Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1936, Side 47

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1936, Side 47
knýja fram sinn málstað, því vopni, sem þá var tal- ið beittast, allsherjarverkfalli. Almenningsálitið var samt mjög á móti þessu verkfalli, og það fór út um þúfur, og' varð verkamannaflokknum hin sárasta reynsla og að visu þjóðinni allri. Eftir kosningarnar í maí 1929 fór Baldwin frá, en MacDonald myndaði stjórn að nýju (8. júní), en sú stjórn sagði af sér 25. ágúst 1931 og var þá mynduð samsteypustjórn eða þjóðstjórn, og í henni varð Bald- Win í raun og veru valdamesti maðurinn, þótt Mac- Donald væri forsætisráðherrann áfram, en flokkur hans klofnaði út af þessu. Baldwin hefir að sjálfsögðu látið mörg stjórnmál til sín taka, sem engin tök eru á að lýsa hér. En hann hefir líka fengizt við fleira og ýmislegt af því, sem hann hefir sagt um ópólitísk mál, hefir verið gefið út í bók (On England). Hann á einnig kyn til þess að bera gott skyn á fleiri hluti en kaupsýslu og stjórn- mál, og hefir hann það úr móðurætt sinni að vera listelskur og bókhneigður og smekkmaður á mál og stil. Skólamenntun sina fékk hann í Harrow og i Trinity í Cambridge. Móðir hans, sem var prestsdóttir, var menntuð merkiskona, eins og þær systur fleiri, og í miklum metum hjá manni einsog William Morris, en systir hennar var gift vini hans og félaga, Burne-Jones. Önnur systirin var gift Kipling, og eru þeir þá systra- synir, Baldwin og skáldið Budyard Kipling, sem margir þekkja hér af sögunni Sjómannalíf og fleiri ritum hans. Baldwin talar sjálfur fallegt mál og hefir oftar en einu sinni hvatt landa sína til þess að vanda og fegra tungu sína, og þá m. a. varað þá við of mikl- um Ameríku-áhrifum. Hann er maður blátt áfram og alþýðlegur, að mörgu leyti púrítani í gömlum stíl, og er stundum harðorður, þegar honum virðist »alda óhófs og efnishyggju« flóa háskalega yfir þjóð sína. Og hann hefir hvað eftir annað í ræðum sínum gerzt ákveðinn talsmaður lýðræðis og þingræðis gegn vax- (43)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.