgi Hermann Eiriksson,
veitist mér sá heiður og sú ánægja að bera fram þakkir
Verkfræðingafélags Islands til þín fyrir þin ágætu störf