Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1904, Qupperneq 35
vild. Óvinir hans hafa borið honum á hrýn óþjóðrækni
og skort á ættjarðarást og reynt að draga hann niður í
sorpið. Er það engin furða, þó að slík meðferð hafi stund-
um gert geð hans beiskt og biturt. Það er og sannast að
segja, að honum hefur stundum orðið á að fara of geystur,
og særa þær tilfinningar, sem sízt skyldi. En hvað sem
því líður, munu nú engir nema svæsnustu andstæðingar
hans bera brigður á, að hann ann landi sínu og þjóð og
vill auka menning hennar og glæða þjóðernistilfinninguna.
Haun er grannvaxinn og vart meðalmaður á hæð.
A yngri árum hans var hárið mikið og hrafnsvart, en er
nú grátt fyrir hærum. Hann er toginleitur, ennið mikið
og hátt með djúpum rúnum. Andlitið er ekki frítt, en
fjörmikið. Þegar liann talar, eru svipbrigðin tíð í andliti
hans og endurspegla hverja geðshræring, er rís í eldhug-
anum og fær orðbúning á vörum hans.
Svo árum skiptir hefur Georg Brandes verið möndull
sá, er fagrar bókmenntir Norðurlanda hafa snúizt um og
allir þeir, sem unna fegurð og frjálsri rannsókn í listum
og vísindum, munu óska þess, að hann eigi enn eptir að
gegna í mörg ár köllun sinni sem andlegur ljósgjafi.
Þorleifur H. Bjarnason.
V. H0rup.
Þegar Horup ljezt 15. febrúarmánaðar 1902, áttu Dan-
ir að sjá á bak hinum mikilhæfasta og frjálslyndasta
blaðamanni og stjórnmálaskörung, er þeir áttu. I meir en
fjórðung aldar harðist hann á móti gjörræði og yfirgangi
ófyrirlátsamrar og óviturrar stjórnar, án þess nokkru sinni
að roðrast eða láta hugfallast. en þegar sigurinn var loks
unninn og stefna sú, er hann hafði barizt fyrir lengst æv-
innar, var orðin ofan á, kippti dauðinn lionum burtu.
Viggo Lauritz Bentheim Herup var fæddur 22. mai
184-2 í þorpi nokkru nálægt Frederiksværk á Sjálandi.
Faðir hans var barnakennari. Herup tók 1861 stúdents-
(31)