Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1974, Blaðsíða 4
FRÁ SÉRDEILDUM VFl
Frá RVFl
Aðalfundur RVFl var haldinn 13. mars s.l. I stjórn félagsins voru kosnir:
Ólafur Tómasson, formaður.
Gísli Júlíusson, stallari.
Kári Einarsson, gjaldkeri.
Guðmundur Ólafsson, ritari.
Að lokinni kosningu stjórnar og nefnda hélt Hörður Frímannsson fyrirlestur um
„Fjögurra rása hljómflutningstseki" (Quadrophonie).
Hinn 8. maí s.l. var haldinn fundur hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar
(SKÝRR), þar sem Gunnar Ingimundarson fjallaði um „Nýjungar í tölvutækni
og tölvunotkun".
Hinn 30. ágúst s.l. var fundur haldinn hjá RVFl, og talaði J. R. Veastad frá norsku
símastjórninni um: „Planlagt anvendelse av telesatelitsystemer i Norge“, einkum
með tilliti til nauðsynlegra fjarskiptasambanda við olíuturna í Norðursjó.
Hinn 20. nóv. s.l. var haldinn fundur, þar sem Gústav Arnar ræddi um ,,Ný
símasambönd við útlönd: Tæknilegir möguleikar".
Urðu eldheitar umræður um, hvort gerfihnattasambönd væru tímabær fyrir
Islendinga.
Voru flestir þeirra, sem tóku til máls eindregið og afdráttarlaust þeirrar skoðunar
að svo væri. — KJ
FRÁ TÍMARITI VFÍ
Eftirmenntun
Undanfarin ár hefur nokkuð verið rætt um eftirmenntun íslenskra verkfræðinga
innan VFl.
I kjarasamningi milli Félags ráðgjafaverkfræðinga og SV eru ákvæði um
eftirmenntun og sérstakt samkomulag er um eftirmenntun á milli Reykjavíkurborgar
og SV. Þá er á vegum VFl starfandi sérstök eftirmenntunarnefnd, sem kannar
hvernig þessum málum verði best fyrir komið innan félagsins í framtíðinni.
Skrifstofu VFl berast reglulega upplýsingar um eftirmenntunarnámskeið hjá
hliðstæðum félögum á Norðurlöndum, og liggja þessar upplýsingar ætíð frammi
á skrifstofunni.
Nú nýlega hafa borist upplýsingar um þau námskeið Dansk Ingeniörforening og
Ingeniör-Sammenslutningen, sem haldin verða fyrri hluta árs 1975. Er þar um að
ræða mikinn fjölda námskeiða, sem sum hver gætu vafalaust verið gagnleg
íslenskum verkfræðingum.
Kostnaðar vegna er þó varla hugsanlegt, að verkfræðingar héðan geti gert sér
ferð gagngert til að sækja slík námskeið. Hins vegar er ekki ólíklegt að koma
megi á samvinnu milli VFl og norrænna verkfræðingafélaga um námskeið hér ef
nægilegur áhugi er fyrir hendi.
Menn eru því hvattir til að kynna sér hvað á boðstólum er hjá kollegum okkar
á Norðurlöndum á þessu sviði. — PL
FRÁ VERKFRÆÐI- OG RAUNVlSINDADEILD H(
Kennsluár verkfræði- og raunvísindadeildar hófst 4. september s.l. Á þessu
hausti hafa 69 nýstúdentar innritast í verkfræðigreinar. Þeir skiptast í hinar ýmsu
greinar verkfræðinnar sem hér segir (tölur í svigum eru frá innritun 1973).
Byggingaverkfræði 26 (22)
Véla- og skipaverkfræði 12 (15)
Rafmagnsverkfræði 20 ( 9)
Eðlisfræði 3 ( 2)
Efnaverkfræði 8(3)
Alls 69 (51)
lnnritaðir stúdentar í annað nám í verkfræði- og raunvísindadeild eru nú
sem hér segir: