Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Side 35
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 35
Eivör Pálsdóttir „Alltafjafn gott að koma
heim I pönnukökulyktina og rólegheitin í
Götu en hér á ég heima."
útlendingur hérna, fólkið er svo
hlýtt, jarðbundið en gefandi, eins og
heima í Færeyjum. Menningarlífið í
Færeyjum er mjög blómlegt og tón-
listarmenn þar margir mjög góðir.
Ég er alltaf svo stolt af Færeyingum,
þeir eru jarðbundnir en hefur líka
verið úthlutað mikið af náðargjöf-
um.“
Eilífur þeytingur en jól heima
í Götu
Hún segist stundum úrvinda í
mestu skorpunum. „Eilífur þeyting-
ur milli landa, kynningar, viðtöl og
tónleikar - ég er stundum svo úr-
vinda þegar ég kem hingað heim að
ég verð að hvíla mig í viku. Og þetta
líf býður ekki upp á föst sambönd,
ég er aldrei nógu lengi á nokkrum
stað til að eignast kærasta," og Eivör
skellihlær.
„Enginn tími til þess, enda nóg af
honum þegar þar að kemur. Ég er
með hugann við annað núna. Ég
reyni að vinna við tónlistina á hverj-
um degi, en mér vinnst einhvern
veginn alltaf best á kvöldin. Ef ekki
eru tónleikar um helgar, reyni ég að
hitta vini og kunningja og skemmta
mér með þeim. Ég ætla að eyða jól-
unum heima í Götu. Þar snæðum
við lambakjöt á aðfangadagskvöld,
það hefur hangið en er ekki reykt
eins og hjá ykkur. Með því borðum
við rófur og kartöflur, þetta eru sko
jólin hjá mér, heima í eldhúsinu hjá
mömmu. Ég get ekki hugsað mér að
eyða jólunum annars staðar."
Vinna framundan í Danmörku
og Kanada
Að sjálfsögðu hefur Eivör upp
raust sína á jólatónleikum. „Ég hef
nóg að gera þessa dagana og eftir
áramótin fer ég svo til Danmerkur
að vinna disk með stórsveit Danska
ríkisútvarpsins. Þessa dagana er ég
að vinna þá tónlist, æda mér að nota
stórsveitina vel og láta diskinn bera
sterkan færeyskan svip. Éghef þegar
sent þeim töluvert af nótum og þeir
hafa tekið þeim mjög vel. Svo förum
við í tónleikaferð um Norðurlöndin
en síðan held ég til Kanada að vinna
með BUl Bourne þar.
Auk þessa er ég mjög spennt fyrir
vinnu fýrir leikhús og jafiivel kvik-
myndir. Svo skýst ég hingað heim og
til mömmu heim í Götu þess á
milli," segir Eivör Pálsdóttir úr Götu
á Austurey og 101 Reykjavík full
bjartsýni.
Blaðamaður DV spyr að lokum
hvort henni þyki óþægilegt að veita
viðtöl. „Þetta venst eins og hvað
annað, stundum finnst mér leiðin-
legt hvað maður verður ferkantaður
í viðtölum, mér finnst þetta en ekki
þetta. Auðvitað er maður flóknari
en svo.“
rgj@dv.is
VIÐ MÆLUM MEÐ
* Verð miðast við léttgreiðslur Visa eða Euro til fimm mánaða
WÆ Kodak
GÆÐAFRAMKOLLUN
Laugavegi 178 • Kringlunni • Smáralind • Bankastræti • Austurveri • Hamraborg • Spönginni ■ Myndval í Mjódd ■ Filmur og framköllun, Firði, Hafnarfirði
Framköllun Garðabæjar ■ Hljómval, Kefiavik ■ Siglómyndir, Siglufirði ■ Pedromyndir, Skipagötu 16 • Glerártorgi, Akureyri ■ Fossmynd, Selfossi
Bókaverslun Andrésar Nfelssonar, Akranesi ■ Bókaverslun Brynjars, Sauðárkróki ■ Bókverslun Jónasar Tómassonar, ísafirði
//fvt/’ffttrív
Kodak EasyShare DX7590
5 milljón pixla
Schneider gæðalinsa
10 x optískur og 3 x stafrænn aðdráttur (38-380 mm)
2.2”skjár
Tekur video eins og minniskortið leyfir
Lithium lon rafhlaða fylgir og hleðslutæki
* Verð: 59.900 kr
^ffifflH^igimax V70
^^®rmiiljón pixla
3x optískur og 5x stafrænn aðdráttur
Schneider linsa
2,0” hreyfanlegur skjár
Lithium lon rafhlaða og hleðslutæki
Tekur video eins og minniskortið leyfir
Taska fylgir
Verð: 49.950 kr
\mm Caplio R1
* 4ra milljón pixla
4,8 x optískur og 3,6 x stafrænn aðdráttur
(28-135 mm, 28 mm víðlinsa)
16 raðmyndir á 1,6 sekúndum
6 1 cm nærmyndir
Aðeins 150 gr að þyngd og 25 mm þykk
Tekur video eins og minniskortið leyfir
Mjög hröð, aðeins 0,05 - 0,1 sek að smella af
• Verð: 29.950 kr
Kodak EasyShare LS743
4ra milljón pixla
Schneider gæðalinsa
3 x optískur og 3,6 x stafrænn
Tekur video eins og minniskortið leyfir
Lithium lon rafhlaða fylgir og hleðslutæki
Verð: 34.900 kr
AVIS bílar í 170 löndum og 5000 stöðum um inða veröld
im
Kynntu þér AVIS tilboðin á fjölskyldubílaleigubílum, stórum eða litlum áður en
þú ferð í sólarlandaferðina með alla fjölskylduna. Pantaðu AVIS bílinn sjálfur
á netinu www.avis.is og sjáðu kostnaðinn strax. j* m
Þú getur líka pantað bíl með einu símtal í síma 591 4000. . : j V '
AVIS Knarrarvogi 2 • 104 Reykjavík • sími 591 4000 Við gerum betur