Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004
Helgarblaö DV
Þrjár f lottar
VI f
Eitt af því jákvæöa sem óheft niðurhal tónlistar af netinu hefur í för með sér er meiri
metnaður í tónlistarútgáfu. Plötuútgefendur út um allan heim keppast nú við að búa
til glæsilegar viðhafnarútgáfur gamalla meistaraverka og plötukaupendur hafa aldrei
fengið jafnmikið fyrir peningana sína. Trausti Júlíusson skoðaði nokkur nýleg dæmi.
The Kinks - Are The Village Green
Preservation Society
Þreföld útgáfa afþessu meistaraverki
Ray Davis og félaga sem kom út áriö
1968 og hefur stundum verið kallaö
þeirra Stg. Pepper. Hér er upprunalega
platan bæöi í mónó og steríó og rlflega
30 aukalög ásamt Itarlegum bæklingi.
TlmaritiÖ Uncut valdi The Village Green
bestu endurútgáfu ársins 2004 i nýlegu
uppgjöri.
The Clash - London Calling
Þreföld 25 ára afmælisútgáfa afeinni
bestu rokkplötu sögunnar. Þetta eru tveir
híjómdiskar og einn mynddiskur. Upp-
runalega platan er endurhljóöblönduð á
fyrsta disknum.A öörum disknum er„The
Vanilla Tapes‘ upptökur úr æfingahús-
næöi sveitarinnar og á DVD-disknum er
heimildarmynd, svipmyndir og mynd-
bönd. London Calling lenti 12. sæti á
endurútgáfulista Uncut.
UXiACY
E&inOH
Jeff Buckley - Grace.
10 ára afmælisútgáfa afþessu meistara-
verki. Þreföld útgáfa. Hér eru tveir hljóm-
diskarog einn mynddiskur. A fyrsta
disknum er upprunalega platan, á disk
númer tvö eru fágætar og áður óútgefn-
ar upptökur og á DVD-disknum er ný
heimildarmynd og fimm myndbönd.
fj i i J .. M IJ;| @ M m - J 1/ U! ■ j |Of II w».'.| * !h
ni -J u : - Í&kI jl Jjjl - XG. ií Jjl 11. í
Plötuútgefendur hafa mildð
bölsótast yfir óheftu niðurhali tónlist-
ar af netinu. Það á að hafa stórdregið
úr plötusölu og þeir svartsýnustu
halda því fram að þessi iðja sé að
drepa alla tónlistarútgáfu. Ef málin er
skoðuð aðeins nánar þá sést að þetta
er ekld alveg rétt. í fyrsta lagi er plötu-
sala farin að aukast aftur eftir svolitla
lægð. Árið 2003 var metár í plötusölu
bæði í Bretlandi og á íslandi og salan
í Bandaríkjunum er meiri í ár en í
fyrra. í öðru lagi hefur löglegt niður-
hal stóraukist og það skilar tónlistar-
iðnaðinum
auknum
tekjum. í
þriðja lagi
hefúr óheft
niðurhal
tónlistar líka
jákvæðar
hliðar fyrir
tónlistarlífið.
Viðhafnarútgáfur
Það er auðvitað frábært fyrir alla
unnendur tónlistar að geta nálgast
hana hvar sem er í heiminum. Ef þig
langar að vita hvemig afrískt rokk eða
japanskt hip-hop hljómar þá getúrðu
tékkað á því á netinu. Sama ef þig
langar að vita hvort það er eitthvað
varið í nýju hljómsveitina sem allir
eru að tala um. Þetta er hiklaust já-
kvæð afleiðing óhefts niðurhals.
önnur jákvæð afleiðing er aukinn
memaður plötuútgefenda. Þeir eru
nú famir að leggja meira á sig, enda í
beinni samkeppni við netið. Svoköll-
uð box-sett hafa aldrei verið flottari
og viðhafharútgáfur (“deluxe")
gamalla meistaraverka streyma á
markaðinn. Þessar útgáfur em iðu-
lega tvöfaldar og fullar af aukaefni.
Auk upprunalegu plötunnar er al-
gengt að demó-upptökur, b-hliðar,
tónleikaupptökur og óútgefið efni frá
þeim tíma sem platan var gerð fylgi
með auk veglegs bæklings þar sem
saga plötunnar er rakin. Það nýjasta
er svo að bæta DVD-disk með mynd-
böndum, tónleikaefrú og viðtölum í
pakkann líka. Þannig ertu kominn
með heildarmynd af viðkomandi
plötu, nokkuð sem þú getur ekki
fengið á netinu nema með mjög mik-
illi fyrirhöfh.
Meira en bara tónlistin
Útgefendur eru farnir að endur-
útgefa kerfisbundið plötur nokk-
urra lykillistamanna í viðhafnarút-
gáfum af þessu tagi. Þ.á.m. má
nefna Bob Marley, David Bowie og
The Who, en nýju útgáfumar af
verkum þessara meistara em allar
sérstaklega vel unnar og bæta
miklu við upphaflegu plöturnar. En
það em ekki bara gömlu meistar-
arnir sem fá þessa meðferð, yngri
sveitir eru líka farnar að stunda
þetta. Þessa dagana er að koma út
tvöföld viðhafnarútgáfa af Pavem-
ent-plötunni Crooked Rain,
Crooked Rain, en áður var komin
samskonar útgáfa af Slanted &
Enchanted. Hún þótti afbragð.
Með þessum nýju viðhafnarútgáf-
um em útgefendur að búa til vöm
sem er mikið meira en bara tónlistin.
Margskonar fróðleikur og myndefhi
fylgir með og hluturinn sem þú færð í
hendumar er flottur og eigulegur. Það
ber að fagna þessu sérstaklega. Menn
virðast vera að átta sig á því að leiðin
til að halda vefli fyrir plöturisana er
ekki að fara í mál við tónlistarunn-
endur og taka af þeim tölvumar held-
ur einfaldlega að gera betur.
Sumar á Sýrlandi (2CD +
DVD)?
íslenskir útgefendur hafa ekki al-
veg kveikt á þessu ennþá, enda er
markaðurinn hér mjög lítill og þ.a.l.
minna svigrúm til athafna. Endurút-
gáfumar á plötum Megasar fyrir
tveimur árum vom að vísu fullar af
aukaefni og mikið útgáfuafrek. Á
næstu dögum er líka von á fyrstu eig-
inlegu íslensku deluxe-útgáfrmni. Þar
er á ferðinni platan Haf með Curver.
Á nýju útgáfunni, sem hefúr fengið
nafnið Sær, er glás af aukalögum, m.a.
lög sem Curver gerði með Stillupp-
steypu.
Þess væri óskandi að íslenskir
plötuútgefendur fæm inn á þessa
braut í meira mæli. Það væm ömgg-
lega margir spenntir fyrir tvöföldum
viðhafiiarútgáfúm af Geislavirkum,
Sumari á Sýrlandi, Lifún, fsbjamar-
blús, Life’s Too Good eða Þursabiti.
Það sakar ekki að láta sig dreyma...
tækifærið!
155/80R13 frá kr. 4.335
185/65R14 frá kr. 5.300 7^6
195/65R15 frálrr. 5.900
195/70R15 8 pr.sendib.frá kr.8.415 13*70CF
^ Léttgreiðslur
- Betrí verð!
bilkoUs
Smiöjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110
Fyrstu fjórar
Ameríkuplöt-
ur Bítlanna
TheCapitolAlbums Vol. 1 inni-
heldur amerlsku útgáfurnar af
fyrstu fjórum Bítlaplötunum,
Meet The Beatles, The Beatles'
Second Album, Something
New og Beatles '65. Þetta er /
fyrsta sinn sem þær koma út á
geisladisk. Á diskunum eru öll
lögin bæöi I mónó og sterló,
en þessi lög hafa ekki áöur
komiö út á geisladisk I sterló.
Diskarnir eru f umbúöum sem
eru alveg eins og upprunalegu
plötuumslögin, en auk
diskanna fjögurra er I pakkan-
um 52 bls. bók meö fjölda
mynda og texa eftir Bltla-
fræöinginn Matk Lewisohn.
TheCapitolAlbums Vol. I er
flottur pakki, en hann er fyrst
og fremst stllaöur inn á hörö-
ustu aödáendur Bltlanna og
safnara og þá sem áttu amer-
ísku útgáfurnar á vínyl á sln-
um tlma og vilja hafa laga-
rööina og lagavaliö eins, en
ekki eins og á bresku útgáfun-
um. Þegar fyrstu Bltlaplöt-
urnar komu út I Bandarlkjun-
um varsumum afvinsælustu
lögum sveitarinnar bætt við
þær, en I Bretlandi höfðu þessi
lög eingöngu veriö fáanleg á
smáskífum.
The Capitol Albums boxiö
kemur I kjölfar DVD-plötunn-
arThe Flrst US Visit sem kom
útl febrúarog rakti fyrstu
heimsókn Bítlanna til Banda-
rlkjanna, en þá rann Bítlaæði
á Bandarlkjamenn meö
gríöarlegum hraða.
5 diska pakki
með Michael
Jackson
The Ultimate Collection með
Michael Jackson er fyrsta
yfirlitsútgáfan yfir feril þessa
margumtalaða snllllngs.
Þetta er sett meö fimm disk-
um. Þaö eru fjórir CD-diskar
og einn DVD-diskur. Þaö eru
57 lög á diskunum, þar aferu
13 áöur óútgefín og töluvert
affágætu efni.Á DVD-diskn-
um eru tónleikar sem teknir
voru upp I Bucharest á Dan-
gerous-tónleikaferðinni.
Auk þess fylgir 64 bls. bók
meö nýjum texta eftir helsta
sérfræöing Bandarlkjanna I
blökkumannatónlist, Nelson
George. Auk þess er I bókinni
tímallna þar sem helstu viö-
buröir eru týndir til, að und-
anskildum málaferlum og
veseni auövitað.
Fyrsti diskurinn byrjar á lag-
inu I Want You Back. Það var
gefið útáriö 1969þegar
Michael var 11 ára. Síöasti
diskurinn endar á nýju lagi,
We've Had Enough. Þarna eru
öll þekktustu lögin, en á meö-
al óútgefíns efnis er demo af
laginu We Are The World sem
Michael syngur einn.
The Ultimate Collection er
frábær pakki hvað sem
mönnum finnst um Michael I
dag. Það er stundum sagt aö
þaö sé ekki hægt að gera al-
mennilega yfirlltsútgáfu fyrr
en listamaðurinn er fallinn
frá. Michael er enn á lífi, en
Ukurnar á þvl að hann geri
eitthvaö afviti á næstunni
veröa að teljast hverfandi
þannig aö þaö er ekki eftir
neinu aö blöa.