Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004
Helgarblað DV
a«
Fjármálaráðherra mætti í tilefni dagsins
„Viö Þórhallur ræddum saman
í síma að morgni þriðjudagsins og
ákváðum að taka skattalækkunar-
frumvarpið fyrir. Ég mætti svo upp
á Lyngháls um hádegisbil og Öss-
ur Skarphéðinsson hafði þá
ákveðið að mæta í þáttinn til okk-
ar. Ég hringdi í ritara fjármálaráð-
herra, Geirs Haarde, tÚ að fá hann
til að koma líka. Hún hringdi svo
nokkru síðar og sagði hann ekki
geta mætt í útsendinguna. En svo
frétti hann víst að þetta væri síð-
asti þátturinn minn, breytti stund-
askránni sinni og tilkynnti að
hann myndi koma, ég lít á þetta
sem eins konar kveðjugjöf frá
honum til mín.
Nú, þá var þetta orðið klárt og
ekki annað að gera en leggjast í
frumvarpið, leita uppi allt sem um
það hafði verið sagt og skrifað og
ræða við fólk með skoðanir á því,
með og á móti. Þetta tók drjúgan
part dagsins en síðan bárum við
Þórhallur saman bækur okkar og
gerðum þáttargrindina. Ég hafði
ætlað mér að mæta tímanlega í
smink í þetta skipti, njóta þess í
botn að láta dekra við andlit og hár.
En eins og venjulega mætti ég
hlaupandi korteri fyrir útsendingu
svo þetta var stress frekar en dekur.
Þátturinn fór í loftið, en sam-
starfsmenn mínir höfðu klippt sam-
an ýmis skondin atvik úr fyrri þátt-
um og þetta var sýnt í lokin og kom
mér skemmtilega á óvart. Að lok-
inni útsendingu komu svo allir af
vaktinni og aðrir samstarfsmenn til
okkar, en Össur og Geir höfðu beðið
eftir þáttarlokum og reiddu fram
fallega að ég fékk tár í augun.
Að hófinu loknu rauk ég
heim og var þar með tekið
með kostum og kynjum.
Seinna um kvöldið náði ég
að skjóast í saumaklúbb
með vinkonum úr Versló en
lagðist að lokum þreytt og
sæl á koddann, full
eftirvæntingar
því morgun-
inn eftir
hófst jóla
korta-
gerð
in.“
veitingarnar í þessu
Jóhanna Vilhjálmsdóttir rifjar upp kveðjuhófi. Ég þakkaði
slöasta þáttinn aflslandi /dag. samstarfið á Stöð 2 og
HHBuBBH mér var þakkað svo