Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2004, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2004, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ2004 Fréttir DV Dóp í Kópa- vogi Tvö minniháttar fíkni- efnamál komu upp á föstu- dagskvöld og aðfaranótt laugardagsins hjá lögregl- unni í Kópavogi. Lögreglan lagði hald á nokkurt magn af ætluðum fíkniefnum, m.a. í sölupakkningum. Fjórir menn voru hand- teknir, tveir fyrir utan versl- un þar sem ungmenni venja komur sínar og tveir fyrir utan skóla í bænum. Fyrra málið telst upplýst en rannsókn stendur enn í síð- ara málinu. Að sögn lög- reglunnar var helgin í Kópavogi að öðru leyti með rólegra móti. Sex í súpu Sex bílar lentu í árekstrarsúpu á Kringlu- mýrarbraut á móts við Suðurver um miðjan dag á laugardag. Bflstjóri vörubfls stöðvaði eða hægði ferðina svo snöggt að næsti bíll á eftir skall á vörubflnum og síðan koll af kolli þar til sex sátu í súpunni. Engin slys urðu á fólki og skemmdir á ökutækjum minniháttar. Aðeins einn bfll var fjarlægður með dráttarbfl. Fimm stútar Fimm ökumenn voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis í fyrrinótt í umdæmi lög- reglunnar í Reykja- vík. Að sögn lögreglu var helgin fremur ró- leg en eitthvað var um minniháttar pústra í miðbænum. Töluverð veisluhöld voru víða í borg- inni og lögregla þurfti að fara samkvæmt beiðni í heimahús og biðja íbúa um að lækka hávaða í tónlist og halda sig innandyra en ekki úti í garði eða á svölum eft- ir miðnætti. Ragnar Jónsson sjómaður I Sandgerði. Hvað liggur á? „Það liggur nú ekki mikið á. Ég er bara að dytta að trillunni minni en það hefur veriö ágætis veiði hérna siðustu daga. Jú, svo getur verið að maður kiki aðeins á sjó- mannadagshátíðina á eftir. Annars þýðir ekkert annað en að vera rólegur. Mér sýnist pólitíkusunum liggja meira á. Þeir eru nú komnir útí eitthvað rugl; þeir hefðu frekar átt að láta þjóðina kjósa um kvótakerfið en þessi fjölmiðla- lög. Það er hræðilegt að sjá hvað hefur gerst í sjávarút- vegi. Hvernig kvótinn hefur færst á fárra manna hendur." Irine Finn, 38 ára blökkukona meö íslenskan ríkisborgararétt, var stöövuð af lög- reglunni og sektuð fyrir aö aka án ökuskírteinis og með biluð ljós. Hún segir hegð- un lögreglunnar einkennast af kynþáttahatri. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn mælir með þvi að settar verði eftirlitsmyndavélar og upptökutæki í bila lögregl- unnar til að koma í veg fyrir misskilning. r Asakan r um rasisma kala Lögreglan í Reykjavík íhugar að setja myndavélar og upptöku- tæki í bfla til að verja sig gegn ásökunum um kynþáttahatur. Geir Jón Þórisson segir erfitt fyrir lögregluna að bera hönd fyrir höfuð sér. Þeir séu einfaldlega að framfylgja breyttum reglum. „Þeir komu svona fram við mig því ég er svört," segir Irine Finn, 38 ára gömul blökkukona, sem hefur búið á íslandi síðustu fimmtán ár. Irine er gift íslendingi og á tvö börn. Hún var stoppuð af lögregl- unni í miðborg Reykjavíkur þegar hún var á leiðinni heim úr teiti hjá vinkonu sinni en hafði ekki bragð- að áfengi. Lögreglan sektaði hana fyrir að vera án ökuskírteinis og með bilaðan ljósabúnað en upp úr sauð þegar Irine var þráspurð hvort hún væri íslenskur rfldsborgari. „Ég spurði hvaða máli það skipti,“ segir Irine. „Lögreglumað- urinn hafði tekið debetkortið mitt en vildi ekki láta mig fá það nema ég svaraði spurningunni. Ég hef átt heima hérna í fimmtán ár og þarf ekki að jtr^ sanna fyrir nein- um að ég sé ís- lenskur rflds- borgari. | Þeir spurðu mig bara af því ég er svört." Sýndi mótþróa Að endingu lét lögreglan Irine fá debetkort sitt til baka en í skýrslu um atburðinn kemur fram að Irine hafi sýnt mótþróa við handtökuna. Hún fékk 15.000 króna sekt en sam- kvæmt upplýsingum frá lögregl- unni er 5000 kr sekt fyrir að vera án ökuskírteinis og 10.000 kr sekt fyrir bilaðan ljósabúnað. Irine segir að- gerðir lögreglunnar hins vegar bera vott um rasisma; eittlrvað sem hún sé orðin nokkuð vön í samskiptum sínum við yfirvöld. Geir Jón Þórisson, yfírlögreglu- þjónn Lögreglunnar í Reykjavík, segir þetta ekki í fyrsta skipti sem atburðir sem þessi komi upp. „Við getum illa ráðið við þetta. Reglurn- ar á Schengen-svæðinu gera það að verkum að eftirlit með landamær- um er orðið innan landamæranna. Þannig ber lögreglumönnum að kanna skilríki þeirra sem við teljum vera útíendinga." Varðandi ásakanir Irenu um rasisma segir Geir Jón að útíend- ingar sem labbi um á götum úti geti alltaf búst við því að vera spurðir um skilríki. Hann segir marga bregðast illa við. Sérstak- lega þá sem hafa búið hér lengi. „Þetta er hins vegar veruleikinn sem við búum við. Það er erfitt fyr- ir lögregluna að sjá hver er með ís- lenskan rfldsborgararétt og hver ekki. Eina leiðin til að komast að því er að spyrja." Fólk trúir alltaf að lögregl- an sé rasisti Á síðustu vikum hafa margir kvartað undan kynþáttafor- dómum hjá tollvörðunum á Irine Finn „Þeir komu svona frar. migþvíégersvc „Ég er sektuð fyrír að vera svört. Það er eins og ég sé hryðjuverka- maður Leifsstöð. Sýslumaður hefur brugðist við með því að setja upp eftirlitsmyndavélar sem munu fylgjast með starfsmönnum. Geir Jón segir það lfldegt að lögreglan í Reykjavík fari svipaða leið og setji myndavélar og upptökutæki í bfla. „Við eigum svo erfitt með að verja okkur," segir Geir Jón. „Fólk trúir því alltaf að lögreglan sé ras- isti og auðvitað getur okkur orðið á. Við erum samt bara að fylgja þeim reglum sem okkur eru settar og það er erfitt að komast hjá árekstrum." Irena Finn vildi koma eftirfar- andi skilaboðum tfl lögreglunnar: „Ég er sektuð fyrir að vera svört. Það er eins og ég sé hryðjuverka- maður. En þið ættuð að muna hvað kom fyrir bandarísku fangaverðina í írak sem pyntuðu fangana í Abu Ghraib. Rasismi verður ekki liðinn. simon@dv.is Snjóbrettaslys á Snæfellsjökli Lögreglu- og skattrannsókn samhliða TF-LIF sótti slasaðan snjóbrettamann af jökli Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- LIF, sótti í gærdag mann sem lent hafði f snjóbrettaslysi á Snæ- feUsjökli, að því er ffam kemur í tU- kynningu frá LHG. Talið var að mað- urinn hafi orðið fyrir bakmeiðslum. Um helgina hefur fjöldi erlendra og innlendra snjóbrettakappa verið á jöklinum að keppa í svoköUuðu Big Jump-móti. Samhliða hefur íslandsmeist- aramótið á snjóbrettum farið fram. í tilkynningu LHG segir að læknir á Ólafsvík hafi haft samband við stjórnstöð LHG um hádegisbUið og óskað eftir þyrlu í viðbragðsstöðu. Hann var þá sjálfur á leið á slysstað. Vegna meiðsla mannsins var ekki talið ráðlegt að flytja hann landleið- ina á sjúkrahús. TF-LIF fór í loftið um hálftvöleytið og var komin tíl Snjóbrettakappar TF- LIF, sótti I gærdag mann sem lent hafði I snjó- brettaslysi d Snæfellsjökli. Reykjavíkur með hinn slasaða um klukkutíma síðar. Hann var fluttur á Landspítalann í Fossvogi. DV greindi frá þessu móti í helg- arblaðinu en það er haldið á vegum Brettafélagsins og keppa bæði strák- ar og stúlkur í íþróttinni. Ætíunin er að hafa þetta mót árlega í framtíð- inni en jöklar landsins eru taldir vera tUvaldir keppnisstaðir. Skattrannsókn skilar Baugsskýrslu Skattrannsóknarstjóri hefur skUað Baugi Group frumskýrslu um skatt- rarmsókn á fyrirtækinu, sem hófst með húsleit og því að lagt var hald á gögn fyrirtækisins þann 17. nóvem- ber á síðasta ári. Hreinn Loftsson, stjómarformaður Baugs Group, segir að fyrirtækið hafi nú þrjár vikur tíl að nýta andmælarétt sinn vegna niðurstöðunnar og hann vUl að svo stöddu ekki ræða þau efnisatriði sem fram koma í skýrslunni. Rannsóknin nær yfir fimm ára tímabU í rekstri Baugs, frá ár- inu 1998 tíl ársins 2002. „Við munum nýta okkur and- mælarétt okkar og munum fara yfir þessa skýrslu á næstu vikum," segir Hreinn. „Fyrirtækið fær tæki- færi til að gera athugasemdir við, og koma með ábendingar um, ýmis at- riði sem finna má í skýrslunni. Það er svo spurning tíl hvaða breytinga slflct leiðir. Þessi fmmskýrsla er ekki endanleg niðurstaða af hálfu embættis skattrann- sóknarstjóra." Eins og fram hefur komið í fréttum hefur em-bætti ríkslögreglustjóra haft Baug tU rannsóknar í tvö ár án niður- stöðu. Hreinn seg- ist telja að rann- sókn skattyfirvalda á sínum tfína sé sprottin út úr lög- reglurannsókn- inni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.