Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1904, Síða 36
próí’ og 6 árum síðar hið meira lögfræðipróf' með bezta
vitnisburði. Hann hafði enga löngun til að verða embættis-
maður, en aptur á móti bneigðist hugur hans snemma að
stjórnmálum og fyllti hann þar flokk hinna frjálslyndu
manna. Hann hafði um nokkur ár ofan af fyrir sjer með
því að húa lögfræðinema undir próf, er stunduðu dönsk
lög, og gerðist 1873 aðstoðarmaður við „Morgenbladet“,
málgagn vinstri manna, er þá var nýstofnað í Kaupmanna-
höfn. Um sama leyti varð hann t'ormaður í fjelagi nokkru,
er starf'aði einkum að því að útbreiða stjórnmálaskoðanir
vinstrimanna í höfuðborginni og berjast fyrir þeim. Vinstri
menn voru þá mjög fámennir í Kaupmannahöfn og blað
þeirra átti fyrstu árin ervitt uppdráttar, því að þjóðernismenn
rjeðu þá lögum og lofum. Horup duldist ekki, að þeir
voru orðnir þrándar í götu allrar framsóknar og hóf ó-
trauður haráttu við þá og átti með blaðamennsku-yfirburð-
um sínum mestan og beztan þátt. í að leggja þá að velli.
Iforup var 1876 kosinn þingm. í Kogekjördæmi og var
jaf'nan endurkosinn, þrátt fyrir megnustu mótspyrnu
af hálfu hægrimanna, þar til er hæstarjettarmála-
flutningsmaður Alberti, sem nú er dómsmálaráðgjafi og
Islandsráðgjafi, gat steypt honum 1892 með tilstyrk milli-
flokksmanna og hægrimanna. Eptir það vildi Horup aldrei
gera kost á sjer til þingsetu, en studdi þó jaf'nan drengi-
lega flokk sinn, er honum þótti hann vera á rjettri leið.
Hann gat sjer brátt mikið traust flokksbræðra sinna
bæði innan þings og utan og 1877 var honum f'alið að
sækja fyrir ríkisrjetti mál á hendur nokkrum ráðgjöf'um,
er vinstrimenn töldu að hefði gert sig seka í ýmsum
misferium. Horup leysti starf þetta af hendi með miklum
skarpteik og dugnaði, þó að hann hefði lítið sem ekkert
fengizt við málarekstur; en málsóknin kom fyrir ekki og
ráðgjafarnir voru allir sýknaðir, eins og við var að húast.
Meðan Iloruji sat. á þingi, var hann lengst af í fjárlaga-
nef'nd; hann var og í mörg ár annar varaforseti þingsins
og endurskoðari ríkisreikninganna, kosinn afþinginu 1879
— 1892. Um nokkur ár var hann oar C. Bers forineiar hinna