Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1974, Qupperneq 12
andi stöðum. Þetta er nokkurn veg--
inn samfelldur flötur, u.þ.b. 0,45 fer-
kílómetrar, og samsvarar því, að um
9 m þykkt lag af hrauni hafi verið
kælt niður í 100°C að meðaltali.
Þetta gefur þó ekki fyllilega rétta
mynd, því að sumir staðir voru
kældir meira en aðrar. Svæðið fyrir
ofan fiskiðjuverin og hraunfláki rétt
norðan við gíg voru áberandi mest
kæld. Einnig var talsverðu magni
dælt allt umhverfis ,,Flakkarann“,
en hann var lengi á lítilsháttar hreyf-
ingu, og var mikið gufuuppstreymi
við hann sunnanverðan.
Til gamans má geta þess, að salt
hefur sest í hraunið við dælinguna.
Þar sem mikið er af hvítum skellum,
eru þessa greinileg merki. Má reikna
með, að um 220 þúsund tonnum af
salti hafi verið dælt á hraun.
Pípur og dreifikerfi
Þegar kæling hófst, voru í fyrstu
notaðar 6" álpípur, sem fljótlegt var
að tengja saman, og voru þær lagð-
ar meðfram hraunkantinum. Á
nokkrar þeirra voru smíðaðir stútar,
sem brunaslöngur voru tengdar við.
Með komu dæluskipsins Sandeyjar
í byrjun mars var farið að leiða
pípur upp á glóandi hraunið, og var
vatninu dælt út um endann á píp-
unni auk þess, sem látið var leka
með samskeytum. Þessar pípur voru
mjög þungar og ósveigjanlegar, og
við hreyfingu á hrauninu hætti þeim
til að brotna.
Upp úr miðjum mars tóku að ber-
ast plastpípur frá Reykjalundi, 225
mm í þvermál, og voru þær fyrst not-
aðar frá Sandey upp eftir norðaust-
urenda hraunsins, sem rann fram 23.
mars. Tókst að dæla þar 200 1/s af
sjó í u.þ.b. sólarhring, áður en
hraunið rann fram aftur þann 25.
mars, en það svæði, sem kælt var,
stóð fast fyrir. Er hægt að sjá á
loftmyndum, hvernig hraunstraum-
urinn sveigði hjá því.
Mynd (3) sýnir yfirlit yfir þær
leiðslur, sem notaðar voru við kæl-
inguna, og eru þær samtals yfir 12
km. Rúmlega % hlutar af þessum
pípum voru plastpípur frá Reykja-
lundi. Reyndust þær einstaklega vel,
og er óvíst, hvernig til hefði tekist,
ef þær hefðu ekki verið fyrir hendi.
Plastpípurnar (140, 225 og 315
mm) komu í 15 metra lengjum, sem
soðnar voru saman í 100—200 metra
lengjur niðri á Básaskersbryggju.
Þessar lengjur voru síðan dregnar á
DAGAR PRÁ UPPHAFT GOSS
28-3
LENGD
Mynd 3
74 — TÍMARIT VFÍ 1974