Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1904, Qupperneq 39
fjelaginu. Það sýnir meðal annars afstaða hans til lög-
jafningja og hið rnikla traust, er þeir báru til hans. Það
má og telja góðan vott um frjálslyndi hans, að enginn vinstri
ráðgjafanna dönsku mun hafa tekið hetur í heimastjórnar-
kröfur okkar Islendinga haustið 1901 eða tjáð sig fúsari
að sinna þeim en hann.
Horup var mæta vel máli farinn, en honurn lá lágt
rómur og veitti því örðugt að láta til sín heyra í miklu
íjölmenni. Ræður hans og hlaðagreinar eru frúbærar að
búningi, tilþrifum, íjöri og frumleik. Hvort sem hann
ristir þar andstæðingum sínum napurt níð eða dregur þá
sundur í háði eða snertir hjörtu lesenda og áheyrenda
með því að víkja að því, sem þeim er ríkast í sinni, þá
er snildin si og æ söm og jöfn.
Hann var skýrari, þrekmeiri og stefnufastari en flestir
aðrir stjórnmálamenn Dana og ljet aldrei vináttu, verald-
ar-hagsmuni eða ótta fyrir mönnum aptra sjer frá að fylgja
sannfæringu sinni. En einmitt þess vegna er tjón það, er
ættjöroin beið við fráfall hans, svo ómetanlegt.
Þorleifur H. Bjarnason.
Árbók íslands 1902.
a. Ýmsir atburðir.
Janúar 2. I milliþinganefnd í fátækramálum voru skipað-
aðir: Páll amtm. Briem, Jón landritari Magnússon og
Guðjón bóndi Guðlaugsson á Ljúfustöðum.
— s. d. Bátur með 4 mönnum frá Brimvöllum undir Jökli
fórst í fiskiróðri.
— 4. Ögm. b. Gíslas. á Laugarási í Arn.s. varð hráðkvaddur.
— 6. Ofsaveður af úts.gekk yfir Suðurland, urðu talsverðar
skemmdir á húsum og skipum í Reykjavík, Hafnarfirði
og austanfjalls.
— 12. Byrjaði nýtt blað í Rvík, „Auglýsarinn11. Úigef.:
i ldór bókb. Þórðnrson.
'35)