Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Qupperneq 4
4 MÁNUDACUR 20. SEPTEMBER 2004
Fréttir DV
Idol-æði á
Egilsstöðum
Gríðar stemning mun
hafa verið á Hótel Héraði í
gær þar sem Idol-Stjörnu-
leitin var með áheyrnar-
prufur fyrir Austlendinga.
Að því er segir á heimasíðu
Austur-Héraðs voru um 40
þátttakendur víðs vegar að
af Austurlandi skráðir til
keppni. Óhætt er að segja
að mikil spenna hafi ríkt á
meðal krakkanna þar sem
þau biðu eftir að fá að
syngja fyrir dómnefndina.
Velta heimamenn því nú
fyrir sér hvort næsta Idol
stjarna, sem krýnd verður í
mars, verði frá Austurlandi.
Þjófurinn
komst út um
bakdyrnar
Brotist var inn í íbúð-
arhús í Austurgerði í vest-
urbæ Kópavogs í gærdag,
þegar heimilisfólkið brá
sér fr á í nokkrar mínútur.
Sá eða þeir sem þar voru
að verki höfðu með sér
fartölvu. Að sögn lögregl-
unnar í Kópavogi varð
heimilisfólkið vart við
þrusk inni í íbúðinni er
það kom til baka og er
greinilegt að komið var að
þjófnum í miðjum
klíðum en hann náði að
komast undan út um
bakdyrnar.
Mikill þungi í
mönnum
Eiríkur Jónsson formað-
ur Kennarasambandsins
segir mikinn þunga vera í
samningaviðræðum um
kjör kennara. „Þegar 90%
félagsmanna styðja aðgerð-
ir sem þessar segir það sig
sjálft að mikill þungi er í
þessu. Við erum tilbúnir að
vera í verkfalli þangað til
það semst. Það verður samt
hver og einn að svara
hversu lengi menn eru til-
búnir að vera í verkfallinu,“
segir Eiríkur. Áður en blað-
ið fór í prentun í gær sagði
Eiríkur að kraftaverkin
gætu gerst en meiri líkur en
minni væm á því að verk-
fallið myndi skella á.
Andrés Már Heiðarsson, grunnskólakennari og körfuknattleiksmaður, hefur verið
kærður fyrir að beita sex unglingsstúlkur kynferðislegri áreitni. Þrjár þeirra eru
fyrrum nemendur Andrésar við grunnskólann á Stykkishólmi. Andrés sagði upp
störfum eftir að rannsókn á honum hófst. Stúlkurnar segja Andrés hafa sent þeim
ósiðleg SMS-skilaboð á nóttunni og í kennslustundum. Ríkissaksóknari rannsakar
málið.
Grunnskólakennari kærður
typir kynferhislega áreitni
Þrjár stúlkur úr grunnskólanum á Stykkishólmi tilkynntu skóla-
yfirvöldum að Andrés Már Heiðarsson, kennari þeirra og
körfuknattleiksmaður, hefði beitt þær kynferðislegri áreitni.
Skólinn gerði barnaverndaryfirvöldum viðvart. Þrjár stúlkur úr
framhaldsskólanum á Grundarfirði bættust svo við og báru
Andrési sömu söguna. Ríkissaksóknarinn rannsakar nú málið en
Andrés hefur hætt störfum við skólann. Sjálfur segist hann vera
saklaust fórnarlamb.
„Ég get staðfest að þetta mál
barst til okkar," segir Þorsteinn Jóns-
son hjá lögreglunni á Stykkishólmi.
„Ríkissaksóknari hefúr hins vegar
forræði í málum sem þessum og
mun taka ákvörðun um hvort það
verði ákært.“
Dónaskilaboð að nóttu til
Stúlkurnar sex segja Andrés hafa
sent þeim ósiðleg SMS-smáskilaboð
á nóttunni og jafnvel í tímum.
Andrés var íþróttakennari við
grunnskólann á Stykkishólmi en
kenndi jafnframt önnur fög eins og
Samfélagsfræði. Stúlkumar þrjár úr
grunnskólanum sóttu allar tíma hjá
Andrési en hinar þrjár stunda nám
við ffamhaldsskólann á Grundafirði.
„Þetta er með því erfiðasta sem
menn takast á við í skólastarfi,"
segir Gunnar Svanlaugsson, skóla-
stjóri í gmnnskólanum á Stykkis-
hólmi. „Við fengum málið á okkar
borð og tilkynntum bamaverndar-
yfirvöldum. Það er eðlilegur gangur
ef eitthvað svona kemur upp.“
Reiðir foreldrar
DV hafði samband við foreldra
tveggja stúlknanna sem vildu sem
minnst tjá sig um málið fyrr en ríkis-
saksóknari ákveður hvort Andrés
verður ákærður eður ei.
Andrés er fastamaður í
körfuknattleiksliði Snæfells og hefur
hann spilað með liðinu þrátt fyrir að
opinber rannsókn á honum standi
yfur.
„Stúlkurnar eru flestar
í félaginu og þurfa að
horfa framan í þennan
mann oftiviku,"
Ásgeir Guðmundsson, faðir
einnar stúlkunnar úr grunns-
skólanum, vildi koma því á framfæri
að foreldnmum fyndist óviðeigandi
að íþróttafélagið hefði ekki vikið
Andrési úr liðinu meðan rannsókn
fer fram á gjörðum hans sem grunn-
skólakennara.
„Við höfum farið fram á að
honum verði vísað úr félaginu
meðan á rannsókn stendur," segir
Ásgeir. „Stúlkurnar em flestar í
félaginu og þurfa að horfa framan í
þennan mann oft í viku.“
Heilsaði stúlkunum í sjopp-
um
Búist er við að ríkissaksóknari
skih af sér úrskurði í lok vikunnar.
í samtali við DV sagðist Andrés
vera saklaust fórnarlamb í þessu
máli. Hann hafi þekkt þessar stelp-
ur, bæði sem kennari þeirra og svo
hafi þær þrifið hjá honum öðm
hverju.
„Maður heilsaði þessum krökk-
um í sjoppum og annað slíkt," segir
Andrés. „Nú er bara að bíða og sjá
hvort verði ákært eða ekki. Ég ætla
alla vega ekki að flýja úr bænum eða
láta þetta fara illa með mig.“
simon&dv.is
Læknamafían og elíta sjúklinga
m
Svarthöfði
S j Ú K. R A H U S
REY ICJ AV í KU F
Slysadeild j*Emer
GöngudeiIdir
Hei|sugæsiustö
51 i uTTTr
saukann. Svo Svarthöfði beið í vikr
Svarthöfða hefur lengi verið í
nöp við lækna. Af þeirri einföldu
ástæðu að það er enginn læknir í
fjölskyldunni. En Svarthöfði á vin
sem er frændi læknis og hefur því
fyrir löngu komist að því að það er
til elíta sjúklinga á íslandi. Fólkið
sem þekkir lækna. Það finnur til
minnsta höfuðverks og hringir bara
í lækninn sem er í ættinni. Fer
auðvitað framfyrir allar raðir og fær
eðalþjónustu. Svarthöfði þurfti
hinsvegar að láta spúsu sína, Svart-
höfðu, taka úr sér saumana eftir
síðasta fyllirí. Stigarnir niður í
þvottahús (þar sem bjórkassinn er
geymdur) urðu Svarthöfða að falli.
En sjúkrahúsið var svo dýrt að
Svarthöfði kippir sér ekki lengur
upp við hina óréttlátu skattlagn-
ingu ríkisins á áfengi. Hún er ekkert
miðað við skattlagninguna á þá
sem verða fýrir óhappi.
Eflaust er þetta bara afbrýðisemi
í Svarthöfða. Að vera ekki sjálfur
hluti af læknamafíu íslands og þurfa
ávallt að fara aftast í röðina. En það
Jilýtur samt að fyrirgefast þegar
koma á sjúkrahús er orðin svo dýr að
Svarthöfði hefur ekki efrii á sínum
vikulega bjórkassa.
Og þeir sem hafa látíð ómennt-
aða eiginkonu í faginu taka úr sér
saumana vita um hvað Svarthöfði er
að tala. Verst er þegar það fer að
grafa. Þá þarf nefnilega að kaupa
pensilín en Svarthöfði hafði hvorki
efni á því né bjór til að deyfa sár-
meðan brauðið myglaði og smurði
svo með smjerlíki og setti malakoff
og tróð þessu í sig í nokkra daga.
Virkaði auðvitað eins og besta
pensilín en frekar hefði Svarthöfði
viljað eiga frænda sem væri læknir.
Það ættu allir að eiga frænda sem
er læknir.
Svarthöfði
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað bara svakalega fínt/'segir Ragnheiður Clausen fyrrverandi sjónvarpsþula
og kynþokkafyllsta kona landsins til margra ára. Ragnheiður vill ekkert gefa upp um
það hvort hún sé ástfangin en segist vera hamingjusöm við það sem hún er að fást
við þessa dagana.„Ég er í Háskóla íslands í bókmenntafræði og þaö er mjög gaman, “
segir hörkutólið Ragnheiður.