Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1904, Qupperneq 54
Apríl 15. Sipjagin, ráðherra á Rússl. myrtur (með skoti).
Maí 5. Francis Bret Harte, rithöfundur og skáld í Yestur-
heimi (62).
— 6. Sampson, frœgur hershöfðingi í Bandaríkjunum (62).
— 12. Severo loftfari; ferst á loftsigling nálægt París (56).
— 25. Benjamin Constant, málari í París.
Júlí 4. Hervé Faye, frægur stjarnfræðingur franskur (88).
Agiist 8. Lucas Meyer, hershöfðingi Búa (51).
Sept. 12. Rosenthal, frægur skákmaður í París.
— 18. Konrad Maurer háskólakennari í Múnchen (79).
— 29. Emile Zola, frægasta skáld Frakka, kafnar í gas-
lofti (62).
Okt. 28 Christian Botha, einn af hershöfðingjum Búa.
Nóv. 22. Alfred Krupp, frægur fallbyssusmiður þýzkur (48).
B. Sv.
Manntal
í Reykjavík og á landi Reykjavíkurkaupstaðar fyrir tveimur ölduin (1708).,
Fyrir tveim öldum var Reykjavík eins og hver önnur
jörð á Islandi. Þar bjó einn bóndi og nokkrar bjáleigur
fylgdu jörðunni. Svipað þessu var háttað um aðrarjarðir
þar í grenndinni, sem höfuðstaður landsins nú stendur á
eða lagðar eru undir hann. Þær mynduðu þá eigi sveitar-
fjelag fyrir sig, heldur voru þær allar í Seltjarnarnes-
hreppi og lengi fram eptir. Yerzlun var þá úti í Eífersey
eða í „Hólmsins höfn“ sem kallað var; var hún rekin
því nær eingöngu á sumrin, en þó var þar venjulega ein-
hver danskur verzlunarmaður á vetrinn (,,eptirlegumaður“)
til þess að gæta verzlunarhúsanna og eigna verzlunarinn-
ar eða annast það, er belzt þótti þurfa.
Rjett eptir miðja 18. öldina (1752) voru verksmiðjur
reistar í Reykjavík, og voru þær fyrsti vísirinn að „bæ“
þar á jörðinni. Mörgum mun nú þykja fróðlegt að sjá,
hvernig byggð var háttað fyrir tveim öldum þar sem nú
er höfuðstaður landsins, og fyrir því set jeg hjer manntal
(50)