Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Qupperneq 46
46 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004
Helgarblaö DV
„Hin formiega opnun fólst í því að
koma kolkrabbanum Kela fyrir í nýja
búrinu sínu og fórst borgarstjóra það
vel úr hendi,“ segir Þorkell Heiðars-
son, líffræðingur og verkefnisstjóri.
Þann 1. desember opnaði Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir nýtt sædýra-
safn og var þetta eitt hennar fyrsta
embættísverk. Það er ef til vill tákn-
rænt að athöfnin fólst í því að koma
kolkrabbanum fyrir í búri. Kolkrabb-
inn Keli, sem vitanlega hefur verið
skírður í höfðuðið á verkefnisstjóran-
um, var hinn þverasti og vildi í fyrstu
ekki úr fötu sinni. En hann komst ekki
upp með neitt múður og í búrið fór
hann við mikinn fögnuð.
Að sögn Þorkels, sem er ákaflega
stoltur af nafna sínum sem og safn-
inu sjálfu, eru í þessu fyrsta sjávar-
dýrasafni Reykvíkinga frá upphafi um
15 fisktegundir auk margra tegunda
hryggleysingja, svo sem krabba,
krossfiska og svo tveggja kolkrabba
(vörtusmokka) sem áhöfnin á Bjama
Sæmundssyni færði safninu nýlega
að gjöf. Þó svo að hér sé um fyrsta
sjávardýrasafn Reykvíkinga að ræða
þá hafa verið sjávardýrasöfn á höfuð-
borgarsvæðinu og kallar Þorkell safn-
ið að gamni sínu Sædýrasafnið hið
síðara og vísar þannig til sögufrægs
sædýrasafhs sem var í Hafnarfirði fyr-
ir margt löngu. En það er önnur saga
sem sögð verður síðar. Á næstunni
verður lög áhersla á uppbyggingu
fræðslustarfs í tengslum við safnið og
tengingu þess við öll skólastígin á
landinu. Og svo verður opið alla daga
í húsdýragarðinn og frítt inn að auki í
desember.
Stefán Karlsson ljósmyndari fékk
það verðuga verkefni að taka
portrettmyndir af hinum nýju íbú-
um húsdýragarðsins og tóku þeir sig
misvel út. Sumir virtust hafa það í
sér að vera ljósmyndafyrirsætur
meðan öðrum var hreint ekkert um
það gefið að sitja fyrir. Og í gleðinni
sem rfktí við opnunina fékk ljós-
myndari DV skírðan í höfuð sér
þann flottasta: nefnilega steinbítinn
sem hér eftir heitir Stebbi steinbítur.
Til stendur að bæta við tegund-
um en þær sem nú eru í safninu eru
þessar helstar: Fiskar: steinbítur,
lúða, þorskur, ýsa, lýsa, ufsi, tinda-
bikkja, sólkoli, sandkoh, Scuidhverfa,
rauðspretta, marhnútur, áll og horn-
síli. Lindýr eru: beitukóngur, nákuð-
ungur, klettadoppa og vörtusmokk-
ur. Krabbadýr: trjónukrabbi, kuð-
ungakrabbi, bogkrabbi og gadda-
krabbi. Að endingu má nefria
skrápdýr sem eru roðakrossi og
skollakoppur.
jakob@dv.is
Sá guli Þorskurlnn
fórstolturum búrsitt
fullviss um mikilvægi
sitthvað afkomu
þjóðarinnar varðar.
w
Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Þorkell
! Heiöarsson Borgarstjórinn opnaði safniö
með viðhöfn en kolkrabbinn Keli var með
vesen og vildiekkiúr fötunni i fyrstu
Gaddakrabbi
Menn vildu
sennilega seint
lenda I klónum á
honum þessum.
?
*>
' *
• V
Marhnútur Hann
var fremur flóttaleg-
urmarhnúturinnl
hópnum þegar Ijós-
myndarinn heilsaði
upp á hann.
SmábíH ársins 2004 á ísinndiV
Verö frá kr.
1088 000
3.408 lítrar af bensíni!
Þegar skoöaöir eru 3 efstu bílar I vali bílablaöamanna á íslandi um smábtl ársins
kemur margt skemmtllegt t Ijós. Ma. aö verömunurinn er töluveröur Kia Picanto t
hagl Raunar svo mikill aö fyrir þennan mismun getur þú keypt allt aö 3.408 lítra
af bensíni! Þá erum viö náttúrulega aö miöa viö meöal benstnverö eins og þaö er
t dag. Þetta benstn dugar til aö keyra yflr 58.500 kflömetra miöaö viö blandaöan
akstur á Picanto. Sem er eins og meöalakstur fólksbíls f 4 ár!
*Bíll ársins 2004 f flokki smábíla
og mlnnl millistærðarbíla
Bandalag íslenskra bílablaöamanna valdi Picanto
bíl ársins 2004 f flokki smábtla og mlnni milli-
stæröarbtla. Þetta er enn ein af fjölmörgum
viöurkenningum sem Kia Picanto hlýtur.
Rekstrarleiga kr.
19.960.-
PR. MÁNUÐ MEO VSK'
Komdu, skoöaöu og reynsluaktu!
KIA MOTORS
ÁRFELL ■ KIA ISLAND EHF.
^AjWjg^NjL|.2MW^N«UjjORDUR.S!Myyg6g2g-wwwk|jh|