Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.2004, Síða 29
DV Fókus
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST2004 29
Niðurstöður úr Evrópuverkefni Siðfræðistofnunar um siðferðileg álitaefni varðandi
gagnagrunna verða kynntar á ráðstefnu sem hefst í HÍ í dag. Á þriðja hundrað sér-
fræðingar á sviði erfðavísinda, siðfræði, lögfræði og félagsvísinda sækja ráðstefn-
una. Vilhjálmur Árnason heimspekiprófessor hefur unnið að undibúningi hennar
Siðfræðistofnun Háskóla ís-
lands leiðir evrópska rannsóknar-
verkefnið ELSAGEN, en þar hafa
siðfræðilegar, lagalegar og félags-
vísindalegar hliðar gagnagrunna
verið rannsakaðar. Stofnunin er
þar í samstarfi við rannsóknar-
þjónustu HÍ og þrjú önnur Evrópu-
lönd; Eistland, England og Svíþjóð
en verkefnið er styrkt af Evrópu-
sambandinu.
Lög með hæstaréttardóm
„Við fengum styrkinn til þessa
verkefnis árið 2002 og því lýkur í
desember 2004,“ segir Vilhjálmur
Árnason heimspekiprófessor og
formaður stjórnar Siðfræðistofn-
unar. „I þeim löndum sem eru
með okkur í verkefninu voru sam-
bærilegir gagnagrunnar í bígerð á
sínum tíma en íslenska tilefnið var
að sjálfsögðu fyrirhugaði miðlægi
gagnagrunnurinn okkar. Erfitt hef-
ur reynst að koma þessum gagna-
grunnum upp og eru skýringarnar
sjálfsagt ólíkar eftir löndum. En í
okkar tilviki má telja ýmislegt til;
mikla mótstöðu, lögin hafa fengið
á sig hæstaréttardóm, samþykkið
var óljóst og úrsagnarákvæðin
líka."
Evrópskt ráð um siðfræði
læknavísinda og heilsugæslu fund-
ar einu sinni og heldur ársfund
sinn samhliða ráðstefnunni. „Enda
rúmast þeir ágædega með undir
yfirskriftinni „Alþjóðleg ráðstefna
um erfðafræði og heilbrigðisþjón-
ustu með sérstakri áherslu á
gagnagrunna á heilbrigðissviði".
Fyrir vikið vérður umfjöllunarefni
ráðstefnunnar víðtækara en ella,“
segir Vilhjálmur.
Alltaf eitthvað sem tefur
Ráðstefnan stendur fram á laug-
ardag, „og á föstudeginn verður sér-
stakur opinn fundur um lífsiðfræði á
vegum UNESCO sem frú Vigdís
Finnbogadóttir stýrir í Háskóla-
bíói," segir Vilhjálmur.
Að sögn Vilhjálms verða á ráð-
stefnunni ræddar þær siðferði-
legu, lagalegu og félagslegu hliðar
gagnagrunna á heilbrigðissviði
sem hefði þurft að rannsaka áður
en ýtt var úr vör. „Því þrátt fyrir
umræður og væntingar til þessara
gagnagrunna hafa þeir ekki enn
orðið að veruleika. Um leið og sér-
fræðingar á öllum þessum sviðum
hittast hér, bera saman bækur sín-
ar og hlýðá hverjir á aðra, vonum
við auðvitað að niðurstöður
ELSAGEN-verkefnsins geti orðið
mönnum leiðarljós í framtíðinni,"
segir Vilhjálmur Ámason.
Pharrell hryggbraut Jameliu
Eftir að sæta söngkonan
Jamelia hafði lýst opinber-
lega yfir áhuga sínum á
Pharrell Williams, front-
manni N.E.R.D. varð
söngvarinn að viðurkenna
að hann ætti kærustu.
Pharrell hefur ávallt sagt í \
viðtölum að hann væri á
«Tv
lausu en eftir að hann frétti
af áhuga söngkonunnar
fannst honum hann ekki
J geta þagað lengur. „Ég er
^ hamingjusamur með kær-
.. ustunni minni Vashty.
J amelia er mj ög falleg en ég
er frátekinn."
iiaii.ii vcoii a -l • ■
)ir ekki við Justin
mm
Æm
Vilhjálmur Áma-
son, heimspeki-
prófessor „Þrátt fyr-
ir umræður og vænt-
ingar til gagna-
grunnana hafa þeir
ekki orðið að veru-
leika"
-V
Kyssir aldrei á undan
Tom Cruise segir að þar sem
hann hafi verið alinn upp af fjórum
konum beri hann mikla virðingu
fyrir kvenfólki. Leikarinn segir að
stelpurnar hafi alltaf þurft að taka
fyrsta skrefið, hann hafi aldrei kysst
þær af fyrra bragði. „Þessi virðing
mín fór í taugarnar á sumum stelp-
unum og þær spurðu mig pirraðar
hvort ég ætlaði ekki að kyssa þær.“
Cruise segir að vinkonur systra
hans hafi notað hann til að æfa sig í
kossum þegar hann var yngri. „Eg
átti auðvelt með að hanga með
stelpunum og þær spurðu mig oft
um leiðsögn," segir leikarinn sem
er ekkert að fara leynt með kven-
hylli sína. Cruise hefur verið tals-
vert duglegri síðustu ár en áður við
að tala um sambönd sín og sam-
skipti við konur. Margir telja hann
hafa gert þetta til þess að kveða
niður orðróm sem hefur verið ansi
langlífur um að hann sé samkyn-
hneigður.
Stjörnuspá
Magnús Eiríksson tónlistarmaður er 59
ára í dag. „Honum er í einlægni ráðlagt
að treysta því að hlutirnir verði eins og
hann þráir og að honum sé ætlað
stærra hlutverk en hann sinnir í dag.
Endir er á bið sem hefur einkennt um-
hverfi hans og líðan. Útkoman
uppfyllir óskir hans og þrár.
Málin taka
stökkbreyting-
um á skömm-
Um tíma," segir í
stjörnuspá hans.
Vatnsberinn 120.jan.-i8. febrj
Þú hefur vægast sagt mikla orku
á þínu valdi þessa dagana ef þú tilheyrir
stjörnu vatnsberans. Hér ert þú minnt(ur)
á að nýta hana eingöngu til góða. Sjáðu
einfaldlega til þess að þú notir hana rétt
framvegis. Því þú ert fær um að nota orku
þína jákvætt og neikvætt.
X
F\skam (19. febr.-20.mars)
Ef þú aðeins hlustar á þínar
innstu þrár og sýnir ávallt heilindi í verki
mun umhverfi þitt leiða þig að án
áreynslu að markmiðum þínum. Leyfðu
þér að upplifa undur tilveru þinnar en
undrið birtist þér innan tíðar.
CVD Hrúturinn 121.mars-19.apni)
Hér er hrúturinn þrautprófaður.
Taktu meðvitað ákvarðanir sem hafa áhrif
á framhaldið hjá þér. Láttu ekki sogast
inn í hringiðu átaka sem tengjast þér um
þessar mundir. Finndu friðinn innra með
þér og gefðu af þér með réttu hugarfari.
ö
Nautið (20. april-20. maí)
Vertu reiðubúin/n að sjá það
sem er næst þér og leyfðu þér einnig að
skoða svokaliaðar æðri víddir sem opna
þig gagnvart því sem jákvætt þykir - æðri
svið ef svo má að orði komast. Hér hverf-
ur hið gamla.
Tvíburarnir (21. mai-21.]úni)
Opnaðu augu þín kæri tvíburi
og sjáðu hve blessaður þú ert. Leyfðu
kærleikstilfinningu og þakklæti að efla
þig meðvitað því hjarta þitt kallar á kær-
ieik og þú mættir tileinka þér mun betur
að huga að því. Lifðu til fullnustu í andar-
takinu.
Krabbinn (22.júm-22.]m_________
Q0*' Þúvinnurverkþínafástogþar
er jákvæður eiginleiki á ferðinni í fari
krabbans. Eins og þú lærir að gefa þannig
muntu þiggja, hafðu það hugfast fram
yfir helgina.
Ljónið (B.júH-22. ágúst)
Hættu að vera þræll tímans því
þú ert aðeins fær um að gera eitt í einu
hverju sinni. Láttu tímann vera þjón þinn
kæra Ijón. Hættu að áætla langt fram í
tímann því það virðist aðeins tefja fyrir
þér. Áætlanir breytast fyrir haustkomu.
Tilfinningar eru staðreyndir kæra meyja.
H5
O VogÍn (23.sept.-23.okt.)
ni
Sporðdrekinn (2ioh.-21.n0vj
/
Bogmaðurinneznór.-ii.rfesj
Z
Meyjan (23. ágúst-22. septj
Hér er minnst á að þú unnir
sjálfstæði þínu sérstaklega þessa dagana
og á það einnig við um öryggi þitt. Þú
ættir hinsvegar að rannsaka enn nánar
blíðuna og skilninginn sem gera kynni
þín við elskhuga þinn eins náin og raunin
er þessa dagana.
Þú kýst jafnvel ekki að þurfa að
takast á við þig eða hegðun þína en þú
verður að gera það ef þú ætlar að breyta
viðbrögðum þínum kæra vog.
Þú ættir einnig að viðurkenna
að árekstrar eru óhjákvæmilegir á stund-
um og átta þig á því að þú ræður við til-
finningar þínar ef þú tjáir þær samstundis
þegar þær koma upp.
Stærsti þröskuldurinn sem þú
þarft að yfirstíga þessa dagana er eignar-
ástríðan og hér ert þú minnt/ur á það.
Steingeitin (22. ies.-19.jan.)
Um þessar mundir ættir þú að
fylgja liðan þinni algerlega og án efa-
semda. Þú virðist ósköp hæglát/ur reynd-
ar þegar stjarna þín er skoðuð en innra
með þér ólga tilfinningar þínar áberandi
mikið/ójafnvægi eða efi einhverskonar.
SPÁMAÐUR.IS