Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1974, Page 15

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1974, Page 15
"fji Eru þess dœmi, að myndast hafi 5—6 m djúpar gjár, um 5 m á breidd, þar sem kælt var. Hraun hrannaðist upp fyrir ofan kælingarblettina, og mynduðust fellingar og sprengdu sumstaðar upp hraunskorpuna, sem hafði myndast. Menn vöndust þessum erfiðleikum furðu vel, og urðu sumir býsna leiknir í að stikla á hraunnibbum í gufu og reyk og komast þannig ferða sinna. Varð þannig til sveit harðgerra manna, sem í daglegu tali gekk undir nafninu „Sjálfsmorðs- sveitin". Engin alvarleg slys urðu á mönn- um þann tima, sem kæling stóð yfir, þrátt fyrir mjög svo hættulegt starf. Ljósm.: Matthías Matthíasson. Áhrif kælingar á hitastig í hrauninu Boraðar voru fimm borholur í nýja hraunið, fjórar á stöðum, sem kæld- ir höfðu verið misjafniega mikið, og ein á stað, sem ekki var kældur. Lega holanna er sýnd á mynd (5) og nið- urstöður hitamælinga í borholum á myndum (6) og (7). Á mynd (5) er einnig sýnd lega skurða, sem grafnir voru eftir endilangri Helgafeilsbraut til að koma í veg fyrir, að vatnsgufa breiddist lengra út eftir gamla jarð- laginu. Þann 12. maí kom bor frá Orku- stofnun til Vestmannaeyja. Gekk borunin mjög vel, og voru boraðar samtals fimm 10—25 m djúpar hol- ur í hraunið og þrjár holur í bæjar- landið vestan hraunkantsins, þar af TlMARIT V F I 1974 77

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.