Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1947, Page 22
GANGUR TUNGLS OG SÓLAR A ÍSLANOI.
1 þriðja dálki hvers mánaðar, sem hefir yfirskriftina »T. í h.« (tungl í
hásuðri), og í töblunni á blaðsíðu (15) er sýnt, hvað klukkan er eftir íslenzk-
um miðtíma, þegar tunglið og sólin eru í hásuðri i Reykjavík. En komast má
að því, hvað klukkan er eftir íslenzkum miðtíma, þegar tunglið eða sólin
eru í hásuðri annars staðar á íslandi, með því að gera svo nefnda »lengdar-
leiðréttingu* á Reykjavíkurtölunni. Verður hún +- 4 mínútur fyrir hvert lengdar-
stig, sem staöurinn liggur vestar en Reykjavík, og — 4 mín. fyrir hvert
lengdarstig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík. T. d. er Raufarhöfn
um sex lengdarstigum austar en Reykjavík; lengdarleiðréttingin þar er þá
— 24 mín., og 5. júlí er sól í hásuðri frá Raufarhöfn þess vegna kl. 12 08.
(12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiðafirði liggur einu lengdarstigi vestar
en Reykjavík og lengdarleiðréttingin er þar 4 mín. Þann 6. febrúar er því
tungl í hásuðri frá Flatey 1 16 (1 12 4- 0 04 = 1 16).
Sólargangurinn i Reykjavík er tilgreindur í almanakinu hvern miðvikudag.
Sólargangurinn er talinn frá sólaruppkomu (su.), þá er miðja sólar sést koma
upp fyrir láréttan sjóndeildarhring, og til sólarlags (sl.) þá er sólmiðjan sést
fara niður fyrir sjóndeildarhringinn. Til þess að finna sólarganginn annars
staðar á landinu, þarf að gera lengdarleiðréttingu á Reykjavíkurtölunni á sama
hátt sem við sól eða tungl f hásuðri, en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi að eins eftir breiddarstigi staðarins, heldur
er hún einnig komin undir sólarganginum í Reykjavík. í eftirfarandi töblu er
sýnd breiddarleiörétting fyrir hvert hálft stig, norðar og sunnar en Reykjavík,
þegar sólargangurinn f Rvík stendur á heilli stundu. Leiðréttingin er pósitíf
(+), þegar sólargangur lengist vegna hennar, en negatíf (—), þegar sólar-
gangurinn styttist. Ðreiddarleiðrétting töblunnar er því lögð við tíma sólar-
lagsins í Rvík, en dregin frá sólaruppkomutímanum. Sé breiddarleiðréttingin
negatíf (—), veröur aö taka forteiknið til greina.
Dæmi: Sólargangur 30. april á Raufarhðfn, sem er 6 stigum austar og 2xh
stigi noröar en Rvík.
Þenna dag er sólargangur f Reykjavfk 16 st. 34 mfn. Breiddarleiðrétting
töblunnar fyrir 2V2 stig norður og sólargang 16 st. er + 16 mín. en fyrir 17
st. -f- 23 mín. Fyrir 16 st. 34 mín. verður hún því -f- 20 mín. Lengdarleiörétt-
ingin er — 24 mín.
f Reykjavfk.................«u. 4 09 sl. 20 43
Ðreiddarleiðrétting . . — 20 +20
Lengdarleiðrétting . . — 24__________— 24
A Raufarhöfn................su. 3 25 sl. 20 39
Annað dæmi: Sólargangur 29. okt. í Flatey á Breiöafirði, sem er 1 stigi
vestar og 1 V« stigi norðar en Rvfk. Sólargangur f Reykjavík er 8 st. 12 mín.
f Reykjavfk................su. 8 01 sl. 16 21
Breiddarleiörétting . . +7 — 7
Lengdarleiðrétting . . + 4___________-+ 4
f Flatey....................su. 8 12 al. 16 18
(20)