Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Qupperneq 15
W Helgarblað
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 15
tímum, marði frá sér, en sprakk
ekki, á leið upp í heila og spurning-
in var hvað hann myndi skemma
mikið. Ég fann hvernig mátturinn
þvarr á Slysavarðstofunni en þegar
þetta allt var gengið yfir kom í ljós
að ég var lamaður að mestu öðru
megin, frá hálsi og niður. Háls og
höfuð sluppu,“ útskýrir Þórir og
strýkur vinstri hendi niður eftir
skrokknum.
Kraftaverki næst hve vel hef-
ur gengið
Við tók endurhæfing sem staðið
hefur síðan í júlí í sumar þegar
áfallið reið yfir. Hann segir að á
þessum tíma hafi orðið ótrúlegar
framfarir, en með hjálp frábærra
sjúkraþjálfara og annnarra starfs-
manna á Grensásdeild hafi hann
náð sér nokkuð vel.
„í raun er það kraftaverki næst
hvað þetta hefur gengið vel en
læknar þakka það að hluta hve
góðri líkamlegri þjálfun ég var í fyr-
ir. Nú er ég kominn heim og held
áfram að æfa mig,“ segir hann og
brosir.
Þórir játar að þetta hafi verð
mikil lífsreynsla en samþykkir ekki
að hann hafi óttast svo mjög að líða
endanlega út af þegar tappinn var á
leið upp í heilann. „Sú tilfinning
kom ekM yfir mig, ég var bara reið-
ur, alveg ofsalega reiður," segir
hann og hlær að minningunum.
„Já, það hefði alveg eins getað gerst,
en mér var ekki ætlað að fara þarna
og fyrir það er ég þakklátur. Vinnu-
félagi minn var ekki eins lánsamur
og lést fyrir aldur fram,“ bætir hann
við alvarlegur.
Endurheimtir orkuna smám
saman
Þórir er bjartsýnn og reiknar
með að ekki líði á löngu þar til hann
getur farið að vinna að nýju, í það
minnsta hluta úr degi. Margrét,
einkona hans, lítur til hans og hrist-
ir höfuðið og vill meina að nægur
tími sé til stefnu. „Það er alveg rétt,
ég hef ekki náð fullum krafti enn og
eðlilega er ég fljótur að þreytast.
Fyrst hafði ég aðeins 10-15% orku
og var þreyttur. Á þessum fjórum
mánuðum hef ég náð tveimur
þriðju hennar aftur. Hvernig á ég að
vera annað en ánægður með þann
árangur?" spyr hann og bætir við að
það séu ekki allir svo heppnir eins
og hann.
„Á meðan ég var á Grensásdeild-
inni áttaði ég mig á að þar er fólk
sem kippt var út úr lífinu á öllum
aldri og sættir sig við það sem það
hefur með hugrekki. Ég fór þangað
inn lamaður öðrum megin en nú ek
ég bíl og fer allra minna ferða," seg-
ir hann og bætir við engin ástæða
sé til að ætla að hann eigi ekki eftir
að verða samur aftur.
„Já, þá er það rannsóknarlög-
reglan í Kópavogi sem tekur við að
nýju. Þar hef ég verið síðan Ríkis-
lögreglustjóri tók við af RLR. Ég er
afskaplega ánægður þar og kann vel
við mitt starf. Nú, svo leik ég í aug-
lýsingum annað slagið, og meira að
segja var hringt til mín á spítalann
og ég beðinn um að taka að mér
verkefni. Það varð auðvitað ekkert
af því.“
Ekki viðkvæmur fyrir pappa-
löggunni
Þórir er ekki aðeins þekktur fyrir
auglýsingar, leiklist og lögreglu-
störf. Hver man ekki eftir pappa-
löggu dómsmálaráðherra á sínum
tíma? Hann hlær þegar minnst er á
það fræga hlutverk. „Nei, ég er ekki
viðkvæmur fyrir pappalöggunni. Ég
var beðinn að taka þetta að mér og
ég gerði það. Tilgangurinn var að
reyna að fækka slysum og draga
niður hraða á Reykjanesbrautinni
en það er þekkt að utan að notaðar
séu pappalöggur. Tilraunin var vel
þess virði að reyna hana,“ bendir
hann á og kærir sig kollóttan um að
gert hafi verið grín að þeirri góðu
löggu.
Áður en Þórir gekk í lögregluna
lék hann á sviði, bæði hér sunnan
heiða og norður á Akureyri. Hann
segist hafa kunnað því vel og verið
ánægður með leikarastarfið. „Það
var hins vegar dálítið skondið
hvernig það bar að, að ég fór í lög-
regluna,“ segir hann og rifjar upp
þá sögu. „Ég var að leika í Jeppa á
Fjalli sem gekk hér fyrir miklum
vinsældum í Þjóðleikhúsinu. Lárus
heitinn Pálsson lék Jeppa en ég ein-
hvers konar pólití. Jeppi var alltaf á
því og það þurfti að hafa afskipti af
honum. Það var þá sem Lárus sagði
við mig að mér færist þetta svo vel
úr hendi að ég ætti auðvitað að
sækja um í lögreglunni. Mig vantaði
bóta. Það var aðeins til að gera
þetta þyngra í vöfum og ljölga
kóngunum," bætir hann við.
Mikið lán að konan upp-
götvaði veikindin
Þórir er í góðu formi fyrir utan að
vera að jafna sig eftir blóðtappann.
Hann segir það geta komið fyrir
hvem sem er að fá tappa við heilann
Þá leist konunni ekkert á blikuna. Ég hélt varla
jafnvægi, var sveittur, flökurt, fölur og fár.
sumarvinnu um vorið og tók hann á
orðinu. Ég var nokkur sumur í lögg-
unni og kunni því vel. Það endaði
síðan með að ég sótti um hjá RLR
og fékk þar stöðu," segir hann og
telur það mikið ólán að RLR skuli
hafa verið lögð niður. „Það var rétt-
arfarslegt slys og hefur ekki orðið til
og hann sé alls ekki í meiri hættu en
hver annar. „Ég þarf ekki að hafa
neitt meiri áhyggjur en aðrir þó að
ég hafi fengið þennan tappa, enda
óttast ég ekki að fá annað áfaU," út-
skýrir hann og bætir við að þegar
hann lá sem veikastur á spítalanum
og beið eftir að tappinn færi í gegn,
hafi honum einkum verið hugsað til
sjö ára sonar sem hann á með
Margréti Guðlaugu Sigurðardóttur,
núverandi konu sinni.
„Ég velti því heilmikið fyrir mér
hvort það hefði verið rétt af mér, á
mínum aldri, að eignast barn en ég
sé ekki eftir því. Það er ótrúlega
gaman að hafa þann þroska sem
maður hefur sem faðir um og yfir
fimmtugt og ala upp barn. Það er
mjög skemmtileg og gefandi reynsla
enda erum við hjón mjög heimakær
og róleg. Tengdamóðir mín býr á
neðri hæð hússins og það eru for-
réttindi fyrir hann og okkur. Hún er
heima þegar drengurinn kemur úr
skólanum og hann kemur aldrei að
tómu húsi. Börn hafa gott af að alast
upp með konu af hennar kynslóð,"
segir hann og Margrét kinkar kolli til
samþykkis.
Lífið er hverfult og enginn veit
sína skapadægur. Því fékk Þórir að
kynnast. Það hefði allt eins getað
verið hann sem kvaddi. „Það var
mikið lán að Margrét skuli hafa átt-
að sig á veikindum mínum þarna
um morguninn og ég er ekki viss um
að þetta hefði farið svona vel ef hún
hefði ekki hringt á sjúkrabíl.
Ef ég hefði harkað af mér og farið
í sund, hvað þá? Það er aldrei hægt
að fullyrða neitt um svona hluti.
Manni er ætíaður brottfarartími og
röðin var ekki komin að mér í þetta
sinn. Fyrir það er ég þakklátur," seg-
ir Þórir og vill beina því til allra sem
kunna að finna til svipaðra ein-
kenna og hann að láta ekki hjá líða
að fara til heila- og taugasérfræð-
ings. „Miklar líkur eru á að þá hafi
menn áttað sig á hvað var í gangi.
Þessi hárfína lína á milli lífs og
dauða getur verið svo örfín."
bergljot@dv.is
www.toyota.is
Rúðuþurrkur með slitmæli fyrir allar gerðir Toyota
Öryggi þitt í umferðinni veltur á útsýninu og rúðuþurrkurnar
eru því eitt mikilvægasta öryggistæki bílsins. Toyota Optifit
þurrkublöðin eru búin sérstökum slitmæli sem gerir þér viðvart
þegar skipta þarf um þurrkublað.
Optifit rúðuþurrkur, verð frá 490 kr.
Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570-5070
Þurrkublöðin smellpassa og ná yfir mesta hugsanlegan flöt á
framrúðunni. Sjáðu betur út úr bílnum þínum í vetur.
Komdu og fáðu það öruggasta sem völ er hjá viðurkenndum
þjónustuaðilum Toyota.
TODAY TOMORROW TOYOTA