Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Side 14
14 MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004 Fréttir DV Fékk stuð úr einnota myndavél Unglingur á Selfossi var fluttur á sjúkrahús með hjartsláttaróreglu eftir að hafa fengið stuð úr einnota mynda- vél. Að sögn lögregl- unnar á Selfossi mun hópur af 15- 16 ára unglingum hafa út- búið einhvers konar raf- magnsbyssu með því að setja járnteina við raf- hlöðuna fyrir flassið á vél- inni. Síðan skotið af henni með því að „taka mynd“. Lögreglan segir að um stórhættulegt at- hæfl sé að ræða sem ástæða sé til að vara við en lögreglan hefur fengið spurnir af því að þetta hafi verið reynt af ung- lingum í öðrum bæjarfé- lögum. Lyfjum stolið ur Sæljósinu Á föstudag var til- kynnt um innbrot í bát í Sandgerðishöfn til lög- reglunnar í Keflavík. Hafði verið farið þar í Sæljós ÁR-11 með því að brjóta rúðu í hurð á stýr- ishúsi. Einnig var hurð brotin upp á skipstjóra- klefa. Voru lyf tekin úr lyíjakistu bátsins. Málið er í rannsókn. Skallaði nágranna konu sína Síðdegis á föstudag var óskað aðstoðar lögregl- unnar í Keflavík að húsi við Norðurvör í Grindavík. Hafði þar komið til töiuverðra erja og misklíðs á milli nágranna. Endaði leikurinn með því að kona var skölluð í andlitið af nágrannakonu sinni. Lög- reglunni tókst svo að stilla til friðar á milli nágrann- anna. [ Grlndavik ) Stór skjálfti fyrir austan Jarðskjálfti af stærðinni 3,3 á Richter mældist á fimmta tímanum í fyrr- inótt við Þjórsá, um 5 kíló- metra suðvestan við Ás- hverfi í Holtum. Þrátt fyrir að enginn hafi tilkynnt um skjálftann á vaktina á Veð- urstofunni varð vart við hann á nokkrum stöðum. Tugur eftirskjálfta fylgdi í kjölfarið en þeir voru allir minni en 1,5 á Richter að stærð. Hamingjusamari en bankastjórarnir Laun mín sem þroskaþjálfi jafnast á við byrjunarlaun kennara. Mér firmst það ekki nógu gott þar sem við þurfum að sinna mjög erfiðum ein- staklingum. En starf okkur í þágu þeirra sem mirrnst mega sín í samfé- Ingveldur Sigurðardóttir Ingveldur Sigurðardóttir segir starfhennar fyrir fatlaða hafa gert hana að betri manneskju. Þroskaþjálfinn segir laginu er lítils metið. Við þurfum að hugsa um allt sem að lífi þeirra snýr; famaðinn, heilsuna og fjármál þeirra. Við emm í senn fjölskyldur þeirra og kennarar. Samt er það svo að samfél- agið er ekki á öðrum endanum vegna okkar launamála. Kannski kunnum við ekki að berjast vegna þess að við erum í mannúðarstörfum vitandi það að verkfail myndi bitna á skjólstæð- ingum sem þannig verða á svip- stundu hjálparvana. Þetta er ekki tískustarf eins og ger- ist í fjármálageiranum. Starfsloka- samningar em óþekkúr í minni grein og við megum þakka fyrir að hjara af laununum. Mannúðarstörf mæta af- gangi innan ríkisgeirans og líklega verður það ailtaf þannig á meðan þjóðfélagið snýst um græðgi og pen- inga. Ég hefði alveg getað hugsað mér sem ung stúlka að verða bankastjóri eða valdamikil á einhvem hátt. Þó er ég þakklát þegar ég lít um öxl því starf mitt fyrir fatlaða hefur gert mig að betri manneskju og fært mér meiri hamingju en ég held að finnist í há- sölum hinna riku. Ingveldur Siguröardóttir þroskaþjálS Fyrirtækið Gagnvirk Miðlun sem stofnað var utan um rekstur á gagnvirku sjónvarpi árið 2000 varð gjaldþrota í kjölfar ákvörðunar þáverandi stjórnenda Símans um að hleypa fyrirtækinu ekki inn á svokallaðan tilraunafasa. Þar með urðu fyrirætlanir þess að engu. Síminn áformar nú sjálfur gagnvirkt sjónvarp eftir kaupin í Skjá einum. Kenna vnntrú Símnns ú nannvirkni um Stjórnendum Símans fysti ekki í aðkomu að gagnvirku sjónvarpi í gegnum ADSL fyrir tveimur árum þegar fyrirtæki í einkaeign hugðist byggja slíkt upp. Nú ætlar Síminn sér stóra hluti í sama geira og segir Enska Boltann lið í að styrkja við fyrirhugað gagn- virkt sjónvarp sitt. Gagnvírk Miðlun var stofnuð árið 2000 af fjölda hluthafa sem stefndu á að koma upp svokölluðu gagnvirku sjónvarpi í gegnum ADSL-línur. Fyr- irtækið fór vel af stað og hafði meðal annars náð útsendingarrétti hjá Disney og fleiri aðilum auk þess sem erlend fyrirtæki keyptu hluti í því. Gagnvirk Miðlun kom þó aldrei gagnvirku sjón- varpi á koppinn. Ástæðan er sögð sú að forsvarsmenn Símans neituðu, eftir langa bið, sam- starfi við fyrir- tækið sem þar með hefði fengið aðgang að ADSL-kerfi Símans. Það kerfi mun Síminn nú sjálfur ætla undir sitt eig- ið gagnvirka sjónvarp. Lftill vilji hjá Símanum - þá svarsmenn Símans munu hafa dregið mjög á langinn að gefa fyrirtækinu svar. Þrátt íyrir ítrekaðar óskir þar um og fundi með stjórnarmönnum Sím- ans sem og Davíð Oddssyni forsætis- ráðherra og Sturlu Böðvarssyni sam- gönguráðherra bárust engin svör. Svar Símans olli gjaldþroti f þessu skyni mun Gagnvirk Miðlun hafa haft milligöngu um ferð Sturlu og sendinefndar ráðuneytis hans til Hull þar sem gagnvirkar lausnir vom kynnt- ar rækilega auk þess sem ráðstefna var haldin þar sem stafrænt sjónvarp var kynnt. Þar munu þáverandi yfirmenn Símans hafa áttað sig á möguleikum sínum í gagnvirku sjónvarpi. I kjölfar starfsloka Þórarins V. Þór- arinssonar, þar sem Óskar Jósefsson tók við, mun þó endanlega hafa hrokk- ið í lás hjá Símamönnum sem lyktaði með því að Gagnvirkri Miðlun barst neikvætt svar um samstarf sem þar með gerði forsvarsmönnum Gagn- virkrar Miðlunar ómögulegt að láta verða af fyrirætlunum sínum. Þetta kom að sögn stjórnarmönnum í opna skjöldu enda fól það í sér gjaldþrot fyrirtækisins sem þá þegar hafði vaxið mjög á stuttum tíma. Samkvæmt heimildum DV fóm for- svarsmenn Gagnvirkrar Miðlunar þess á leit við forsvarsmenn Símans, fljótlega eftir stofnun árið 2000, að fá aðgang að svokölluðum tilraunafasa, ADSL-línu, undir iyrirhugað gagnvirkt sjónvarp. Gagnvirk Miðlun hafði þá þegar gert tilraunir með út- sendingar í hluta Reykjavíkur sem þóttu gefa góða raun auk þess sem erlendir aðilar höfðu sýnt áhuga á kaupum í fyrirtækinu. For- Þórarinn V. Þórarinsson og nýi Síminn Vildi ekki sjd hugmynd um samstarfviö uppbyggingu Gagn virkrar Miðlunar d sjón varpsefni enernúkoi mn d fullt sjdlfur. Þórarinn Viðar gafenginn svör ei neitun kom fljótlega eftir að hann lét afstörfum. Rimaskóli sigraði Norðurlandamót barnaskólasveita í skák Stórglæsilegur íslenskur sigur íslensk skákungmenni fóru á kostum á Norðurlandamóti barna- skólasveita nú um helgina þegar Rimaskóli og Laugalækjarskóli lentu í tveimur efstu sætunum næst á undan sænskum skóla. Barnaskólar á Norðirrlöndunum senda bestu skáksveitirnar á mótið og því er um hörkukeppni að ræða. „Þetta var stórglæsilegur íslenskur sigur og það var brotið blað í sögunni því Svíar hafa unnið þetta mót fjögur ár í röð. Það var því frábært að taka tvö efstu sætin," segir Guðfríður Lilja Grétars- dóttir forseti Skáksambands íslands. Mótið var haldið í Laugalækjarskóla og segir Guðfríður að krakkarnir hafi lagt hart að sér í allt sumar við æf- ingar. „Svíarnir vom í þriðja sætinu núna og það var því gaman að kenna þeim smá lexíu í ár þar sem þeir hafa verið mjög sterkir í gegn- um árin," segir Guðfríður Lilja. Auk þess vom veitt verðlaun fyrir þá einstaklinga sem stóðu sig best í keppninni og hlutu íslendingar verðlaun í öllum flokkum. Þeir sem stóðu sig best voru Hjörvar Steinn Grétarsson, IngvarÁsbjörnsson, Vil- hjálmur Pálmason, SverrirÁsbjörns- son og Matthías Pétursson. „Hugmyndin okkar" Gjaldþrot Gagnvirkrar Miðlunar var staðreynd og fjárfestingar aðila því tapaðar með öllu. Samkvæmt staðfestum heimildum töpuðu aðU- ar sem tengdust fyrirtækinu mgum milljóna á gjaldþrotinu sem þeirra á milli er jafnan rakið til síðbúinnar neitunar Símans um aðgang að fjar- skiptaneti sínu. Kunnugir segja aðstandendur Gagnvirkrar Miðlunar jafnan kalla áform Símans um gagnvirkt sjón- varp „Hugmyndina okkar," enda séu plön Símans og Gagnvirkrar Miðlun- ar í raun eins. helgi@dv.is Kynlífsem vörn gegn djöflinum Það er erfitt að sjá hverslags kirkju og hvers- lags trú Carlos Romero boðaði í San Diego en hann er nú ákærður fyrir að hafa neytt nokkrar konur í söfnuði sínum þar í borg til kynlífs með sér sem vöm gegn ásókn djöfulisins í sálir þeirra. Ein þeirra kvenna sem þegar hefur borið vitni gegn Romero segir að hann hafi tjáð sér að hún væri haldin djöflinum og eina ráðið til að reka djöfulinn út væri að hún hefði mök við sig. Á næstu vikum á eftir varð hún að „þjónusta" prestinn á ýmsum stöð- um eins og heimili sínu, fyrir utan stórmarkaðinn og í bíl hans á ýmsum bflastæðum. Lögfræðingur Romero segir ásakanir gegn prestinum fárán- legar og að kynlífið hafi verið með fullum vilja kvennanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.