Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1934, Qupperneq 85
Bækur þjóðvinafélagsins í ár.
Ársbækur félagsins i ár eru: Andvari, 58. árgangur,
Almanak um árið 1934, 60. árgangur, og Jón Sigurðs-
son, V. bindi. Pessar bækur fá félagsmenn fyrir árs-
tillagið, 10 kr. En í lausasölu er verðið: Andvari3kr.,
Almanakið 2 kr., Jón Sigurðsson 7 kr., eða nokkuru
hærra, svo að ódýrast er þeim, sem bækurnar vilja
eiga, að gerast félagsmenn, enda verðið afar lágt mið-
að við örk.
Andvari flytur i þetta sinn æviágrip og mynd af
Klemens Jónssyni, og er æviágripið samið af Hall-
grimi bókaveröi Hallgrimssyni. Pá er næst ritgerð
eftir Dr. Bjarna fiskifræðing Sæmundsson og hefir að
geyma hinar stórmerku rannsóknir hans,' sem fram
hafa farið tvö hin siðustu ár. Er það framhald hinna
fyrri rannsókna, sem Andvari hefir birt jafnan frá
upphafi eftir þennan höfund. Pá kemur grein uni
Arnarvatnsheiði eftir Kristleif Porsteinsson á Kroppi
Er þar margvíslegur fróðleikur um staðháttu á þessu
mikla heiðalandi, og hefir timaritið viljað nýta sem
bezt þekkingu hins fróöa höfundar, áður en um
seinan yrði.
Almanakið flytur að vanda nokkurar ævisögur út-
lendra merkismanna. Hafa að þessu sinni orðið fyrir
valinu fjögur höfuðskáld, þau er hlotið hafa bók-
menntaverðlaun hin siðustu ár úr sjóði þeim hinum
mikla, sem við Nobel er kenndur, en það þykir nú
mestur frami skáldum um heim allan; hefir þeirra
engra áður verið getið i almanakinu, en annarra
þeirra, sem þann frama hafa hlotið, er þar áður
minnzt að nokkuru. Pá tlytur almanakið að vanda
árbók Islands árið 1932 eftir Benedikt Gabríel Bene-
diktsson. Næst er ritgerð um krabbamein eftir Dr.
Gunnlaug yfirlækni Glaessen, og er sá höf. áður að
(81) 6