Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Qupperneq 57
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 j7
John Walker Hafði oftar en einu sinni haldið framhjá eiginkonu sinni. Hún fékk þó nóg þegar
hann,66 ára, fór aðhatda við danskennara sinn. Þegar hún ætlaði að sækja um skiinað trylltist
John og myrti hana á endanum.
hans sem bjó þar til að spara pen-
inga. Eins og sönnum vísindamanni
sæmir skráði Walker sómasamlega
hjá sér allt sem hann gerði. Það var í
þessum skrifum sem Glenda upp-
götvaði að hann átti í ástarsambandi
við skólafélaga sinn í Þýskalandi
þegar þau bjuggu þar um tíma.
Walker settist í helgan stein í byrj-
un tíunda áratugarins og varð fljótt
óður í að taka þátt í ýmsum félags-
störfum. Meðal þess sem hann tók
þátt í voru siglingaklúbbar og skóg-
ræktarfélög. Glenda eyddi hins vegar
mestum tíma sínum heima fyrir. Á
eftirlaunaárunum var samband
þeirra stirðara en nokkru sinni fyrr.
Saqði eiginkonuna ofbeldis-
fulla
Eftir að hann var handtekinn
sagði John Walker lögreglu að eigin-
kona hans hefði verið ofbeldisfuil
alla sambúð þeirra; hún hefði kýlt
hann eða sparkað í hann 25-30 sinn-
um. Hann sagði einnig að hún hefði
einu sinni fleygt honum niður stiga.
„Hún var skapstór og átti það til að
beita ofbeldi," sagði hann.
„Hún sagði að gáfur mínar og
rökvísi væru of miklar til að hægt
væri að keppa við og beitti mig því
ofbeldi í staðinn. Heilsuleysi hennar
og takmarkaðar gáfur pirruðu mig.
Ég er með góða gráðu en hún alger-
lega ómenntuð. Svo var ég líka mjög
vonsvikinn yfir því að hún gat ekki
sótt danstímana. Þetta kann að virð-
ast smáatriði en var í raun einskonar
vendipunktur. Ég kynntist hinni
konunni fyrst með því að dansa við
hana en á endanum þróaðist það út
í framhjáhald.“
Skiptu húsinu í tvennt
Walker sagði við réttarhöld að
hann hefði orðið bálreiður þegar
hann komst að því í nóvember 2002
að Glenda væri að reyna að breyta
eigendaskráningunni á húsinu
þeirra og hinum húsunum þremur
sem þau leigðu út. Eftir svefhlitla
nótt vöknuðu þau bæði snemma 12.
nóvember 2002 og Walker sagðist
hafa verið knúinn til að spyrja eigin-
konu sína út í þetta.
„Það varð mikið rifrildi. Hún
ítrekaði að hún ætlaði að ná öllum
eignunum af mér og snúa börnum
og barnabörnum gegn mér. Ég veit
ekki hvað kom yfir mig eftir það því
ég er ekki ofbeldisfullur maður. Ég
fór og sótti byssuna, sem ég nota til
að hafa hemÚ á kanínum við húsið,
og skaut hana. Ég var í furðulegu
ástandi eftir þetta og fékk ekki sjokk
strax. Ég fór út í garð í korter eða
tuttugu mínútur og þá dundi áfallið
allt í einu yfir mig svo ég hringdi í
neyðarlínuna."
Við réttarhöldin sagði Walker að
hann og Glenda hefðu borðað og
sofið í sitt hvoru herberginu eftir að
hún komst að framhjáhaldi hans.
Þau elduðu meira að segja í sitt
hvoru lagi. Eiginkonan heimtaði að
hann skipti húsinu í tvö umráða-
svæði, sem hann og gerði með hvítu
bandi. Þegar hann hafði gert það
skipti Glenda aftur á mótí um skoð-
un og bað hann að taka bandið nið-
ur.
Hótaði að segja fjölskyldunni
frá framhjáhaldinu
John Walker grét þegar hann bar
vitni og sagði að Glenda hefði lagt
Heimskasti krimminn
í Bretlandi
Ræningi sem skildi eft- r á myndum í símanum.
ir farsíma sinn þar sem var j Eins og þctta væri ekki
að finna mynd af honum nóg notaði Kelly sinn eig-
hefur verið útnefndur in bíl í ráninu! „Það er til
Heimskasti glæptimaður 1 sjónvarpsþáttur sem heit-
Bredandseyja. David gjg ir Heimskustu glæpa-
Kelly, þrítugur, missti far- 11 .. menn Bandaríkjanna. Ef
síma sinn þegar hann og -rr* fe J til væri bresk útgáfa af
vitorðsmaður hans skiptu ÍjH' W jjm honum væri Kelly án efa í
um flóttabíl eftir að hafa HHL ..álgj þættinum," sagði lög-
rænt um 800 þúsund reglumaður sem rannsak-
krónum á fasteignasölu. Hann var í aði málið. Væntanlega auðveldasta
vikunni dæmdur í sex ára fangelsi mál sem hann hefur fengið inn á
eftir að lögreglumenn þekktu hann sitt borð.
Glæsihús Walker-hjónanna Taiið 100 milljóna króna virði. Þarna myrti John Walker Glendu
konu sína fyrir rúmum tveimur árum.
sig í hálfgert einelti, blótað honum í
sand og ösku fyrir framhjáhaldið og
hótað því að fjölskylda hans myndi
aldrei tala við hann aftur. Hinn ör-
lagaríka dag þegar hann skaut eigin-
konuna segir John að hún hafi byij-
að að öskra á hann.
“Hún var óstöðvandi, kaldlynd
og grimm og þetta virtist aldrei ætía
að hætta. Hún sagðist þegar hafa
sagt bömunum frá hræðilegum
gerðum mínum og að þau skömm-
uðust sín fyrir mig. Hún sagðist
einnig hafa sagt fólki sem við un-
gengumst þetta og að ég gæti aldrei
sýnt mig opinberlega aftur."
Stjórnsamur hræsnari
Afinn sem myrti eiginkonu sína
hélt því ffam við réttarhöldin að
þunglyndi hefði leitt til gerða hans
og fyrir vikið væri hann aðeins sekur
um manndráp. Tveir læknar studdu
þennan framburð en dómarinn tók
ekki mark á þessu eftír að vitnis-
burður lögreglu um skapgerð hans
var lagður fram.
„Hann er stjórnsamur að eðlis-
fari. Eftir framhjáhaldið dró hann
upp samning við eiginkonu sína.
Það sést vel á símtali hans til neyðar-
línunnar að hann er mjög rólegur og
er að velta möguleikum sínum fyrir
sér. Eignir hans voru minnst 130
milljón króna virði og hann ætíaði
ekki að missa þær.” Dómarinn sá
líka í gegnum John Walker. „Þú ert
stjórnsamur hræsnari, svikari og
kaldlyndur maður. Þú hugsaðir ekk-
ert um hvaða afleiðingar gerðir
þínar hefðu á börn þín og barna-
börn. í vitnisburði þínum reyndirðu
að sverta mannorð eiginkonu þinn-
ar og kenna henni um þá atburði
sem leiddu tíl dauða hennar," sagði
dómarinn sem dæmdi John Walker í
lífstíðarfangelsi. Hann þarf að sitja
inni í minnst 14 ár.
Konur
stungu prest
Þrjár konur hafa verið hand-
teknar í tengslum við rann-
sókn á líkamsárás þar sem
aldraður kaþólskur prestur var
stunginn með hnífí Bretlandi.
Faðir Michael Ingwell slasaðist
alvarlega í árásinni. Hann er
talinn hafa komið að innbrots-
þjófum á heimili sínum. Konurn-
ar þrjár eru allar á þrítugsaldri
og eru nú i haldi lögreglu. Prestur-
inner71 árs og þar með kominn á 9
eftirlaun. Ástandi hans er lýst sem
alvarlegu en þó ekki lífshættulegu.
Vöðvafjall
myrtí löggu
Vaxtaræktarmaður
sem sakaður er um
að hafa skotið lög-
reglumann til bana
í Leeds á Englandi
bjó sér til fjarvist-
arsönnum þegar
hann sá að sann-
anirgegn honum
voru traustar. David Bieber,
fyrrverandi sjóliði í bandaríska
hernum, 38 ára að aldri, beið i tíu ‘
mánuði áður en hann lét loks út úr
sér að vinur hans, sem hann neit-
aði að nefna, hefði myrt lögreglu-
manninn lan Broadhurst. Sak-
sóknari segir aðBieber hafi reynt
að blekkja kviðdóm með sama
kaldlynda og rólega hætti og
hann myrti lögreglumanninn.
Bieber neitar því að hafa framið
morðið og sömuleiðis að hafa
reynt að myrða tvo aðra lögreglu-
menn. Réttarhöld i málinu standa
enn yfir.
m
Kolaportió
0^’ssr.. mmz
Katkofnsvegi 3
Nokkrir
Ijósir punktar
m m
m m
m m
m
m
m m
m
m
í jólaönnum
Bergstaðir
Vesturgata 7
nir
Ráðhúsið
Bergstaðastræti 2 Vesturgötu 7
Tjarnargötu 11
Traóarkot
Vitatorg
Hverfisgötu 20
Lindargötu 57
Bílahúsin eru þægileg í notkun H Tímamiðar úr miðamælum gilda H Ótakmarkaður tími býðst
og alltáf á næsta leiti. U áfram þegar lagt er við stöðumæli. U á stöðumælum f miðborgir
áfram þegar lagt er við stöðumæli. ■■ á stöðumælum í miðborginni.
(é
Munum alltaf
að leggja ekki isérmerkt
stæði fyrir hreyfihamlaða
án þess að hafa til þess heimild.
í desember verða bílahúsin opin klukkustund lengur
en verslanirí miðborginni. Gleðilega aðventu.
Bflastæðasjóður
...svo f borg sé leggjandi
>