Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Page 9
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004 9
Hreiðar Aðalsteinsson Kattakonan segir
hann hafa rústað öllu á heimili hennar ogkon
ið afstað atburðarás sem varð til þess að hun
missti allt sem henni þykir vænt um.
BMtoaZfiM
„Húsbílnum skilaði ég
til Einars Thoroddsen
vegna þess að ég
hafði engan frið. Fólk
var að kikja á glugg-
ana og áreita okkur."
£ "
Missti börnin á grundvelli myndanna
Barnaverndarnefnd tók börnin á grundvelli
þess að myndirnar sýndu hvernig heimilið væri.
Guðrún neitar og segir Hreiðar hafa gegnið
berseksgang innandyra til að geta komið sér út
úr húsi sem ekki er múshelt og illa byggt.
■
Hluti kattana í Kattholti Guð
rún segir mink hafa komist ikett
ina og drepið kettlingana.
_
Minkur komst í kettina
Eins og fram hefur komið fékk
Guðrún kettina afhenta aftur og hún
segist hafa auglýst þá í DV, margir
hafi hringt og hún farið til Reykjavík-
ur á húsbílnum með alla kettina til
að afhenda þá sem hún kom út.
Suma seldi hún aðra gaf hún. Rest-
ina fór hún með að Stekk og skildi þá
eftir fyrir utan þar sem þeir gátu haft
skjólíbílnum.
„Ég skildi eftir nægan mat og fyr-
ir þá og iækur var rétt fyrir neðan
húsið. Það var hásumar og það fór
ekki illa um þá. Ég veit að það var
minkur þarna í kring og ég held að
hann hafi komist í þá. Það hafði
gerst áður. Ætlunin var að hafa þá
þar, þar til ég fengi nýtt húsnæði.
Áður en ég gat náð í þá aftur þá var
Hreiðar búin að hringja á lögregl-
una,“ segir Guðrún.
Að sögn Guðrúnar átt hún ekki
annars úrkosti en geyma kettina í
bílnum. Hún viU meina að þar hafi
farið vel um þá, þeir leikið sér og aflt
verið í lagi. Sjálf var hún með börnin
og hundana í sveitinni hjá vinafólki.
Börnin tekin nauðug
Guðrún segist skömmu síðar
hafa verið á leið til Reykavíkur þegar
lögreglan hafi stöðvað ferð hennar í
Mosfellsbæ. Tekið af henni hundana
og kallað á barnaverndaryfirvöld
sem hafi svipt hana börnunum. Það
hafi verið gert á grundvelli ljós-
mynda sem lögreglan tók á Stekk af
heimilinu í byrjun júh'.
„Ef myndirnar eru skoðaðar má
sjá að þar hefur einhver komið og rutt
öllu úr hilium, og farið hamförum í að
láta h'ta út sem allra verst. Börnin mín
hafa vitnað um að þannig höfðum við
ekki skihð það eftir,“ segir Guðrún
sem stóð ein eftir, heimilislaus, vina-
laus og allslaus. Hún segir alla vini
þeirra og ættingja hafa snúið við þeim
baki eftir umfjöllun um þau í fjöl-
miðlum. „Við vorum búin að fá leigt
hús í sveitinni þar sem
við vorum í heyskap og
ætluðum að flytja þang-
að. Það varð ekkert af því
eftir þetta,“ segir hún.
Grætur hlutskipti sitt
Ljóst er að Guðrún hefur átt mjög
erfitt. Hún er klökk og fellir tár á
meðan hún rifjar upp atburðarásina
síðustu tvo mánuði. Hún neitar al-
farið að hafa nokkru sinni farið illa
með dýr. Hestana sem hún var
ákærð fyrir að svelta hafi hún vissu-
lega átt en hún hafi treyst öðrum til
að sjá um þá.
„Ég var eigandi og þess vegna
fékk ég dóm. Það sannaðist fyrir rétti
að ég gat ekki vitað að illa var hugs-
að um hestana. Ég elska dýr og mun
alltaf eiga dýr," segir Guðrún.
Þrjú börn Guðrúnar eru nú í vist-
un á vegum barnaverndaryfirvalda.
Þar líður þeim mjög illa og þrá ekk-
ert meira en fá að fara heim til móð-
ur sinnar að því er hún segir.
Hjartasjúkur barnsfaðir
Guðrún hefur undir höndum
skýrslu þar sem rætt er við eitt barna
hennar og þar kemur fram að þeim
hafi Uðið vel hjá foreldrum sínum.
Elsta dóttir hennar er í áfalli yfir at-
burðarásinni og hefur miklar
áhyggjur af foreldrunum. Guðrún
segir þau bæði sjúklinga, barnsfaðir
hennar, Gunnar Hraundal,sé hjarta-
sjúkhngur og sjálf sé hún fórnar-
lamb læknamistaka.
„Eftir samtalið fer ég beint inn á
sjúkrahús," segir Guðrún og viður-
kennir að hafa þurft að sofa í bfl í
fleiri nætur. Hún hafi hvergi fengið
húsnæði en nú sé hún með eitt her-
bergi. Hún saknar líka hundanna
sinna mikið og er reið yfirvöldum
fyrir að drepa hvolpana. Þeir hafi
verið 180 þúsund króna virði.
Ekkert á milii okkar Einars
Guðrún kennir fjölmiðlum og
Hreiðari húseiganda um hvemig fyr-
Ur henni sé komið. Hún hafi orðið fyr-
ir aðkasti fóUcs sem kaUað hafi hana
lævísu kattakonuna og hafi hún mátt
sæta barsmíðum vegna þess.
„Húsbflnum skilaði ég til Einars
Thoroddsen vegna þess að ég hafði
engan frið. Fólk var að kíkja á glugg-
ana og áreita okkur," segir Guðrún
og fuUyrðir að Einar hafi skrifað upp
á lán fyrir hana af greiðasemi. Ef
menn haldi að eitthvað sé á miUi
þeirra sé það rakalaus vitleysa.
Guðrún hefur talað við lögmann
sem er að aðstoða hana í að vinna
börnin tU baka. Hún réttir fram bréf
undirritað af lögreglunni í Reykjavík
þar sem fram kemur að fallið sé frá
kæru vegna Ulrar meðferðar á kött-
unum. Guðrún þráir ekkert heitara
en fá börn sín aftur og húsnæði þar
sem þau geti haft dýr hjá sér. Helst
viU hún vera í sveit þar sem dýrin fá
að vera í friði.
bergljot@dv.is
Kókaín í
Kópavogi
Lögreglan í Kópavogi
lagði hald á 1,5 gramm af
kókaíni sem fannst í fómm
manns aðfaranótt sunnu-
dagsins. Að sögn lögregl-
unnar kom þetta mál upp
við hefðbundið eftirlit af
hálfu lögreglunnar í bæn-
um um nóttina. Viðkom-
andi átti að baki sögu hjá
lögreglunni og því var
ákveðið að kanna hann
nánar en hann var undir
einhvers konar áhrifum.
Við leit fannst svo kókaínið.
Manninum var sleppt eftir
yfirheyrslur og telst málið
upplýst.
Líkamsárás í
rannsókn
Lögreglan í Kópavogi
hefur nú til rannsóknar
líkamsárás sem kom upp
í bænum í gærmorgun.
Að sögn lögreglunnar
telur hún málið alvarlegt
en árásin átti sér stað í
heimahúsi í bænum
snemma um morgun-
inn. Partý var í gangi í
húsinu og áfengi haft
um hönd þegar ráðist
var á konuna. Hún var
flutt á slysadeild en fékk
að fara heim síðdegis
eftir að gert hafði verið
að sámm hennar.
Kveikt í rusli
við Skipperinn
Aðfaranótt sunnudags-
ins var fremur róleg hjá
lögreglunni í Reykjavík
framan af en síðan komu
nokkur útköll vegna slags-
mála og pústra á milli fólks.
Þó ekkert alvarlegt. Eitt út-
kall var vegna bruna en þar
var um eld í ruslatunnu
fyrir utan Skipperinn að
ræða. Að öllum líkindum
var um íkveikju að ræða en
tjón varð ekki af þessu
uppátæki.
Mikið um innbrot í Kópavogi
Að jafnaði eitt á dag síðustu mánuði
Lögreglan í Kópavogi hefur haft í
nógu að snúast um helgina. í fyrrinótt
var meðal annars brotist inn í tvo bfla,
við Kjarrhólma og Sæbólsbraut, og
talsverðum verðmætum stolið.
Að sögn lögreglu hefur töluvert
borið á innbrotum í þessum mánuði
og ágúst eða eitt á dag að jafnaði. Er
ástæða til að biðja fólk að hafa varann
á því mörg innbrotanna em framin
að degi til.
Hvað varðar innbrotin í bílana var
verðmætum stangveiðigræjum stolið
úr bílnum í Kjarrhólma og úr þeim
við Sæbólsbraut var hárgreiningar-
tæki stolið og er verðmæti þess talið
vera um 180 þúsund krónur.
Lögreglan í Kópavogi segir að tals-
vert hafi borið á innbrotum bæði í
bíla og hús það sem af er þessum
mánuði og ágúst og að mörg þessara
innbrota séu framin um hábjartan
dag. Hins vegar hafi innbrotum að
næturlagi fækkað nokkuð á móti en
þar er aðallega um að ræða innbrot í
fyrirtæki.
„Sökum þess hve algengt er orðið
að brotist sé inn í bíla og hús aö degi
til er full ástæða til að biðja fólk að
hafa varann á þessa dagana,“ segir
Kópavogslögreglan.
Brotið á
bótaþegum
Ríflega fimmt-
ungi allra ákvarðana
Tryggingarstofnun-
ar sem kærðar em til
úrskurðamefndar
almannatrygginga
er breytt af nefnd-
inni. Þetta kemur
fram í árskýrslu úrskurðarnefndar-
innar sem hefur þann starfa að skera
úr um ágreining um grundvöll, skil-
yrði og upphæð bóta frá Trygginga-
stofnun. Úrskurðað var í 279 kæm-
málum á árinu 2003. Þar af var af-
greiðsla Tryggingastofhunar staðfest
í 182 málum. Afgreiðslu Trygginga-
stofnunar var breytt í 58 málum, 18
málum var vísað frá og 21 máh var
vísað aftur til Tryggingastofnunar.
Fáðu flott
munnstykki
LyfjAVAl
www.nicorettef.is