Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Side 71

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2004, Side 71
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2004 71 Næturbarir á annan íjólum Barir og veitinga- hús í Reykjavík sem hafa heimild til að hafa opið til klukk- an þrjú eða lengur að næturlagi um helgar mega hafa opið fram eftir á annan dag jóla eins og um helgi væri að ræða. önnur veitingahús sem hafa skemmri opnunartíma mega líka hafa opið þetta kvöld eins og það væri helgi. Annar í jólum er á sunnudegi að þessu sinni. Mánudagurinn þar á eftir er venjulegur virkur vinnu- dagur. Slokknaði á sýningu Leikurum á sýningu Stúdentaleikhússins Þú veíst hvernig þetta er brá heldur betur í brún á fimmtudagskvöld. Þriðja síðasta sýning á verkinu fór fram þegar þegar sló út í rafmagnstöflu og almyrkvi varð í salnum. Gerðist þetta í miðju atriði þar sem leik- ararnir syngja lagið Á Sprengisandi við eigin texta. Eins og atvinnu- mönnum sæmir létu leikar- amir á engu bera og héldu áffam að syngja textann sem endar á orðunum - drottinn leiði dómstólinn minn, drepinn verður síð- asti heiðinginn. Kirkjuqarður fær ekki styrk Formaður kirkjugarðsstjórnar Njarð víkursóknar óskaði eftir því við bæjarráð Reykja- nesbæjar að fá styrk að upphæð 1.264.500 krónur vegna lagfæringa á garðinum. Að sögn kunn-' ugra í Njarðvík er ástandið á kirkjugarðinum fremur slæmt og hefur lengi verið rætt um að gera verði bragarbót þar á. í fundar- gerð bæjarráðs kemur hins vegar fram að ekki sé unnt að verða við erindinu að þessu sinni. Lítið verður því um framkvæmdir í kirkjugarðinum í ár. Hætt hefur við útgáfu bókar sem fjallar um hvernig framsóknarþingmaðurinn Davíð Aðalsteinsson afneitaði dóttur sinni vegna sambands hennar við vinstri- manninn Árna Hjörleifsson. Árni skrifaði bókina en hefur kippt henni út úr jóla- bókaflóðinu vegna titrings hjá tengdaforeldrunum. Þopði ekki aD gela út hók vegna andstöðu tengdaforeldra slnna Árni Hjörleifsson hefur hætt við að gefa út bókina í viðjum Drambs og hroka vegna andstöðu tengdaforeldra sinna. Bókin fjallar einmitt um það hvernig foreldrar eiginkonu Árna afneit- uðu henni vegna sambands þeirra. Samkvæmt heimildum DV er í bókinni lýst mjög nákvæmlega hvernig foreldrar eiginkonu Áma slitu samskiptum við hana í kjölfar- ið á sambandi hennar og Árna, sem er tuttugu árum eldri en hún. And- staða þeirra byggðist á því að Árni er vinstrimaður en tengdafaðir hans fyrrverandi framsóknarþing- maður. Skjálfti í Borgarfirðinum Árni játar því að frestun útgáfu bókarinnar sé einmitt vegna þess hversu mikium skjálfta bók- in hefur valdið f fjöl- skyldu eigin- konu hans, sem samkvæmt Árna sjálf- um á margt líkt með sögu- persónum í Bókarkápan / viðj- um drambs og hroka fjallarum foreldra sem afneita dóttur. Tengdafaðirinn Davlð Aðalsteins- son, fyrrum þingmaður og bóndi á Arnbjargarlæk I Borgarfirði, hefur siitið samskiptum við dóttursína. bókinni. „Konan mín og ég ákváðum að bíða með út- gáfuna en það hafði verið talsverður skjálfti í Borg- arfirðinum dagana áður en bókin átti að koma út,“ segir Árni spurður um ástæður frestunar á útgáfu bókarinnar - sem auglýst er í nýútkomnum Bókatíðindum. Með vísan í Borgar- fjörðinn á Árni við tengdaforeldra sína á Arnbjargar- læk þar í sveit, Davíð Aðalsteins- son og Guðrún Jónsdóttir. „Ég held að það sé best að bíöa með það þar til að ári. Bókin mun að öUum líkindum koma út þá,“ sagði rithöfundurinn, sem er á góðri leið með að skipa sér í hóp umdeildustu rithöfunda samtím- ans þrátt fyrir að hafa ekki gefið út eina einustu bók. Hafa ekki hitt barnabarnið Árni og Ingibjörg hafa verið gift frá því árið 2000 og eiga saman barn. Er það ekki síst sam- skipti eiginkonu Árna við foreldra sína eftir að hún eignaðist barnið - og mun lýst í bókinni - sem fer fyrir brjóstið á foreldrum hennar, sem samkvæmt heimUdum blaðsins hafa ekki enn séð barnabarn sitt sem er á sjöunda ári. Einnig eru pen- ingamál efniviður bókarinn- ar en Árni fæst ekki tU að skýra þau mál nánar í bili. í kynningu bókarinnar segir um persónur hennar: „Sagan lýsir ótrúlegu tilfinn- ingaleysi, óheiðarleika í viðskiptum, samhliða hroka og sýndar mennsku." „Hver og einn verður að taka til sín það hann á. Ég fer ekki dult með það að per- sónurnar eiga sér stoð raun- veruleik- anum. Vil opna á hluti sem eiga að mínu mati ekki að þekkj- ast,“ segir Árni, en tengda- faðir hans segist ekkert vita um hvað bókin fjallar. „Ég get nú lítið tjáð mig um þetta enda veit ég ekki um hvað þessi bók fjaUar, svo ég segi nú al- veg eins og er,“ sagði Davíð Aðal- steinsson, fyrrum þingmaður og bóndi í Borgarfirðinum, þegar DV spurði hann út í bók tengdasonar- ins. Davíð vildi ekki tjá sig frekar um bókina eða samskiptin við tengdason sinn og dóttur. helgi@dv.is sem Framsóknarmaður vildi hann ekki Tengdafaöir Árna Hjörleifs- sonar vill ekki að dóttirin sé með Krata. ■ngibjörg Rafnar skipuð umboðsmaður barna Sendiherrahjón í fjarbúð „Við fljúgumst bara á eins og er í tísku í dag," segir Ingibjörg Rafnar, sendiherrafrú í Kaupmannahöfn, sem skipuð hefur verið umboðs- maður barna frá 1. janúar næstkom- andi. Ingibjörg er sem kunnugt er eiginkona Þorsteins Pálssonar, sendiherra í Danmörku, en hann er ekki á förum heim í bráð. Þau hjón verða því í fjarbúð. Ingibjörg tekur við starfi umboðsmanns barna af ÞórhUdi Líndal, eiginkonu Eiríks Tómasson- ar lagaprófessors. Ingi- björg á að baki ferU sem lögmaður í Reykjavík og starfaði meðal annars fyrir Mæðrastyrksnefnd. Þá var hún um tíma borgarfuU- trúi í Reykjavík, sat í félagsmálaráði og var formaður Dagvistar barna. Þá vann Ingi- björg að Þorsteinn Pálsson Situr eftir I Kaup- mannahöfn. löggjöf um málefni barna, fæðingarorlof og vernd barna og ungmenna. Ekki er einsdæmi að íslensk sendiherrahjón séu í fjarbúð. Sigríður Snævarr, sendiherra í Par- ís, hefur um árabU verið í fjarbúð með eiginmanni sínum, Kjartani Gimnars- syni, ffamkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. Hef- ur það iukkast prýðUega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.