Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1974, Blaðsíða 11
og annar dælubúnaður um 0,1 milljón
tonna.
Þegar hraunið rann fram þann 23.
mars, varð hlé á dælingunni í u.þ.b.
tvo daga á meðan verið var að koma
leiðslum fyrir á ný, en síðan var
dælt um 200 1/s í einn sólarhring á
milli framhlaupa.
Þann 28. mars var dæling hafin
á ný, og eftir það var dælt stans-
laust þar til á 168. degi gossins, er
dælingu var hætt. Á þessu tímabili
er áætlað, að samtals hafi verið dælt
um 5,7 milljónum tonna af sjó, eftir
að hraun tók að renna yfir bæinn,
og ef allt er talið, samtals 6,2
milljónum tonna.
Eins og sjá má á línuritinu, náði
dæling hámarki þann 4. apríl, þegar
búið var að tengja allan dælubúnað,
sem frá Bandarikjunum kom. Þetta
magn fer smám saman minnkandi.
Stafar það aðallega af því, að stöð-
ugt var verið að færa leiðslurnar
lengra inn á hraunið, nær gígnum,
þannig að þrýstingsfall i pípunum,
svo og hæðaraukning, olli minni af-
köstum.
Um miðjan maí var kælingu frá
sjó hætt, og þá minnkaði magnið um
100 1/s.
Upp úr miðjum júní var ákveðið
að stöðva kæiingu í þrepum, þannig
að vikuleg var ein eining tekin úr
sambandi og vélar og dælur hreins-
aðar. Fyrstu einingarnar, sem stöðv-
aðar voru, dældu tiltölulega lengst
upp á hraunið, og þar af leiðandi
hlutfallslega minna magni en þær,
sem nær bænum lágu og síðar voru
stöðvaðar.
Mynd (2) sýnir, hversu miklu af
sjó var dælt á hraunið á mismun-
Ljósm.: Valdimar K. Jónsson.
Mynd 2
TlMARIT V F I 1974 — 73