Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Síða 49
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 49
' S P IL
Á ARSINS
'Júpríkið Hérþnrf
ð fara sarnan
iurisæi og
iáldskapur.
Þórarinn Leifsson Segir
líklegt að sjálfur eigi hann
eftir að myndskreyta bók
sem höfði frekar til fullorð
og hvers vegna ætti það
ekki að njóta mynda á
bók? Og einhver virðist
hafa ákveðið að svona
skyldi þessu háttað án þess að nokkur
hafi ákveðið það í raun og veru. Og svo
er innbyggt í þetta ákveðið svindl sem
byggir á markaðsfræðinni sem Jóhann
Páll nefndi, varðandi að ekki þýddi að
selja bækur nema með því að skilgreina
þær þröngt. „Ég gerði myndir í bækur
eftir Guðberg Bergsson sem heita „Allir
í Strætó". Það er með fallegri bókum
sem ég hef gert. Hugsuð frá Guðbergs
hendi sem bamasaga en ég fæ alltaf að
heyra að hún sé allt eins fyrir fullorðna.
Frábær bók en til marks um viðhorfið
þá sér fólk stórar myndir í lit og dregur
ósjállfátt þá ályktun að þetta sé bama-
saga. En þegar nánar er að gáð er hún
það nú kannski ekki.“
Fiskar tala ekki
Vinnulagið er langoftast þannig að
Halldór fær fullbúið handrit í hendur
eftir að útgefandinn hefur tekið um það
ákvörðun að gefa verkið út. Þá fara
menn að velta fyrir sér myndskreyting-
um. „í fyrsta lagi þurfa myndimar að
standast á eigin forsendum - vera góð
listaverk út af fyrir sig. Helst bæta við
söguna. Lítill tilgangur er með því að
hafa myndir ef þær fá ekki að taka þátt í
frásögninni. Ef bókin er fyndin verða
myndimar að vera enn fyndnari. Til
dæmis í Fíasól Kristínar Helgu Gunn-
arsdóttur sem er einföld saga, fyndin og
skemmtileg. Þá verða myndimar að
vera þannig. Ef ég ber þá vinnu svo
saman við Djúpríkið sem ég mynd-
skreytti líka þá em þessar bækur geró-
líkar. Þar er dramatísk spenna og dýpt
en jafnframt verða myndimar að vera
raunsannar upp að ákveðnu marki.
Myndimar verða að skila því. Bubbi
hafði til dæmis miklar skoðanir á því að
fiskamir væm svona og svona á litinn í
ánni og öðmvísi í hafinu. Ýmsar fróð-
lega pælingar um náttúrufræði sem
verða að skila sér í teikningamar. En svo
verður að vera vísun í skáldsagna-
heiminn. Fiskar tala ekki eða láta svona
í alvörunni."
„Fullorðinsbækur" sjaldnast
myndskreyttar
Anna Cynthia Leplar hefur Uklega
náð lengst þeirra fslendinga sem fást
við að myndskreyta bækur - á heims-
vísu. Hér em verk hennar flestum
ókunn. Hún hefúr þó myndskreytt
„Öðmvísi-bækumar" Guðrúnar Helga-
dóttur. Hún ólst upp á Asúreyjum, í
Portúgal og á íslandi. Þótt hún starfi hér
hefur hún teiknað fyrir fjölmörg forlög í
útlandinu svo sem Penguin. Hún sjálf
er hógværðin uppmáluð, nánast feimin
og segist aðallega fást við
að myndskreyta fýrir
böm.
„Þarrnig er það víðast
hvar. „Fuliorðinsbækur"
em sjaldnast mynd-
skreyttar. Þó em örfá forlög sem það
gera og em þau þá sérhæfð. Folio Soci-
ety er virt, gamalt fyrirtæki í London og
þar em allar bækur myndskreyttar.
Þetta er klúbbur sem býr til ótrúlega fal-
legar bækur en þær em ekki seldar í
búðum. Ég hef myndskreytt íyrfr þá
þar.“
Anna Cynthia myndskreytti fyrir
Mál og menningu Hundrað nætur í
Höfn Bjöms Th. Bjömssonar, eina fárra
myndskreyttra fullorðinsbóka sem
gefnar hafa verið út á íslandi í seinni tíð.
Nú er hún að myndskreyta bækur sem
verða falar í verslanakeðjunni Marks &
Spencer. Þar er um að ræða klassískar
bamabækur og er mikið verk. Einnig
gerði Anna Cynthia nýlega samning við
útgáfúfyrirtækið Dorling Kindersley
sem er í eigu Penguin-samsteypunnar.
Þá hefur hún myndskreytt 400 síðna
Biblíu ætíaða fyrir böm og hefur komið
út víða um heim,
aðeins sé tæpt á afrek-
um Önnu Cynthiu á
þessu sviði.
Djúprfkið Ein þeirra bóka
sem Halldór Baldursson
hefur myndskreytt. Þarna
blandar hann saman fróð-
leik og svo dramatiskri
dýpt.„Fiskar tala ekki."
Meiri ritstjórn úti
Anna Cynthia segir nokkum mun á
verklaginu hvort um er að ræða inn-
lenda eða erlenda útgefendur.
„Yffrleitt er það þannig að ég fæ
handrit í hendur fullbúið. A íslandi fær
maður oft í hendur frumhandrit og hef-
ur frjálsar hendur við að teikna inn í
það. Erlendis em menn búnir að setja
bókina upp lauslega. Skýr fýrirmæli em
fýrirliggjandi um hversu margar mynd-
imar eiga að vera, hvar þær eiga að vera
og hvað maður tekur fyrir. Miklu stífari
rammi og meiri ritstjóm á myndum en
tíðkast hér.“
Gott dæmi um útgáfu þar sem
myndir og texti haldast í hendur er
OUver Tvist sem JPV útgáfan prentaði
með upprunalegum myndum. „Teikn-
arinn vann verk sitt í samvinnu við höf-
undinn á sínum tíma. Maður er kannski
að tala um klassísk verk, sem oft em
myndskreytt, en nútímabókmenntir, ég
held að það hvarfli ekki að mörgum að
myndskreyta sakamálasögur, skáldsög-
ur... það tíðkast ekki. Og spuming
hvort rétt er að myndskreyta ljóð og
annað. Hvað í rauninni má stýra
lesandanum mikið áður en það kemur
niður á hugmyndafluginu við lestur-
inn?“
Ævisaga Hannesar með erótísku
ívafi
Þórarinn Leifsson myndskreytti
ffrnm sögur eftir H. C. Andersen sem
komu nýverið út á fjómm Norðurlönd-
um. Hann ætíar að fylgja
þessum verkum eftir á næsta
ári sem er aftnælisár þessa
merka danska rithöfundar.
„Það væri hræðilegt að
hugsa til þess ef Olafur
Jóhann Ólafsson myndi
bjóða mér nokkrar milljónir fýrir að
myndskreyta bók - akkúrat þegar ég
væri í veseni með VISA-reikninginn.
Tilraunir í þá átt að sameina „skrif fýrir
fullorðna" og myndskreytingar hafa
yfirleitt ekki gefist vel. Og þegar rithöf-
undar og ljóðskáld teikna sjálf hættir
verkunum til að verða of menntaskóla-
Ieg,“ segir Þórarinn um myndskreyting-
ar fyrir fullorðna. Hann segir þó slíkt
lukkast í einstaka tilfellum. Jaroslav
Hasek tókst þetta með Góða dátanum
Svejk.
„En sú saga byrjaði á síðum dag-
blaðs í Prag og var þá teiknari fenginn til
liðs við skáldið með góðum árangri. Ég
sæi alveg fyrir mér að eitthvað svipað
gæti átt sér stað nú á dögum ef einhver
bloggarinn ákveður að fá til liðs við sig
myndskreytara og búa þannig til nýtt
bókmenntaform. Slíkar þreifingar hafa
Anna Cynthia Leplar Hún
segir að um heim allan
tíðkist lítt að myndskreyta
bækur fyrir fullorðna.
hins veg-
ar
mistekist
hingað til.“
Og Þórarinn segir líklegt að sjálfúr
eigi hann eftir að myndskreyta bók sem
höfði frekar til fuliorðinna. „Það yrði þá
eitthvað sem væri þróað út frá bloggsíð-
unni minni á totil.com/blog á persónu-
legum forsendum og ansi langt frá
markaðsdeildinni. Ævisaga Hannesar
Hólmsteins í myndasöguformi með
erótísku ívafi gæti þó orðið efnileg jóla-
bók, ef fjölskylda Hannesar meinar mér
ekki aðgang að einkamyndbandasafni
hans. Myndskreytarar og myndasögu-
höfúndar geta svo mjakað sér í átt að
fúllorðnum neðan frá, ef svo má segja.
Halldór Baldursson sannaði sig t.d. sem
einn efnilegasti myndasöguhöfundur
Norðurlanda með Ömmu Fifi í
samstarfi við Þorstein Guðmundsson.
Hallgrímur Helgason er að gera virki-
lega góða hluti með Grim en myndi
tæpast græða á að mgla honum saman
við önnur verk sín.“
Catan - Landnemarnir er eitt vinsælasta spil í heimi
og hefur meðal annars verið valið spil ársins
í Þýskalandi og Bandaríkjunum.
Spilið, sem auðvelt er að læra, krefst
útsjónarsemi og dirfsku af spilurunum.
Spilið erfyriralla aldurshópa og
brúar kynslóðabilið!
Klaus Tauber, höfundur Catan
LANDNEMARNIR-
FUAM
r
TIL HAMINGJU
Pétur Matthíasson íslandsrneistari í Catan og Einar Baldvinsson voru fulltrúar íslands á hinu árlega
heimsineistaramóti í Catan sem haldið er í Essen í Þýskalandi. Við óskum þeim til hamingju með
frábæran árangur en Pétur (l.t.v) lenti í 5. sæti af 48 keppendum frá 20 löndum og Einar í 17 sæti.
Á myndinni eru þeir félagarnir nieð höfundi spilsins, Klaus Tauber.
Leynist heimsmeistarinn kannski á þínu heimili?
Fíasól Hér leggur
Hallrfór upp með
það að sagan er
eínfóld, sniðug og
fyndin þá verða
myndirnar að vera
það elnnig.