Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2004, Síða 3
W Fyrst og fremst
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2004 3
Smávaxinn stnrhugi
Skyndimyndin
Það var mikil spenna meðal
__________________________ blaðamanna sem biðu eftir að
heyra í Hillary Clinton eftir að
bandaríska þingnefndin hefði fundað með íslensku ráðherrum
í Bláa lóninu í gær. Blaðamannafundurinn sem hefjast átti
klukkan eitt frestaðist um klukkutíma, enginn vissi hvers vegna.
Fjölmiðlafólki var boðið upp á súpu og SS-pylsu á meðan á bið-
inni stóð.
Fulltrúar utanríkisþjónustunnar reyndu margsinnis að fá
blaðamenn, ljósmyndara og kvikmyndatökumenn til þess að
fara út fyrir. Lofuðu því að Halldór Ásgrímsson og öldunga-
deildarþingmaðurinn John McCain sem fór fyrir bandarísku
þingnefndinni kæmu út og svöruðu spurningum blaðamanna.
Tilkynnt var að Hillary Clinton færi beint upp í bíl og kæmi ekki
til með að tjá sig eftir fundinn. Enginn hreyfði sig, allir vildu sjá
Hillary og flestum virúst skítsama hvað herramennirnir tveir
hefðu um fundinn að segja.
Fólkið vildi frekar sjá
forsetafrúna fyrrverandi.
Öryggisverðirnir voru aug-
ljóslega stressaðir og-
reyndu hvað þeir gátu að fá
fjölmiðlaskrílinn til þess að
færa sig út úr byggingunni
þannig að þeim gengi bet-
ur að smygla Hillary út í bíl.
Fjölmiðlaliðið lét sér ekki
segjast og hékk fyrir fram-
an tröppurnar þaðan sem
enginn undankomuleið
var. Fyrstir komu niður
Halldór Ásgrímsson og
John McCain. Þeir þuldu
upp tilbúna frasa sem inni-
héldu inntak fundarins
sem virtist hafa verið frekar
tíðindalítill.
Flestir virtust hafa af-
skrifað frú Clinton sem
sennilega hafði fundið sér
flóttaleið á meðan Halldór og McCain töfðu fyrir fjölmiðlum
með kjaftæði. Skyndilega reyndi pínkulítil kona að skjóta sér út.
Hefði sennilega tekist hjá henni hefðu öryggisverðirnir ekki far-
ið að iða og svitna.
Fjölmiðlafólkið virtist í fyrstu ætla að sýna litlu konunni þá
virðingu að sleppa, án þess að ná af henni tali, þar til Hallgrím-
ur Thorsteinsson, útvarpsmaður með meiru, stökk bókstaflega
í faðm hennar og byrjaði að bauna á hana spurningum. Hall-
grímur stóð í fyrstu einn við hlið Hillary sem virtist ætla að gefa
sér tíma til þess að svara spurningum hans þrátt iyrir að örygg-
isverðirnir væru að fara úr límingunum af stressi yfir athygl-
inni sem litla konan fékk. Fljótlega fylgdu aðrir fjölmiðlar Hall-
grími og röðuðu sér í kringum Hillary sem var glöð yflr því að
vera komin aftur til fslands. Tók svo í höndina á nokkrum
amerískum baðgestum Bláa lónsins, sem veifuðu til hennar.
Hillary er smávaxin, sennilega rétt rúmir 160 sentímetrar, stór-
huga kona.
Spurning dagsins
Á að skipta um
landsliðsþjálfara í handbolta?
Alfreð Gíslason er draumurinn
„Þetta er erfið spurning en,jú, ég er eigin-
lega á því að það sé kominn tími núna til
þess að skipta. Gummi er búinn að skila
mjög góðu starfi en það er ágætistími á
breytingar núna. Draumurinn væri nátt-
úrulega að fá Alfreð Gíslason í hans stað
en hann er líklega samningsbundinn.
Geir Sveinsson og jafnvel Viggó Sigurðs-
son koma líka sterklega tilgreina."
Ágústa Edda Bjömsdóttir hand-
boltakona
„Ég er nú ekki
mikið i íþróttum
en ég vil sjá þjálf-
ara sem getur
vakið upp fyrri
sigra landsliðsins
og sparkað í rass-
gatið á þessu liði. Þeir hafa alla
burði-til þess að ná árangri en
eru ofþreyttir eða latir. Það þarf
að fá einhvern klikkhaus sem
menn eru skíthræddir við. Það
má jafnvel leita annars staðar
en á íslandi eftir svoleiðis
manni, setja smá pening í þetta
og fá einhvern harðjaxl."
Franz Gunnarsson
tónlistarmaöur
„Nei, það á ekki
að skipta. Það
eru strákarnir
sem eru að skíta
á sig. Þetta eru
alltatvinnumenn
og ættu að
kunna eitthvað sjálfír, það þýðir
ekkert að kenna þjálfaranum
um."
Finnur Elríksson, steinsmiður
„Ég vil ekki svara þessari spurn-
ingu. Ég sagði fyrir mótið að
þetta væri ein-
kennilegt val."
Viggó Sigurðs-
son
„Með fullri virðingu fyrir Gumma
sem er búinn að gera frábæra
hluti þá er spurning hvort það
eigi ekki að skipta og leyfa öðr-
um að spreyta sig. Það er ekkert
æviráðningarstarfað vera
landsliðsþjálfari
þannig að það
má alveg skipta.
Ég veit samtekki
hveráaðtaka
við,jafnvel Viggó
sem hefur
keppnisskapið eða Óli Lár. Það
koma allavega margir til
greina."
Þóra Slgurðardóttir í Stund-
inni okkar
(slenska landsliðið í handbolta endaði í 9.sæti á ólympíuleikunun>.
Þrælastr íðshetj ur
ráfa um bókasafn
Starfsmönnum aðalútibús almenn-
ingsbókasafnsins í El Paso í Oregonfylki
var tilkynnt í fyrradag að beinagrind úr
Þrælastríðinu 1861-1865 hefði fundist í
bókasafnsgarðinum. Á sjöunda áratug
19. aldar var þar hermannagraf reitur
sem síðar var fluttur annað en eitthvað
virðist hafa orðið eftir af jarðneskum
leifum þeirra sem létu líf sitt í þessum
fjögurra ára átökum Norður- og Suður-
ríkjamanna.
En starfsmönnum bókasafnins brá
ekki hið minnsta við tíðindin, ailir þar
eru meira en málkunnugir herforingja
og hjúkrunarkonu úr Þrælastríðinu. Þau
hafa gengið Ijósum logum um kjallara
safnsins árum saman og ekki hrætt
starfsmenn að heitið geti. Teri Grant
hefurt.d. unnið þar í áratug og fyrir
nokkrum árum var hún send niður í
kjallara að athuga með hávaða sem
þaðan barst upp í lestrarsalinn rétt fyrir
lokun. Hún viðurkennir að sér hafi
brugðið þegar óútskýranlegt afl þrýsti
henni upp að vegg f kjallaranum en ekki
hræddari en svo að hún vinnur þar enn.
Kranar á vöskum safnsins hafa og
löngum snúist frjálslega þótt enginn
sjáist þar mannshöndin. Mikill og þung-
ur stóll stóð f einu horni safnsins og var
stundum færður út á mitt gólf í erli
dagsins. Og þótt menn gleymdu að
setja hann aftur í hornið að kvöldi var
hann ævinlega kominn á sinn stað að
morgni, enda vita starfsmenn að þetta
er stóll herforingjans. Sá er hávaxinn,
myndarlegur og öllum starfsmönnum
safnsins að góðu einu kunnur, ekki síð-
ur en unga konan sem birtist iðullega
og þeir kalla hjúkrunarkonuna. Frétta-
menn hjá El Pasotíðindum í Oregon
voru auðvitað nokkur brosleitir þegar
starfsmenn almenningsbókasafnins
vitnuðu um daglegt Iff á safninu, en
starfsmennirnir ráðleggja þeim að eyða
stund í kjallaranum, herforninginn og
hjúkrunarkonan taki ábyggilega vel á
móti þeim.
INGJA
ER ÞEG-
AR
HUGSUN
MANNSINS, ORÐ
OG GJÖRÐIR
FARASAMAN.
MAHATMA GANDHI1869-1948
I