Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Side 37
TÍMARIT VFl 1960
31
mundi starf hans á því sviði nœgja til þess að halda
nafni hans á lofti um ókomin ár. Hann hefur átt sæti
í stjórn VFl samtals um 17 ára skeið og verið formaður
þess þrisvar. Hann hefur ennfremur verið í stjórn
RVFl og formaður þess. Steingrímur er maður félags-
lyndur og hefur sótt fundi félagsins frá öndverðu sem
og fundi í RVFl flestum öðrum betur. Hann hefur verið
áhugasamur um öll mál, er til framfara horfa og látið
þau mjög til sín taka. Steingrimur Jónsson hefur unnið
ötullega að hagsmunamálum félagsins, svo að starfa
hans í þágu þess sem og brautryðjandastarfa hans á
sviði rafmagnsmála á Islandi mun verða minnzt með
þakklæti um langa framtið".
Sem núverandi formanni VFl veitist mér sá heiður
og sú sérstaka ánægja að afhenda þér heiðursfélaga-
skjalið, sem hljóðar þannig: (sjá mynd)
Að loknum lestri þess, sem á skjalinu stendur, af-
henti Jakob Gíslason það heiðursfélaganum, sem í ræðu
á eftir þakkaði þann sóma og vinsemd, sem VFl hefði
sýnt sér.
Heiðursfélagaskjalið er skrautritað í tveimur litum.
Nafn félagsins, heiðursfélagans og orðið heiðursfélaga
er í bláum lit en annað í svörtum. Skjalið er bundið inn
í bláa skinnmöppu, sem ber sömu áletrun og fyrirsögn
þessarar greinar. Það er að stærð svipað og opna í
Tímariti VFl og er ritað á aðra síðu hennar.
Ásgeir Júlíusson, teiknari, skrautritaði ávarpið.
X1 crkfcocbiugafélag 3slauÖ5
ficfiu’ kjörvð yðut’
ÍÍCITCL
rafxuagussijin’i,
Gu?i5\ttsfóla0a síuu
í uiáuclicuaiugai’íkyui {yi’it’ laagt
og íu’illarikí bt’aufryájauóoííarf
uio rafuœáiagu tauósau/orgcragu
og siuðuiuq uiófiótóa vrrkU’gra
og insiuóatcgra rmrafarauuiÍa og
iramlag yÖar tiL íslcuzks tekui—
og uísuiöamáLs.
'Reykjairib, ís.júní 1gOo.
Um fyrstu ráðstefnu íslenzkra verkfræðinga
Á árunum 1956—58 var Sveinn S. Einarsson formað-
ur Verkfræðingafélags Islands. Hann skrifaði af tilefni
45 ára afmælis félagsins 1957 grein i Tímarit VFl, 4. hefti
1957, hugvekju um félagsstarfsemina, þar sem hann setti
fyrst fram hugmynd sína um ráðstefnu íslenzkra verk-
fræðinga. Síðar vakti hann máls á því á stjórnarfundi,
hvort ekki væri rétt að efna til ráðstefnu meðal íslenzkra
verkfræðinga um þýðingarmikil mál, sem þjóðin ætti
við að glíma, og gera þeim þannig skil, að viðhorf verk-
fræðinga til þeirra kæmu skýrt fram. Þessi hugmynd
formanns fékk strax góðan hljómgrunn með öðrum
stjórnarmönnum og þeim félagsmönnum, sem rætt var
við um þessi mál. Þótti rétt að efna þá helzt til ráð-
stefnu, þegar sérstök tilefni væru til, og láta viðfangs-
efnin, hin tæknilegu vandamál þjóðarinnar á hverjum
tíma, ráða, hvenær ráðstefna væri haldin. Varð það að
ráði, að formaður reifaði málið á aðalfundi 20. febrúar
1958 og bar fram eftirfarandi tillögu:
„Aðalfundur VFÍ haldinn 20. febrúar 1958 telur æski-
legt, að félagið efni til ráðstefnu islenzkra verkfræð-
inga á t. d. tveggja ára fresti.
Þar verði tekin til umræðu tiltekin þýðingarmikil
tæknileg vandamál í landinu og þau afgreidd þannig, að
viðhorf verkfræðinga til þeirra komi skýrt fram.
Felur fundurinn stjórn félagsins að skipa nefnd til
nánari athugunar málsins og til þess að undirbúa fyrstu
verkfræðingaráðstefnuna, ef tiltækilegt þykir“.
Fundarmönnum leizt strax vel á þessa hugmynd og
samþykktu tillöguna. Nokkru síðar skipaði stjórn félags-
ins skv. framanskráðri aðalfundarsamþykkt eftirtalda
menn i umrædda nefnd, og skipti hún sjálf með sér
verkum:
Steingrímur Jónsson, form.,
Jakob Gislason, varaform.,
Jón E. Vestdal,
Sigurður Thoroddsen,
Sveinn S. Einarsson.