Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2004, Page 16
T6 MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004 Fréttir DV í DV á mánudögum • Amerískir dagar standa nú yflr í verslunum Hagkaupa og kostar kílóið af frosnum kalkún 699 kr. í stað 859 kr. áður. Þá eru nokkr- ar nýjar vörur á boðstólum eins og morgunkorn frá Cascadian Farm sem unnið er úr lífrænt rækt- uðu hráefni og kjúklinga- bökur frá Fray Bentos. • í verslunum Krónunnar fást Gríms fiskbuff á 295 kr. í stað 399 kr., gróft Myllu samlokubrauð kost- ar 159 kr. enkost- |aði áður 198 kr og rflaska af rauðri 'eða blárri Egils orku kostar 179 kr. en kostaði áður 198 kr. Oetker pizza með salami kostar 239 k. Oetker speciale kostar 129 kr. og Oetker Hawaii kostar 149 kr. Dós af Heinz bökuðum baunum kostar 139 kr. en kostaði áður 165. kr. • í Expert kostar mínutugrili nú 5.490 kr. og heilsugrill 1.990 kr. Hakkavél kostar 5.990 kr. og eggja- suðutæki 1.990 kr. Brauðristar kosta frá 990 kr. og kaffikvörn kostar 2.490 kr. Expressó kaffivél kostar 6.990 kr. og gufustraujárn er á 1.990 kr. Hand- þeytari kostar 2.490 kr. og safapressa 3.990 kr. Hitari fyrir pyls- ur og pylsubrauð kostar 3.990 kr. , DV hvetur fólk til að senda inn hugmyndir á netfangið heilsa@dv.is og kaerilaeknir@dv.is ef fólk vill beina spurningum til Katrínar Fjeldsted. Heilsusíðan birtist ÍDV á mánudögum. Tekklistmn %/ Unnt er að koma í veg fyrir heila- blóðfall með forvörnum. Sumum áhættuþáttum getum við breytt og sumum ekki. / Áhættuþættir sem ekki er hægt að breyta. %/ Aldur. Likur aukast meö hækkandi aidri. Kyn. Heilablóðfail er algengara hjá körlum en konum. %/ Fjölskyldusaga. Efí fjölskyldunni er saga heilablóðfalla eða hjarta- og æðasjúkdóma er vert að láta fylgjast með blóðþrýstingi. %/ Fyrri saga um heilablóðfall eða samvinna heilablóðþurrð. ii'' Áhættuþættir sem hægt er að breyta. / Háþrýstingur. t/ Reykingar. %/ Kyrrseta. / Offita. / Sumirhjarta- sjúkdómar. %/ Hækkað kól- esteról. V— 1É %/ Áfengisnotkun. %/ Getnaðarvarnapilla. / Streyta. Útbjuggu sprautur og burstuðu tennumar Græðarar fornra þjóðflolika Indjána I Ameriku bjuggu til m sprautur til að sprauta lyfjum í lík- amann og er talið að þeir hafi verið þeir fyrstu hérl heimi sem sem gerðu slík. Sprauturnar bjuggu þeir til úr holum fuglasmábeinum og þvag- blöðrum úrsmáum nag- dýrum. Indjánarnir hönn- uðu lika fyrstu tann- burstana með þvi að kljúfa enda á priki og bursta tennur sinar með prikinu. Hópar starfsmanna í álverinu í Straumsvík hjóla eða ganga í og úr vinnunni. Heilsuátak sem hófst í byrjun árs hefur skilað miklum árangri. Gífurleg breyting á mannskapnum Gangandi og hjólandi hópar starfsmanna álversins í Straumsvík hafa vakið athygli Hafnfirðinga og annarra sem leið eiga um ná- grenni fyrirtækisins við vaktaskipti. Þegar farið er að skoða mál- ið kemur í ljós að mikil hugarfarsbreyting hefur átt sér stað inn- an veggja álversins. Breytingin er runnin undan rifjum starfs- mannanna sjálfra og hefur með heilsufarið að gera. „Mikil heilsuefling er í gangi í ál- verinu og þeir starfsmenn sem búa í Hafnarfirði og jafiivel þeir sem búa í Grafarvogi hafa hjólað í og úr vinnu og Hafnfirðingar sem hér starfa hafa gengið í og úr vinnu í sumar en nú er að skella á myrkur og vetur og maður veit ekki hvemig þetta verður en menn halda ömgglega áfram meðan veður leyfir," segir Reinhold Richter starfsmaður á vélaverkstæði í einum steypuskála álversins í Straumsvík. „Nokkur fjöldi starfsmanna tekur þátt í þessu. Innan fyrirtækisins er líka starfræktur gönguhópur sem var með skipulagða gönguþjálfun með leið- beinanda til að byrja með. Nú er boð- ið upp á gönguferðir með reglulegu miilibili og geta fjölskyldur starfs- manna verið með. Ég hef sjálfur farið í tvær slikar ferðir og líkað afskaplega vel," segir Reinhold. Gjörbylting og hollustan í fyrir- rúmi „Fyrr á þessu ári hófst heilsuátak í álverinu og tóku nærri allir fimm hundruð starfsmenn fyrirtækisins þátt í átakinu. Gífurleg breyting hef- ur orðið á mannskapnum. Það byrj- aði með því að ein vaktin í steypu- skálanum sem fékk til sín heilsuráð- gjafa til að mæla lfkamsástand steypuskálastarfsmanna og fá ráð- leggingar um mataræði og hreyf- ingu. Árangurinn var mældur með vissu millibili og lét ekki á sér standa. Þetta vakti mikla athygli innan fyrir- tækisins og margir fóru að hugsa sinn gang,“ segir Reinhold. „Álverið kom strax til móts við okkur, var til í slaginn og allir starfsmenn fengu ávísanir sem nýttust á líkamsræktar- stöðvum. Það má því segja að hér hafi orðið gjörbylting, kílóum hefur fækkað og almennt heilsufar hefur batnað. „Við erum með ofboðslega gott mötuneyti hérna, kannski of gott,“ heldur Reinhold áram. „Það kom inn í heilsuátakið lfka og núna er sósa og feiti ekki sjálfgefið á hvern disk. Á matseðlinum eru upplýsingar um kaloríufjöldann í fæðunni og í hádeginu er boðið upp á salatbar og svo eru ávextir á boðstólum í öllum deildum fyrirtækisins. S Ssssssr Erlaspyr: Kæri læknir Nú eru skólarnir að byrja og haustið skammt undan. Krakkarnir mínir hafa verið duglegir við að borða græn- meti í sumar en nú velti ég fyrir mér hvort æskilegt sé að gefa þeim vítamín með lækkandi sól. Dregur það úr hæfni líkama þeirra til að vinna vítamín úr fæðunni? Hvaða vítamín ætti ég helst að gefa þeim og hverjum ætti ég að sleppa Og bara vegna sjálfrar mín - eykst þörf mannslíkamans fyrir vítamín úr öðru en fæðunni með aldrinum? Kveöja Erla. ABCD Kæra Erla. Já, skólarnir hafa hafið störf og haustið er á næsta leiti. Mikið fram- boð hefur verið af fersku grænmeti sem framleitt er hér heima og gott að heyra að börnin þín skuli neyta þess. Því miður eru alltof mörg heimili sem af ýmsum ástæðum sjá börnum sínum ekki fyrir nægu græn- meti og ávöxtum. Sumsstaðar er það af áhugaleysi eða þekk- ingarleysi, foreldrar eru jú mis- jafnir hvað þetta varðar eins og gef- ur að skilja. Sumt fólk vill ekki græn- meti, aðrir telja sig ekki hafa efni á því að kaupa það sem til þarf. Ég álít að leita þyrfti leiða til þess að lækka verð á matvælum enn frek- ar, svo sem með því að afnema virð- isaukaskatt af lífsnauðsynjum. Ný- lega heyrði ég af tilraun sem gerð var í nokkrum breskum skólum og fólst hún í því að yngstu nemendunum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.