Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2004, Síða 19
MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ2004 79
DV Sport
Ekkert hægt að gera Árni Gautur Arason
horfír eftir boltanum Imarkiö hjá sér í fjóröa
sinn eftir að Darius Vassell haföi potað
honum framhjá honum. Árni Gautur átti eftir
að fá á sig tvö mörk til viöbótar. Reuters
fengu að athafha sig að vild fyrir
utan teig og ekki skemmdi fyrir að
íslenska liðið mátti vart blása á þá en
það vár með öllu bannað.
Þrír leikmenn í íslenska liðinu
geta borið höfuðið hátt - Indriði
Sigurðsson, Eiður Smári Guð-
johnsen og Heiðar Helguson. Aðrir
leikmenn voru vart með í þessum
leik. Varnarmennirnir voru í engum
takti, dekkuðu lítið sem ekkert og
náðu ekki einu sinni að þvælast fyrir
ensku sóknarmönnunum. Miðju-
mennirnir voru allt of langt frá
vörninni, sldluðu engri varnarvinnu,
skiluðu bolta illa frá sér, unnu sér
ekkert svæði og voru lengi að
athafna sig. Heiðar Helguson var
nánast einn í slagnum í sókninni en
lítið sást af Helga Sigurðssyni í
leiknum. henry@dv.is
STÆRSTU TÖPIN
(slenska karlalandsliðið hefur
aðeins tvisvar tapað stærra í
vináttulandsleik en stærsta tapið
var gegn frændum okkar Dönum
fyrir 37 árum síðan. Það fræga tap
er einnig stærsta tapið í öllum
landsleikjumfrá upphafi.
Stærstu töpin hjá Islandi í
-12 vináttulandsleikjum:
2-14 Danmörk, 23. ág. 1967
-6 1-7 Slóvenía 7.feb. 1996
-S 0-5 Vestur-Þýskaland 3. ág. 1960*
1-6 Brasilía 8. mars 2002
1-6 England 5.júnf2004
* Helmalelkur
Enginn venjulegur táningur Wayne Roone skorar hér glæsilegt mark sem kom Englandi 13-1. Þetta var annaö mark þessa 18 ára gutta frá
Everton og hans fimmta landsliðsmark í aöeins þrettán leikjum. Pétur Marteinsson kemur engum vörnum viö. Reuters
Upphafið Frank Lampard kemur Englendingum á bragðiö á 25. mínútu þegar hann skoraði meö skoti fyrir utan teig. Bræöurnir Jóhannes Karl
og Þórður Guðjónssynir eru ofseinir en Paul Scholes fylgist vel með öllu. Reuters
SJÖ LEIKIRÁN SIGURS
fslenska landsliðið hefur nú leikið
sjö landsleiki í röð án þess að vinna
en liðið vann þrjá fyrstu leikina
undir stjórn þeirra Ásgeirs
Sigurvinssonar og Loga Ólafssonar
en síðan þá hefur lítið gengið.
Sjö leikir í röð án sigurs:
6. september 2003 fsland-Þýskaland 0-0
11. október 2003
Þýskaland-ísland 3-0
19. nóvember 2003
Mexíkó-fsland 0-0
31.mars2004
Albanfa-lsland 2-1
28. aprfl 2004
Lettland-fsland 0-0
30. maf2004
(sland-Japan ^ÍBÉÉÍ
5.júnf2004
England-ísland 6-1
Samantekt:
Leikir 7
Sigrar—Jafntefli— Töp 0-3-4
Markatala 4-14 (-12)
Ekki eitt enn Wayne Bridge skoraöi fímmta markiö og minnti á sig en hann var einn afniu
leikmönnum Englendinga sem komu inn á i hálfleik. Reuters
Hefðum viljað
gera betur
Hermann Hreiðarsson,
varnarmaður íslenska
liðsins, var á því að sigur
Englendinga hefði verið of
stór miðað við gang leiks-
ins. „Við byrjuðum vel og
manni leið vel á vellinum
en þeir skora síðan úr
nánast öllum færum sfnum
í fyrri hálfleik. Við erum
ekki nógu þéttir í vörninni
og við verðum bara að
finna út úr því og eiga þetta
við sjálfa okkur. Og það er
ekki spurning að við eigum
eftir að laga þetta og við
eigum líka eftir að læra af
reynslunni sem við fengum
í þessum leik. En auðvitað
erum við hundfúlir að hafa
ekki gert betur.“
Urðum þreyttir
Arnar Grétarsson,
miðjumaður íslenska liðs-
ins, sagði að meginmun-
urinn á liðunum hafi verið
þreytan. „Mér fannst við
vera að spila fi'nt í fyrri
hálfleik, við fengum fullt af
hornspyrnum og tvö af
þeirra mörkum komu úr
óverjandi langskotum. í
seinni hálfleik koma þeir
með nýtt lið, óþreytta
leikmenn sem vilja sanna
sig fyrir EM og það var
mjög erfitt. Við vorum hins
vegar orðnir þreyttir og því
fór sem fór. En það var frá-
bært að spila þennan leik.
Góð stemning, frábær
völlur og maður heyrði vel í
íslensku áhorfendunum."
Okkurvar
refsað
„Þetta var mjög furðu-
legur leikur og mér fannst
6-1 engan veginn gefa rétta
mynd af þessu," sagði
‘ Tryggvi Guðmundsson í
samtali við DV Sport eftir
leikinn. „Við vorum
kannski ekki að skapa jafn
mikið af færum en vorum
alveg jafn mikið með
boltann, alla vega í fyrri
hálfleik. Okkur er einfald-
lega refsað fyrir öll mistök.
Þetta var bara slæmur
dagur hjá okkur, því
miður," sagði Tryggvi.