Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1904, Page 60
Fjártjónið má meta til peninga, en hið siðí'evðislega og
andlega tjón eigi. En jeg fyrir mitt leyti liygg þó, að
andlega spillingin hafi orðið hrndsmönnum miklu skaðlegri
en fjártjónið: úr henni er miklu erfiðara að bæta. Til
þess þarf miklu meiri kjark og krapt og þol. og til þess
þurfa augun á öllum að opnast.. Állir þurfa að sjá, að
engin vara er of góð handa kaupmönnum og að því betri
sem varan er, því rneiri er hagur bænda og alls landsins.
Allir þurfa að skilja og sjá, að því áreiðanlegri sein hver
einstaklingur er i öllum viðskiptum, því greiðari og betri
verða öll verzlunarviðskipti á landinu og því meiri hag-
sæld landsmanna.
Það var mannlegt, að bændur og allur almenningur
vildu hefna sín á einokunarkaupmönnum, en þekking lands-
manna á verzlunarmálum var harla lítil og óvildin gerði þá
hlinda. Þeir sköðuðu eflaust sjálfa sig og niðja sína mest, þá
er þeir sviku vöru sína og fannst allt vera nógugott í kaup-
manninn. Nú er þekking Islendinga f'arin að aukast mikið á
verzlunarmálum, en þó vantar eins mikið á, að hún sje komin
í viðunanlegt horf eins og á það, að sjált' verzlun landsins
sje komin i gott lag. En verzlun landsins kemst ekki fyrr
i rjett og gott lag, en Islendingar sjálfir hafa fengið þekk-
ingu, þrek og vilja til þess að hrinda henni í lag. Er Is-
lendingum hollást að treysta sjálfum sjer til þess, en eigi
útlendum kaupmönnum.
Yms dæmi mætti nefna, sem sýna hvernig þekking Is-
lendinga nú á dögum er í verzlunarmálum og hvernig þeir
hafa láiið ginna sig eins og þursa, en hjer skal að eins
nefna eitt dæmi.
Arið 1886 komst hin fyrsta peningaverslun, lancls-
hankinn, á fót á Islandi. Landið á verzlun þessa oghún
þarf' um ekkert 'annað að hugsa en vinna landsmönnum
gagn. Hún þarf eigi að hugsa um að græða, því að ein-
stakir menn eiga engin hlutabrjef í henni og stjórnendur
hennar þurfa því alls eigi að hugsa um að útvega þeim
háa vöxtu af hlutahrjefum, eins og flestallir hlutafjelags-
bankar verða að gera. Verzlun þessari hefur verið stjórn-
(56)