Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Page 10
10 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 Helgarblað J3V Fín heimildarmynd en ádeila er þetta ekki Ég verð nú að viðurkenna að ég hafði ekki hugmynd um að verið væri að ffamleiða þessa mynd fyrr en vinur minn bauð mér á frumsýningu íslenska sveitin Leikstjórar: Friðrik te4 Guðmundsson og Kristinn Hrafnsson. ... Sýnd i Háskólabíói ★ ★"i Ómar fór í bíó hennar um daginn. Ég horfði á að- standendur myndarinnar tala um hana í sjónvarpinu og hélt að ég væri að fara að horfa á beitta áróðurs- mynd eða ádeilumynd um friðar- gæslusveitina í Afganistan sem hefur verið mikið í fréttum upp á síðkastið. Bjóst ég þá við mynd sem hallaðist meira gegn þátttöku okkar í þessum átökum. Það sem var sýnt var hins vegar bara ágætis innsýn í líf nokkurra manna sem vinna við uppbyggingu flugvallarins og verða að bera vopn vegna hættunnar sem er í kringum þá. Það fyrsta sem myndin gerir er að í uldanna rós Lækjargata 2a sími 511-5001 opið 10-22 alla daga GYT.FI GRONDAl ■ 1 w* W . IilSefum'ínúturl 1 i ^ 1 * 1 m i Wh 1 I I 2. m | 1 fiíÆ l | I 1 ; K VllSMM 1 ómssT H| Bex’telsson ..cer. JE ■ - Bókabúðin IÐA býður allt að 1% afsl. af nýjum bókum nú um hcleina. sýna okkur hvað þessir menn eru raunverulega að gera þama. f stað- inn fyrir að sjá snargeðveika byssu- brjálæðinga sem gera lítið annað en að skjóta fólk, eins og margir vilja halda, fáum við nokkra karla, suma hálfálkulega við vopnaburð, vinna byggingavinnu og hafa það bara ágætt. Þess vegna er erfitt að sjá hvað kvikmyndagerðarmennimir vilja segja með myndinni, ef það hefur verið eitthvað annað en fyrrgreindir hlutir. Myndin gagnrýnir ekki mikið svo sjáanlegt sé en það em nokkrir punktar þarna inn á milli sem sýna að þeir hafa viljað segja eitthvað meira, eins og þegar einn mannanna segir frá gífurlegum vatnsskorti í landinu á sama tíma og einn þeirra svamlar í sundlaug inni á hersvæð- inu. Það er eitthvað fyndið við það að horfa á íslendinga reyna að hlaða skammbyssur og öskra KR um leið og þeir skjóta. Maður er ekki vanur að sjá landa sína bera vopn, hvað þá vélbyssur og þvíumlíkt og að þeir séu uppstrflaðir eins og hermenn. Það em fyndnustu hlutar mynd- arinnar að sjá þá æfa sig á vopnun- um sem þeir verða að bera ef koma skyldi til átaka. Hins vegar er mynd- in svolítið löng og mætti alveg við smávegis snyrtingu hér og þar. Það vantaði líka að myndin yrði persónulegri. Við fylgjumst með of stómm hópi manna og náum aldrei almennilegum tengslum við neinn þeirra. Það vantaði lflca, að mér fannst, ákveðna uppbygginu og endapunkt til þess að koma skiia- boðunum heim á leið, ef einhver vom. Einnig hefði verið gott að fá viðtöl við einhverja aðra hermenn en þá íslensku því maður fékk að heyra að menn vom ekki of hressir með það að einhverjir íslenskir strákar með litla sem enga herreynslu vom settir strax í yfirmansstöður. Einnig hefði verið gott að fá viðtöl við heimamenn. Ég fékk á tilfinninguna að myndin væri ekki alveg tilbúinn þegar ég horfði á hana því að efnið í stórgóða heimildarmynd er til staðar en manni fannst eins og aðstandendur hefðu ekki setið nógu lengi yfir henni til þess að takast það. Þetta er ekki mynd sem á eftir að vera eldsneyti fyrir andstæðinga frið- argæslunnar því að hún sýnir hrein- lega ekkert neikvætt í þeim skilningi og ég veit satt að segja ekki hvað ut- anríkisráðuneytið hefur að setja út á hana, ef það hefur einhvern tíma verið raunin. En þetta er ágæt innsýn inn í líf þessara manna sem þama búa og ég held jafnvel að hún eigi eftir að vera hvatning fyrir einhverja til þess að fara þangað út og vinna. ÓmarÖrn Hauksson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.