Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1979, Page 165
Eru vísindi yfirhöfuð nytsamleg? Hin síðari: Ef svo er,
hvernig stendur á því?
Fyrri spuminguna ætla ég að leiða hjá mér af sömu ástæðu
og áður: ég treysti mér ekki til að takast á hendur heim-
spekilega greiningu á nytsemdarhugtakinu. En að síðari
spumingunni ætla ég að víkja nokkrum orðum: hvernig
stendur á nytsemi vísindanna ef nokkur er?
Ég byrja á tilvitnun:
„Hvar sem vér erum á jörðunni, eru þeir hlutir hvervetna í
kríngum oss, sem draga að sér athygli vora, og alstaðar verða
þeir viðburðir fyrir oss, sem verðir eru nákvæmari skoðunar.
Ef vér hefjum augu vor til himins, þá verður þar á daginn
fyrir þeim hin' vermandi, bjarta og tignarlega sól, en á næt-
urnar hinn blíði máni og blikandi stjörnur. Ef vér lítum til
jarðarinnar, þá sjáum vér þar, auk sjálfra vor, dýr, grös og
steina, fjöll, dali, vötn, o. s. frv., allt saman hvað öðru frá-
brugðið og margbreytt. Fuglarnir skemta oss með kvaki og
saung, blómin og fiðrildin með fjölbreyttu litaskrauti, sem
þeim er gefið. Þúsundum saman tindra nú ljómandi daggar-
dropar á blómknöppunum, en næsta dag fara, ef til vill,
þjótandi eldíngar um geiminn, og loptið hristist fyrir dun-
andi skruggum. Þessir og aðrir líkir hlutir eru skoðunarefni
náttúruvísindanna, sem eru ótæmandi efnisrík og mjög
mikils varðandi."
Ég las hér inngangsorð Eðlisfrœði þeirrarsem séra Magnús
Grímsson íslenzkaði um miðja nítjándu öld, því að fjöl-
breytileika náttúrunnar er þar skáldlegar lýst en okkur er
tamt nú á dögum, og það er einmitt þessi fjölbreytileiki sem
ég vil nú biðja hlustendur mína að setja sér fyrir hugskots-
sjónir. Það er augljóst að lista séra Magnúsar um skoðunar-
efni náttúruvísindanna mætti lengja að vild, og raunar hlýtur
það að virðast óvinnandi verk að telja upp allan þann fjölda
fyrirbæra sem þau gætu látið til sín taka, hvað þá að lýsa
þeim til nokkurrar hlítar. Og það er ekki fjölbreytileikinn
einn sem ætti að vaxa okkur í augum. Jafnvel það að lýsa
einum hlut til fullnustu virðist hverjum manni ofviða. Ein-