Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Blaðsíða 36
30
TlMARIT VPl 1960
eajkagussíjótú
foiáuesfeíagi
xjfý
Steingrímui' Jónsson,
rafmagnsstjóri, varð sjö-
tugur 18. júní 1960. Mik-
ill fjöldi gesta heimsótti
hann á afmælisdaginn til
þess að færa honum og
fjölskyldu hans árnaðar-
óskir af tilefni dagsins.
Meðal hinna mörgu gesta
var stjórn VFl og ýmsir
aðrir verkfræðingar. For-
maður VFl, Jakob Gísla-
son, flutti þar eftirfarandi
ávarp:
Stjórn Verkfræðingafé-
lags Islands samþykkti á
fundi sínum 8. febrúar þ.
á., að gera þig, Steingrím-
ur Jónsson rafmagnsstjóri,
að heiðursfélaga Verk-
fræðingafélags Islands á
sjötugsafmæli þínu hinn
18. júní 1960.
Samþykkt þessari fylgdi
svohljóðandi greinargerð:
„Steingrímur Jónsson
er fæddur 18.6. 1890 og
verður því sjötugur hinn
18. júni n. k. Hann lauk
prófi i rafmagnsverkfræði
frá D.T.H. í Kaupmanna-
höfn árið 1917. Hann var
ráðinn verkfræðingur hjá
Reykjavíkurbæ 1920 og á
því nú að baki 40 ára far-
sæian starfsferil. Hann hóf starf sitt með því að semja
reglur um rafmagnslagnir og umsjón með þeim. Árið
1921 var hann ráðinn rafmagnsstjóri í Reykjavík, og
hefur hann gegnt því starfi síðan. Hann vann að og
hafði yfirumsjón með frumvirkjun í Sogi 1936 og sið-
ari virkjunum þess (íra-
foss, Efrasog). Fram-
kvæmdastjóri Sogsvirkj-
unarinnar var hann ráð-
inn 1937 og hefur gegnt
því starfi síðan.
Steingrímur Jónsson
hefur ritað manna mest
um rafmagnsmál á ís-
lenzka tungu, og hefur
fjöldi greina birzt eftir
hann í Tímariti VFl og
viðar. Hann hefur gert á-
ætlanir um virkjanir
Andakílsárfossa, virkjun
Glerár i Eyjafirði, virkj-
un Skeiðsfoss o. fl. ýmist
einn eða í félagi við aðra.
Hann er einn af stofn-
endum Sambands ís-
lenzkra rafveitna 1943 og
hefur verið formaður þess
frá öndverðu. Hann tók
sæti i raforkumálanefnd
1929, síðar í raforkuráði
og var formaður þess frá
stofnun þess 1946 til 1954.
Hann er einn af frum-
kvöðlum að stofnun Ljós-
tæknifélags Islands 1954
og formaður þess frá upp-
hafi. Hann hefur átt sæti
í landsnefnd Islands í
AOR frá upphafi og átti
þátt í stofnun Kjarnfræða-
nefndar Islands 1956 og hefur setið i stjórn hennar frá
öndverðu. Hann hefur unnið að rannsóknum og hag-
nýtingu á jarðhita. Þá hefur Steingrímur verið mjög
áhugasamur og afkastamikill við þýðingar erlendra
tækniorða og myndun íslenzkra nýyrða í tæknimáli, og