Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Page 33

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Page 33
TlMARIT VFl 1960 27 HEIMILDARRIT Dietrich, G., 1957: „Schichtung und Zirkulation der Irminger-See im Juni 1955". Ber. Dt. Wiss. Komm. Meeresforsch. 14. Krauss, W. 1958: „Temperatur, Salzgehalt und Dichte an der Oberfláche des Atlantischen Ozeans". Wiss. Ergeb. d. Dt. Atl. Expd. „Meteor" 1925—1927, 5. Krabbe, Th., og Sæmundsson, Bjarni, 1929: „Nokkrar athuganir um áhrif tréætu á bryggju í Hafnarfirði 1928—1929". Tímarit VFl, 14. árg. bl. 41—48. Smed, J. 1943: „Annual and Seasonal Variations in the Salinity of the North Atlantic Surface Water". Rapp. et Proc. Verb. 112. Sæmundsson, Bjarni, 1943: „Sjórinn og Sævarbúar", Reykjavík. M DAGINN OG VEGINN Flutt í Ríkisútvarpið 27. júní 1960. Fyrir nokkru var þess getið í fréttum, að Geodætisk Institut í Kaupmannahöfn, þ. e. Landmælingastofnun danska ríkisins, vildi losna við landmælingar Islands og kortagerð. Má af því ráða, að við Islendingar höfum verið full sinnulitlir um þessi mál, og ýmsir hafa vafa- laust hugsað, að við ættum enga menn, sem færir væru um að taka að sér verkið. Því er þó ekki þannig varið. Landmælingar Islands hafa lengst af verið aukastarf fyrrverandi vegamálastjóra og í rauninni aðeins nokk- urs konar útibú frá Landmælingastofnun Dana. Hins vegar hafa landmælingar á vegum Islendinga sjálfra farið fram hjá ýmsum opinberum aðilum, án þess að nokkurt heildarskipulag væri á þeirri starfsemi. Má þar nefna Raforkumálaskrifstofuna, Vegamálaskrifstofuna, Vita- og hafnamálaskrifstofuna, Landnámsstjóra, Skipu- lagsstjóra ríkisins og Reykjavíkurbæ auk Landmælinga Islands. Við eigum 6 landmælingaverkfræðinga með fullkomn- ustu menntun, á bezta aldri, 26—45 ára, en það hefur enginn þeirra ráðizt til starfa hjá Landmælingum Is- lands. Einn þeirra sexmenninganna er raunar nýlega fluttur búferlum erlendis eftir að hafa í 5—6 ár reynt að skapa fjölskyldu sinni viðunandi lífskjör hér á landi, og annar hefur sagt upp starfi i sama tilgangi. Og nú spyrja menn vafalaust, hvernig á þessu standi? Orsakirnar eru aðallega tvæi'. Hin fyrri er sú, að laun verkfræðinga eru langt fyrir neðan nauðsynleg þurfta- laun þeirra og aðeins helmingur þess, sem þeim stendur til boða erlendis. Hin síðari er vandamál, sem verkfræð- ingar rekast víða á hérlendis og sætta sig mjög illa við, en það er að lúta stjórn vankunnandi manna á sínu eigin sérfræðisviði. Engum heilvita manni myndi í dag detta í hug að setja heilbrigðismál og sjúkraþjónustu undir stjórn grasalækna eða hómapata, sem réðu síðan eftir atvik- um lærða lækna sér til aðstoðar. Ég efast ekki um, að grasalæknum og hómapötum myndi finnast þessi skipan ágæt, en hún væri algerlega óviðunandi fyrir alla aðra landsmenn og alveg furðulegt fyrirbrigði. En þetta er nákvæm hliðstæða þess, sem víða blasir við í tæknimál- um þjóðarinnar og sem verkfræðingar verða sífellt að glíma við með misjöfnum árangri. Oft hafa verkfræðing- ar farið úr störfum af þessum sökum, t. d. tveir bæjar- verkfræðingar á Akureyri á s. 1. þremur árum, hinn síðari um þessar mundir og mun hann flytjast erlendis til starfa. En Akureyringar fá vafalaust að vera bæjar- verkfræðingslausir fyrst um sinn, því sporin hræða og ólíklegt, að aðrir eða nýir verkfræðingar muni vilja eiga örlög sín undir sömu mönnum. Það er ekki skemmtilegt fyrir sérfróða menn að hafa vankunnandi yfirmenn, sem nóg þykjast kunna og allt betur vita, og fá það á til- finninguna að vera eins og vönduð fjölfræðabók í hönd- unum á litt læsum mönnum, sem síðan kenna bókinni um, þegar þeir geta ekki lesið. Þetta ætti að vera alveg ljóst og nóg um það. En svo aftur sé vikið að Land- mælingum Islands, þá virðist vera sýnileg þörf á að taka þær strax til gagngerðrar endurskipulagningar, setja þær undir yfirstjórn sérfróðs manns, sem jafnframt væri hægt að hugsa sér að gegndi dósents- eða prófessors- embætt í landmælingum við Háskóla Islands. Byggingaframkvæmdir eru nú í fullum gangi eins og undanfarin sumur. Ýmsir hafa vafalaust búizt við, að hinii' háu vextir myndu strax draga úr byggingafram- kvæmdum, en svo virðist ekki hafa orðið enn sem komið er. E. t. v. eru þeir, sem byrjaðir voru á framkvæmdum fyrir vaxtahækkun, að keppast við að ljúka sem mestu, áður en kauphækkanir fylgja í kjölfar hækkandi verð- lags. Húsaleigan mun þá væntanlega hækka líka með hækkuðum byggingarkostnaði, enda þótt hún sé ærið há fýrir. Það er staðreynd, að Islendingar greiða um tvöfalt meira íyrir húsnæði sitt en nauðsynlegt ætti að vera, þeir eyða að jafnaði tveggja vikna launum í húsnæðis- kostnað á mánuði á móti einnar viku launum annars staðar meðal menningarþjóða, sem er almennt viður- kennt að sé eðlilegt, enda þótt dæmi séu um enn minni greiðslur hjá þeim, sem iengst eru á veg komnir, t. d. 5 daglaun í Svíþjóð. Ástæðurnar fyrir þessu eru aðal- lega skortur á tæknilegum undirbúningi bygginganna og skortur á tækni og skipulagi við framkvæmdirnar. Húsin verða þeim mun ódýrari og betri sem þau eru betur undirbúin af sérfræðingum, áður en framkvæmdir hefjast. Kemur þar hvort tveggja til, vinna arkítekta og veikfræðinga, sem skila margföldum hagnaði fyrir hús- byggjandann í lækkuðum byggingai'kostnaði. Ég hef und- ir höndum nákvæmlega sundurliðað kostnaðarverð á byggingu eins vandaðasta íbúðarhúss í nágrenni Reykja- víkur með fullkomnasta frágangi á öllum hlutum, sem var byggt fyrir 2/3 venjulegs verðs íbúðarhúss. Arkítekt skipulagði og teiknaði húsið í öllum smáatriðum en verk- fræðingur teiknaði járn, hitakerfi, rafmagn og aðrar leiðslur og stjórnaði framkvæmdum. Byggingarkostnað- urinn lækkaði frá því sem venjulegt er um sexfalda þókn-

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.