Geislinn - 01.01.1929, Blaðsíða 5
GEISLINN'
5
gömlu tilfinningar vorar, girndir og á-
stríður breytast ekki og taka valdið af
okkur, ef siðferðisþrekið linast minstu
vitund, eða ef trúarbrögð vor — lög-
mál vors andlega lffs — missa tökin á
framferði voru“.
Það eru aðeins tvær leiðir, sem mann-
kynið getur farið i því skyni að varna
alheimsöförum, að því er Sir Philip
heldur fram. Önnur leiðin segir hann
að sé að iitrýma vísindamönnunum og
stansa á þann hátt alla viðbót við
þekkingu og uppfundningar. Hin leiðin
sé að bæta mennina, svo að þeir sið-
ferðilega hafi tök á að stjórna þessum
gífurlegu öflum, sem vísindin eru að
gefa mannkyninu og munu gera í ná-
inni framtíð. „Án einhverskonar trúar-
bragða“, segir hann, „getur menningin
ekki staðið......Á einn eður annan
hátt verða menn að komast nær Guði,
og það er erfitt fyrir allan fjöldann af
fólki, sem fylgir tísku nútímans, og sem
hefir tapað hinum harnslega hæfileika
að trúa“.
Vér höfum látið hann tala það sem
af er. Aftur og aftur verður rökleiðsla
hans til þess að benda á hinar stóru
spurningar, sem heimurinn verður að
svara „í dag og næstu daga“. Og svo
endar hann með þessum orðum: „Það
er afar-flókið“. Hin eina von hans
er að það muni á einhvern hátt glæðast
svo trúarlífið og andlegt lif. að það
komi „hetjur bæði karlar og konur,
sem berjist gegn hinni gnlu hættu, inn-
flutningi gulu þjóðanna, sem eru að
steypa undan kristni þeirri, sem nú er
á fallanda fæti, en sem berst auðsjáan-
lega í bökkum“.
En er ekki meira í þessu? Er von
hinna kristnu orðin svo veik? Við skul-
um vita hvað Guðs orð segir.
Nýr neðcmsiávar-
bátur, enskur sem
nefndur er ,,Os-
wald ‘ og er 2020
tons. Ameriski neð-
ansjávarbáturinn
sem fyrir skömmu
var sigldur í kaf
var af pess.u i stóru
gerð Pá fórust
margir menn. Og
nýiega fórst á svip-
aðan hált ílalskur
bálur og fórusl
með honum rúm-
lega 30 manns. —
„Á tima endalokanna,“, lesuin vér,
„skyldu margir rannsaka hana (Dan-
íels bók) og þekkingin vaxa“. (Þýð.
Kalkars: „Margir munu leita gaum-
gæfilega“). „En á þeim tíma mun Milca-
el, hinn mikli verndarengill, sá, er
verndar landa þina, fram ganga, og
það skal verða svo mikil hörmunga-
tíð, að slík mun aldrei verið hafa, frá
því er menn urðu fyrst til og alt til þess
tíma. Á þeim líma mun þjóð þín frels-
uð verða, allir þeir sem skráðir finnast
í bókinni". Dan. 12, 4. 1.
Við erum komnir að þeim tíma, að
þessi spádómur rætist. Skjótlega hefir
þekkingin vaxið í heiminum. Hinn
mikli Guð hefir dregið skýlu ald-
anna frá augum manna. Leyndar-
Frh. á bls. 10.