Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Page 30
30 LAUCARDAGUR 4. DESEMBER 2004
Helgarblað jyv
Einföldiiog
ódýru húsraöin
Á síðum veraldarvefsins eru menn
boðnir og búnir að veita hver öðrum
góð ráð varðandi allan heimilisrekstur.
Þessi heilræði eiga það sameiginglegt
að vera byggð á reynslu fagmanna,
hér er moðað úr því sem hendi er næst
og árangurinn lætur ekki á sér standa.
Viö eldavélina
Efsvo illa hefur tek-
ist til að súpa eða
kássa erorðin of
söltþarfekki að
gera annað en
skella hrárri kartöflu út!.
Hún drekkur í sig saltið á 5 mlnútum
og allt er komið í lag.
iM
Brædd fítan úr feitum físki
eða keti flýtur á yfir-
\ boröi soðsins þegar
sósurog súpureru
lagaðar. Þeirsem vilja
losna við þessa fitu
þurfa ekki að kosta miklu til, leggið
grænt salatblað að eigin vali ofan á
soðiö og látið malla. Þegar fitan er
horfm má fjarlægja salatblaðið.
Eins og flestir sjálf-
sagt vita er enginn
leikur að sjóöa hrls-
grjón svo velsé.
Sumum gengur til
dæmis mjög illa að
hemja suðu grjónanna ípottinum en
efbrún hans erroðin ofurlitlu smjöri
hættir með öllu að sjóða upp úr hon-
um.
Þegar lltill tími er
til stefnu og fjöl-
skyldan situr
gólandi afhungri
við matarborðið
má spara tíma
meö þvi að salta ekki
vatnið sem sjóða á pöstuna I fyrr en
eftir að suðan er komin upp. Salt vatn
er nefnilega nokkuð lengur aðná
suðumarki en það tæra.
Ýmis ráð
Ekki hella vlnafgöngum úr
flöskum að lokinni vel
heppnaðri veislu. Frystið
þá eins og Ismola og not-
ið I sósur, súpur og kássur.
Þegarrörin I vöskunum
stlflast er ekki ástæða til
að sleppa sér strax. Fyrst aföllu er rétt
að setja eins og 1/4
afmatarsóda I nið-
urfallið og slðan
1/4 bolla afediki.
Setja svo tappann I
og hlusta á efnin
bulla I niðurfallinu
en um leið og því er
lokið er heitt vatn
látiö streyma góða stund. Stlflan hefur
þá að öllum llkindum losnað en efekki
er eitthvað annað og meira að og
alveg óhætt að sleppa sér.
Jón Jósep Snæbjörnsson söngvari hljómsveitarinnar / svörtum fötum og söng-
leikjastjarna hefur gaman af þeirri eldamennsku sem hann ræður við. Hann sér
um allan gerbakstur á sínu heimili.
hm Jöseþ SfHtelii&rh&sön
f Vúr ekkí matmndtif laakkl
sfi hefveriö að kðnn t iriér
Uf 'p filfi l.niirit féf’VfáktltÍi
'ríéð alílrimun
„Ég er ekkert sérstakur kokkur,"
segir Jón Jósep Snæbjörnsson
söngvari, sem flestir þekkja sem
Jónsa. „Stundum er ég hreinlega
alveg úti að aka í eldhúsinu. Ég er
hins vegar mjög góður í öllum
brauðbakstri en um leið og fleiri
fæðuflokkar bætast við taka málin
að flækjast mjög mikið."
Matvendnin eykst með aldr-
inum
Jónsi segist ekki setja hvað sem
er inn fyrir sínar varir. „Þegar mað-
ur er í mikilli álagsvinnu verður
maður að passa upp á fæðuna og
samsetningu hennar. Gæta þess að
fá næringu úr öllum fæðuhringn-
um og gæða sér á ávöxtum og
grænmeti frekar en sætindum. Ég
og fjölskyldan erum mjög vakandi
fyrir fæðunni, sonur-
inn borðar það sem
fyrir hann er lagt.
Sjálfur var ég ekki
matvandur krakki en
hef verið að koma
mér upp alls konar
sérviskum með aldr-
inum og hef eigin-
lega enga skýringu á
þessari þróun."
KjMKiingareiiuimii
(Jndlr áhrifum fráJtUflle Olivéi.
Jafvígur á kjöt á fisk
Þó velur Jónsi yflrleitt fiskinn.
„Hann er svo léttur og þægilegur í
maga. Fyrir tónleika og sýningar
verð ég að borða vel því ég brenni
svo óskaplega miklu. Ég myndi
grennast of mikið ef ég passaði
ekki vel upp á þetta. Ég reyni sem
sagt að borða hollan og fjölbreytt-
sinnum á dag ef
vel á að vera." Og Jónsi snýr sér að
íturvöxnum kjúklingi. „Ég ætla að
elda kjúklingarétt sem er mjög vin-
sæll hér á heimilinu og viðurkenni
fúslega að þar er ég undir sterkum
áhrifum frá Jamie Oliver hinum
enska og uppfinningasama."
rgj@dv.is
Kiúkllngaréttur
Jénsa og Jamie
Kjúklingur að eigin vali.
Sérsaltaða smjörið frá Osta- og
smjörsölunni látið mýkjast á
eldhúsborðinu góða stund.
Síðan er hrært út íþað þvíjurta-
kryddi sem finnst í skápum og
skúffum; timjan, oregano,
basilikum, myntu ofl.
Þessu er þrýst með lagni og
þolinmæði undirhúð kjúklingsins.
Sítrónuhelmingi stungið inn i
kjúklinginn og lárviðarlaufum sitt
hvoru megin.
Steiktur í220°C heitum ofni i 20
mínútur, þá er hann tekinn upp og
lagður til hliðar, gróftsöxuðum
sætum kartöflum stráð í skúffuna
eða eldfasta mótið, niðurskornum
sjalottlauk, sveppum, salti, pipar
og ólífuolíu,
Kjúklingurinn lagður ofan á þetta
og steiktur áfram í ofninum við
heldur vægari hita þar til hann er
steiktur og grænmetið bakað í
gegn.
HVENÆR FÓRSTU
SlÐAST ÚT AÐ BORÐA?
„Ég fór í hádeginu í gær með
mannfræðistöllum mínum á
Enricos. Hann er staðsettur þar
sem Búnaðarbanki íslands og síð-
ar Kaupfélagið voru til húsa. Sér-
lega sætur og rólegur staður fyrir
hádegisverðarfund af létt-
ara tagi. Ég fékk mér
einstaklega ljúffengan
steiktan lax og var hin
ánægðasta."
Jóhanna K. Eyjólfs-
dóttir, framkvæmda-
stjóri Amnesty
International á ís-
landi.
Caruso
★★★
Veitingarýni
borð með pönnusteiktum kartöflu-
plöttum og laukgrænmeti, svo og
ágætu hrásalati. Allt synti þetta í
miklu smjöri í bland við hvítlauks-
sósu. Súpa dagsins var frönsk lauk-
súpa eins og á Borginni fyrir hálfri
öld. Panna Cotta-búðingur var með
afar daufu sítrónubragði, með
ferskum berjum og vel þeyttum
rjóma. Espresso
kaffi var ekta, að-
eins beizkt og gott.
Hafa má það til
marks um, hversu
marklausar eru
veitingar hér á
landi, að verðið á
la-la stað eins og
Caruso er hærra
en á beztu mat-
stöðum í New
York. Það er ekki
við að búast, að ís-
lendingar fari mik-
ið út að borða.
Ekkert vit er í að borga 5100 krónur
fyrir hversdagsmat, áður en kemur
að kaffi og víni.
Jónas Kristjánsson
Heimsverð í Bankastræti
Kokkurinn í Caruso við Banka-
stræti fattaði í eitt skiptið, hvað ég
var að gera. Þá hlífði hann pönnu-
steikta fiskinum við örbylgjuofnin-
um, sem tekur allt bragð úr fiski, ef
frysting er ekki þegar búin að því.
Að öðru leyti kom allur steiktur
matur snarpheitur úr örbylgjuofni,
miklu heitari en pönnusteiktur
matur er venjulega og æskilega.
Caruso er með skárri stöðum,
sem segjast vera ítalskir út á mikið
framboð á pöstum, 1700 krónur, og
pítsum, 1600 krónur. Eins og Ítalía
er þetta tæplega þriggja stjörnu
staður, notar ekki frosinn fisk, betri
en nýju staðirnir, sem skjóta víða
rótum til að liggja í leyni fyrir túr-
hestum, einkum við Laugaveginn.
Caruso er líka næstdýrastur þessara
staða, 5100 krónur, ef snætt er þrí-
réttað með vatni. Hádegisverður er
1350 krónur fyrir súpu og aðalrétt.
Flest er eins og það hefur alltaf
verið, þar með matseðill. Sveppa-
hattar með gráðosti og hvítlauk
hafa verið þar frá upphafi, snarp-
heitir með yfirgnæfandi ostbragði.
Hversdagslegt franskbrauð er enn
borið á borð í miklu magni með
smjöri í álpökkum. Borðin eru ber
og þurrkur eru úr pappír. Sumt hef-
ur þó batnað, þjónustan er skólaðri
og ljósin nægja til að lesa matseðla.
Sumt hefur versnað, ekki er lengur
hægt að fá risotto og kitsið hefur
aukizt í gluggum og hillum.
Matreiðslan á Caruso er synd-
andi gamaldags, mest pönnusteikt.
Rauðspretta eða steinbítur kom á