Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Blaðsíða 25

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Blaðsíða 25
TÍMARIT VPI 1960 19 í þágu félagsins, fyrir margar ánœgjulegar samveru- stundir innan vébanda félagsskapar okkar, svo og utan þeirra, fyrir áhuga þinn um velferöarmálefni stéttar okk- ar og fyrir þann sóma, sem þú hefur gjört verkfræð- ingastéttinni með öllu þínu mikia og merkilega ævistarfi. Verkfræðingar senda þér hugheilar árnaðaróskir á þessurn merkisdegi og vonast til þess að fá að eiga á- nægjulegt samstarf og skemmtilegar stundir með þér enn um langan aldur. Jakob Gíslason. Baldur Líiulal, lsleifur Jónsson Jöliann Jakohsson og Unnsteinn Stefánsson: Sjávarselta við strendur Faxaflóa og Suðvesturland Iniigangur. Á seinni árum hefur athygli margra þjóða beinzt að sjónum sem hráefnalind við framleiðslu mikilsverðra efna, sem finnast þar uppleyst. Salt hefur um langan aldur verið unnið úr sjó svo sem kunnugt er. Nú er einnig unnið magnium oxið, magníum málmur, bróm og gips svo nokkuð sé nefnt. Framleiðsla sem þessi er að sjálfsögðu háð ýmsum ytri aðstæðum, og er selta sjávarins ein þeirra. Hér á landi hefur athyglin nokkuð beinzt að þeim möguleikum, sem eru á að framleiða efni úr sjó. Landið er hráefnasnautt, en auðugt af orkulindum. Mest hefur verið rætt um framleiðslu á salti, þar sem jarðhitinn væri notaður sem varmagjafi við uppgufun- ina, hliðstætt því sem sólarorka er notuð í suðlægum löndum, þar sem salt er framleitt. Áætlanir um framleiðslu á salti og öðrum efn- um úr sjó gerðu athugun þá, sem hér er greint frá, nauðsynlega. Það varð að ráði i upphafi, að Atvinnudeild Háskólans, Fiskideild og Iðnaðardeild og Jarð- hitadeild Raforkumálastjóra önnuðust rannsókn- ir þessar sameiginlega. Rannsóknaráð Ríkisins studdi að þessum rannsóknuni og hvatti til þeirra. Auk þess sjónarmiðs, sem lýtur beint að vinnslu sjávarsalta, var einnig ljós nytsemi slíkra rannsókna frá haffræðilegu sjónarmiði. Rannsóknir þessar hófust í lok ársins 1955 og var haldið áfram til ársloka 1959. Eins og kunnugt er liggur hlýr og tiltölulega saltur Atlantssjór upp að suður- og vesturströnd Islands. Á undanförnum áratugum hafa verið gerðar allvíðtækar i-annsóknir á seltumagninu á landgrunnsvæðinu og hafinu úti fyrir í rann- sóknaleiðöngrum Dana, Þjóðverja, Islendinga og fleiri þjóða. Má þvi segja, að seltudreifingin sé þekkt í öllum aðalatriðum i hafinu umhverfis Island. Á 1. mynd er sýnd meðal yfirborðsseltan mán- uðina marz (a), júní (b), ágúst (c) og október (d). Eru þessi kort byggð á öllum tiltækum mælingum fram til ársins 1954 og birtust í ritgerð eftir þýzka haffræðinginn Krauss (1958). Af myndinni má sjá, að á landsgrunnssvæðinu við Suðvesturland er selt- an 34,5—35,0'ír í marz, 34,25—34,5% í maí, svipuð eða öllu lægii í ágúst og 34,5—34,75% í október. Yfirborðs- seltan er því 0,25—0,5% hærri á veturna en á sumrin á landgrunnssvæðinu, en á úthafssvæðinu er árssveifl- an mun minni. Er þessi niðurstaða raunar í fullu sam- ræmi við það, sem fundizt hefur á öðrum norðlæg- um hafssvæðum, þar sem úrkoma er að jafnaði meiri en uppgufun (Smed 1943). Ekki er kunnugt, að gerðar hafi verið neinar teljandi mælingar á seltumagninu uppi við land, hvorki við suð- vesturströndina, Faxaflóa né annars staðar við strendur 1. mynd. Meðalyflrborösseltan við Island mánuðina marz(a), júni(b). áfrúst(c) og október(d). (Eftir Itrauss. 1958).

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.