Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004
Fréttir ÖV
Kári þykir afar traustur og
vandaður í störfum sínum. Á
sviði útvarpsfréttamennsku er
hann fagmaður fram í fingur-
góma. Þá þykir hann styðja
undirmenn sína mjög vel þegar
þeirjturfa á stuðningi hans að
Kári hefur verið í stjórnunar-
stöðu hjá fréttadeild Rikisút-
varpsins í yfir tvo áratugi og
sem slíkur þurft að hlusta á
ómælt magn afkvabbi og
kveini, einkum frá stjórn-
málamönnum. Mörgum þyk-
ir hann hafa sýnt mikið lang-
lundargeð og á stundum
fullmikið afþví.
„Kári er einn afvönduðustu og
bestu mönnum f stétt frétta-
manna og hefur verið það um
áratugaskeið. Hann er
mjög lipur og þægilegur
í öllu samstarfi og sam-
skiptum við fólk. Þá þyk-
ir mér hann hafa mjög
góða yfirsýn yfir þau
mál sem efst eru á baugi hverju
sinni og einnig hefur hann gott
fréttanef."
Lúðvik Geirsson bæjarstjóri Hafnar-
fjarðar.
„Ég þekki Kára fyrst og fremst
sem dásamlegan dreng. Ég
kynntist honum fyrst er hann
var ungur og upprenn-
andi blaðamaður og vil
segja að hann var afskap-
lega yndislegur og Ijúfur.
Mér hefur fundist á stund-
um að þaö mætti vera meiri
snerpa í honum en kannski
kemur hún með nýja starfinu."
Hildur Finnsdóttir kennari.
„Það er sjónarsviptir að Kári
skuli hætta störfum á Ríkisút-
varpinu. Ég tel að hann hafi rek-
ið fréttastofuna mjög
vel og aflað henni mik-
illar virðingar á þeim
árum sem hann hefur
unnið þar. Og Kári er
vinnusamur og afburðagóður
fréttamaður sem menn leggja
hlustir við."
Jón G. Hauksson ritstjóri
Kári Jónasson er fæddur í Reykjavik 11.2.
1940. Hann er Samvinnuskólagenginn og
hófstörfsem blaðamaður áTímanum
1963 og varþar til 1973 er hann var ráðinn
á Ríkisútvarpið. Hann varfréttamaðurá
fréttastofunni fram til 1980, varafréttastjóri
til ársins 1987 er hann var ráðinn frétta-
stjóri. Þá hefur hann unnið töluvert að fél-
agsstörfum fyrirblaðamenn og varm.a.
formaður Blaðamannafélagsins árin 1978
til 1981. Kári er kvæntur Ragnhildi Valdi-
marsdóttur bókara og eiga þau tvö börn.
Halldór Egill Kristjánsson seldi íbúð sína með aðstoð Finnboga Kristjánssonar á
Fasteigansölunni Fróni. Halldór, kona hans og þrjú börn búa nú í tveggja her-
bergja leiguíbúð, allslaus eftir fasteignasalan. Halldór var eitt af sjö fórnarlömbum
Finnboga, sem missti leyfi til fasteignasölu í annað sinn í kjölfar málsins.
Allslaus á götunni eftir
Finnbuga lasteignasala
Halldór Egill Kristjánsson seldi íbúð sína við Fífusel í Breiðholti í
apríl í fyrra. Hann leitaði til Fasteignasölunnar Fróns og eiganda
hennar Finnboga Kristjánssonar um að hafa umsjón með söl-
unni. Salan gekk í gegn og Halldór var sáttur við verðið en þegar
hann hugðist undirbúa tilboð í nýja íbúð kom babb í bátinn.
„Fljótlega eftir að salan hafði ver-
ið frágengin komst ég að því að ekk-
ert af þeim peningum sem ég hafði
fengið fyrir íbúðina höfðu farið í að
greiða niður áhvílandi lán á íbúðinni
og því voru lánin enn á mínu nafni,“
segir Halldór Egill Kristjánsson í
samtali við DV.
Halldór segist hafa innt Finnboga
Kristjánsson fasteigansala á Fróni
eftir svörum um hverju sætti. Finn-
bogi hafi þá verið með ails kyns
málalengingar og ekki getað gert
grein fyrir því hvað varð af andvirði
íbúðarinnar sem seld var á 14,5
milljónir króna.
Lofaði en ekkert gerist
„Hann lofaði og lofaði allt þar til
við sáum fram á að hann virtist ekki
geta endurgreitt neitt og þá hót-
DV á laugardag Finnbogi Kristjánsson
sagðist í DV um helgina vera að reyna aö
selja eignir til að geta endurgreitt
fórnarlömbum slnum.
„Ég get ekki keypt
mér íbúð þar sem lán-
in eru enn á mínu
nafni þrátt fyrir að
konan sem keypti af
mér hafi greitt þá
upphæð
aði hann okkur því að ef við færum
til lögreglunnar fengjum við ekki tí-
kall," segir Halldór sem vegna svika
Finnboga fasteignasala var því sem
næst á götunni að loknum viðskipt-
um þeirra.
„Ég get ekki keypt mér íbúð þar
sem lánin eru enn á mínu nafni
þrátt fyrir að konan sem keypti af
mér hafi greitt þá upphæð," segir
Halldór sem nú býr ásamt konu
sinni og þremur börnum í lítilli
tveggja herbergja leiguíbúð og sér
ekki fram á að geta komist í eigið
húsnæði fyrr en nafn hans hefur
verið tekið af lánum sem hvíldu á
íbúðinni og borga átti upp með fé
sem Finnbogi stakk undan að sögn
Halldórs.
Fimm milljónir tapaðar
„Ég fékk mér lögfræðing sem hef-
ur séð um þetta mál fyrir mig. Hann
segir mér að þeir peningar sem ég
átti orðið í íbúðinni, 4 til 5 milljónir
sem ég hafði ætlað mér að nota í
innborgun á aðra íbúð, séu svo gott
sem tapaðir. Mér hefur verið tjáð að
ég geti svo gott sem gleymt þessu,"
segir hann.
Halldór segir að eftir að milli-
þinghaldi í máli Finnboga lauk síð-
ast- liðinn föstudag hafi Finnbogi
sett sig í samband við sig og sagt -
líkt og blaðamanni á föstudag - að
hann væri að reyna að selja eignir
sem hann ætti til að endurgreiða
Halldóri.
Þar með er ekki öll sagan sögð því
nýverið stefndi kaupandi að íbúð
Halldórs Halldóri og Finnboga Krist-
jánssyni vegna kaupanna. „Mér
skilst nú reyndar að ég þurfi ekki að
hafa miklar áhyggjur af því og það sé
meira formsins vegna sem við erum
báðir sóttir til saka vegna málsins,"
segir Halldór, sem telur að pening-
arnir sem Finnbogi kom undan eftir
viðskiptin hafi farið í að greiða þeim
sem svikinn var á undan honum.
Játar og neitar ákærum
Það virðist hafa verið leikur sem
Finnbogi lék enda er mál á hendur
honum nú rekið fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur þar sem honum er gefið
Finnbogi Kristjánsson fasteignasali
Hafðisamband við Halldór Egil Kristjánsson
á tostudag og sagðist vera að selja eiqnir
upp I skuld slna við hann.
að sök að hafa dregið sér 26 milljón-
ir frá sjö skjólstæðingum sínum á
árstímabili, árin 2002 til 2003.
Hluta fjárins greiddi Finnbogi til
baka en eftir standa fimm milljónir
sem á vantar. Þetta mun Finnbogi
hafa gert á þann hátt að fé sem dreg-
ið var frá einum aðila var borgað
með að draga fé frá öðrum.
Auk þessa er Finnbogi kærður
fyrir umboðssvik, þegar hann keypti
í húseign við Síðumúla í félagi við
annan mann. Honum er gefið að sök
að hafa vanrækt að tryggja veð-
bandalausn ijórðungs eignarinnar
og fyrir að veðsetja eignina í íjór-
gang án vitundar viðskiptafélagans.
Finnbogi neitar sök að umboðs-
svikunum en játar að hafa dregið sér
fé viðskiptavina sinna sem hann,
eins og fyrr segir, hefur að hluta
greitt til baka.
hetgi@dv.is
Fáðu flott
munnstykki
www.nicorette.is
B lyfja imt
Mál Marcos Brancaccia
Utanríkisráðuneytið svarar ítölum
ítalska utanríkisráðuneytið hefur
fengið svarbréf frá íslenska utanrík-
isráðuneytinu varðandi ásakanir
ítalska firéttamannsins Marcos
Brancaccia, sem á í forræðisdeilu
hér á landi, á hendur tollvarða á
Keflavíkurflugvelli um óeðlilegt
framferði í sinn garð þegar heim-
sótti dóttur sína. Sagði Brancaccia
að sex tollverðir hefðu elt sig, auk
þess sem hann hafi verið þráspurð-
Leifsstöð Sýslumaðurinn á Keflavíkur-
flugvelli rannsakaði umkvartanir
Brancaccia og fann ekkert athugavert.
ur út í dóttur sína og vegabréf henn-
ar, án þess að hafa verið spurður að
nafni áður. Hann segir tollverði hafa
reynt að setja „eitthvað" í töskuna
sína.
Kornelíus Sigmundsson hjá ut-
anríkisráðuneytinu kveðst telja að
málinu sé lokið. „Það kom orðsend-
ing frá sendiráði Ítalíu í Osló þar
sem greint var frá umkvörtunum
mannsins um atvik við brottför hans
frá Keflavíkurflugvelli. Sýslumaður
kannaði málið og er búinn að skila
sinni niðurstöðu. Við svöruðum
ítölunum að það væri ekki ástæða til
að telja að þarna hefði óeðlilega að
verki staðið. Ég tel að málinu sé lok-
ið."
Brancaccia, sem undirbýr mál
fyrir Mannréttindadómstól Evrópu í
Strassbourg, hefur áður sagt að skýr-
ingin á framférði tollvarða í sinn
garð sé að Jóhann Benediktsson,
sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, sé
góður vinur Jóns Baldvins Hanni-
balssonar, fyrrum utanríkisráðherra
og tengdaföður Brancaccia. Hann
segir undarlegt að
þessi sami sýslu-
maður hafi verið
fenginn til að
rannsaka málið.
jontrausti@dv.is
Stórhækkun á
fáum vikum
Gengi hlutabréfa DeCODE hef-
ur styrkst hressilega að undan-
förnu eftir mikla dýfu sem gengið
hafði tekið. Við lok Nasdaq mark-
aðarins í New York á föstudag stóð
gengið í 7,70 dollurum á hlut. Þá
hafi það hækkað um 6,94% frá því
daginn áður. í lok ágúst fór gengið
niður í 5,12. Bréfin hafa því hækk-
að um heil 50% síðan þá. Sveiflur á
gengi hlutabréfa DeCODE hafa
verið miklar. Á síðasta 52 vikna
tímabili hefur gengið hæst verið
13,80, í lok febrúar á þessu ári, og
lægst 3,77 í fyrrahaust.