Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2005, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2005
Fréttir 0V
laugar
A
" Svarthöfði
sér starf drekabana og kastað ffam
frumvarpi sem hrekur reykingafólk
út á götu.
Líkt og fimir frjálshyggjumenn
segja kýs Svarthöfði að fara á veit-
ingastaði sem flestir eru reykmett-
aðir. Þar með er hann, samkvæmt
frjálshyggjumönnum, að kjósa að
anda að sér reyknum. En þótt Svart-
höfði sé með þessum hætti verður
ekki sama sagt um alla aðra. Margir
myndu kjósa það, ef þeir gætu, að
anda ekki að sér reyk á þessum
Guðni selur
laxveiðijörð
Sala landbúnaðarráðu-
neytisins á ríkisjörðum
heldur áfram þótt hægt fari.
Að þessu sinni auglýsa Rík-
iskaup til sölu hluti úr jörð-
inni Skógum II í Húsavíkur-
bæ. Með í kaupunum fylgir
78 fermetra íbúðarhús frá
1938 og 83 fermetra við-
bygging byggð 1984 ásamt
hlöðu, fjárhúsi og 30 hekt-
urum af ræktuðu landi.
Einnig eru laxveiðiréttindi í
Mýrarkvísl, sem er ein þver-
áa Laxár í Aðaldal. Áhuga-
samir þurfa að gera tilboð
fyrir klukkan ellefu í dag.
Svikari borgi
30 milljónir
Sævar Þór Carlsson,
sem sveik samtals 14,6
milljónir undan skatti í
sjálfstæðum atvinnu-
rekstri á árunum 1997 til
2000, hefur verið dæmd-
ur til að greiða 29,2
milljóna króna sekt.
Upphæðin samsvarar
tvöföldum vanskilum
Sævars Þór á skattinum,
sem er lágmarkssekt.
Sævar sem játaði brot
sín var að auki dæmdur í
fimm mánaða fangelsi.
Sá dómur er skilorðs-
bundinn til tveggja ára.
Greiði Sævar sektina
ekki innan íjögurra vikna
verður honum sam-
kvæmt dómi Héraðs-
dóms Reykjaness stung-
ið í fangelsi í eitt ár.
Péturfékk
eftirlit með
skattfé
Þing aðildar-
þjóða öryggis- og
samvinnustofnunar
Evrópu samþykkti
fyrir skemmstu að
ffumkvæði Péturs
H. Blöndal, alþing-
ismanns og for-
manns íslands-
deildar ÖSE, að
skipa nefnd sem
hefði eftirlit með fjármál-
um ÖSE. Þessi hugmynd
Péturs var samþykkt ein-
róma á ársfundi ÖSE-
þingsins í Edinborg og
hefur nefndin nú hafið
störf. í skýrslu íslandsdeild-
arinnar sem hefur verið
lögð fram á Alþingi kemur
fram aö miklar vonir séu
bundnar við að þingmenn
geti haft eftirlit með með-
ferð skattfjár hjá þessari al-
þjóðastofnun.
iSí '
Góa-Linda má ekki kalla karamelludýr sín karamelludýr að mati Samkeppnisráðs.
Móna sakaði Góu um að hafa stolið karamelludýrunum frá sér. Samkeppnisráð
klofnaði en tók ekki afstöðu til þess atriðis hjá Mónu að Góusælgætið væri verra.
Samkeppnmið klofnaOi í
karamellustríöi Góu og Mónn
stöðum. Þetta fólk vill fara á
skemmtistaði en svo vill nú til að
allir leyfa reykingar. Undarlegt er að
enginn frjálshyggjumaður hafi stig-
ið fram og vakið athygli á því að
þetta fólk hefur í raun ekkert val,
þegar kemur að því að fara á
skemmtistaði.
Einhver hinna frjálsu hyggju-
manna sagði við Svarthöfða af
þessu tilefni að líkja mætti nöldri
reyklausra á skemmtistöðum við
fólk sem fer í sund og vælir undan
því að vökna. Svarthöfða þykir nú
eðlilegra að líkja nöldurseggjunum
við þá sem mæta í sund og kvarta
undan því að fólk sé að míga í
laugina.
Nú viU svo til að í þessum skiln-
ingi hefur Svarthöfði kosið að baða
sig í þvagi og hann er ekkert annað
en þakklátur þeim sem míga í laug-
ina. Og ef fólk er háð því að míga í
laugarnar þá hefur það fullan rétt á
því og aðrir geta bara farið upp úr.
Svarthöfði
Góa-Linda má ekki kalla súkkulaðidýr með karamellubragði Kar-
amelludýrin. Samkeppnisráð kvað upp þann úrskurð í gær. Tveir
ráðsmenn bókuðu að þeim þætti ekki ástæða til að taka afstöðu
í málinu þar sem orðið Karameliudýr væri ekki einkennandi.
„Þetta heldur áffam, við áfrýj-
um,“ segir Helgi Vilhjálmsson, for-
stjóri Góu-Lindu. „Þetta eru saklaus
karamelludýr. Maður er búinn að
búa til karamellur í fjörutíu ár og nú
setjum við karamellur í mót sem líta
út eins og dýr og það má þá ekki. Við
erum búnir að kaupa mótin og dýr
verða alltaf dýr, það er ekki hægt að
kalla þau eitthvað annað. Hvað gera
þeir næst? Ætla þeir að skrásetja
malbikið og banna öðrum að nota
það?"
Gögnin ekki lesin nógu vel
Helgi segir að fulltrúar í Sam-
keppnisráði hafi ekki lesið gögnin
nógu vel. „Ég held að þessir höfð-
ingjar sem hafa lært í háskólanum
þurfi að vanda sig betur,“ segir
Helgi, sem er mjög ánægður með
dýrin sem hann selur. „Þau eru
góð eins og allt frá Góu.“
Sælgætisgerðin Móna
vann málið fyrir Sam-
keppnisráði í gær. Móna
kærði Góu-Lindu til
Samkeppnisráðs fyrir
að setja á markað kara-
melludýr sem væru
eins og karamellu-
dýrin sem Móna
hefur fr amleitt um
skeið. Hvort
tveggja er kara-
mellufyllt súkkulaði í
formi dýra. Að mati
Mónu veldur notk- ;
un Góu-Lindu á
orðinu Karamellu-
dýr ruglingshættu m
við samnefnda
vöru Mónu og
skaðar ímynd
karamelludýra
Mónu.
Móna á undan
Samkeppnis-
ráð telur óumdeilt
að Móna hafi fyrst
framleitt Karamelludýr og
verið á undan að skrásetja
vörumerki sitt, á árinu
1999, en Góa-Linda
gerði það fýrst eftir að
mál þetta hófst eða í
nóvember 2002. Sam-
keppnisráð er sammála
því að orðið Karamellu-
dýr sé lýsandi fyrir þá
vöru sem um ræðir en
um leið er það
einnig ein-
kenn-
andi fyrir vöru keppinautarins sem
var fýrri til með framleiðslu og
markaðssetningu.
Brot á lögum
Samkeppnisráð
telur að umbúðir
Góu-Lindu svipi
-i til umbúða Kara-
, iMifebL, ■ mellu- og Sirkus-
dýranna frá
Mónu og að þar
sem varan sé
seld í lausu er
ekki hægt að
greina aðra frá
hinni. Neytendur
muni því í flestum
tilvikum halda
að um sömu
Þetta eru saklaus kar-
amelludýr. Maður er
búinn að búa til kar-
amellur í fjörutíu ár
og nú setjum við kar-
amellur í mót sem líta
út eins og dýr og það
má þá ekki.
vöru væri að ræða. „Að mati Sam-
keppnisráðs er nafngift Góu-Lindu
því til þess fallin að hafa áhrif á eftir-
spurn, til þess að villst verði á vörun-
um og gefur til kynna að um tengsl
sé að ræða á
milli fyrir-
tækjanna
k sem
'UUDYRIN'
>.,FRa °Ou
Helgi I Góu meö karamellu-
dýrin sín Ætlar ekki aö láta Sam
keppnisráð segja sér fyrir verkum
og heldur áfram meö málið
fram-
leiða
vörurn-
ar.“
Niðurstaðan
af þessu er að notkun Góu-Lindu á
orðinu Karamelludýr brjóti í bága
við samkeppnislög og að Góa-Linda
hafi með því að velja vöru sinni
sama nafh og sama útht og keppi-
nauturinn hafði áður gert brotið í
bága við góða viðskiptahætti. Ráðið
var ekki einhuga og tveir ráðsmenn,
Atli Freyr Guðmundsson og Ólafur
Bjömsson, bókuðu að þeir teldu
ekki ástæðu til að aðhafast í málinu
enda þætti þeim orðið Karamellu-
dýr ekki sérkennandi.
kgb@dv.is
Að pissa í
Frá því Svarthöfði hætti að reyk-
ja vegna ofurálagningar á tóbak hef-
ur hann lagt í vana sinn að standa
þétt að baki reykingamönnum.
Hann hefur sem sagt smokrað sér
inn í reykinn til þess að taka fríh-
endis til sín þau áhrif sem reyking-
amenn sækjast eftir. Svarthöfði er í
þessum skilningi sníkjudýr.
Yfirleitt hefur dugað að rölta inn
á næsta kaffihús þar sem reykinga-
menn sitja sveittir við að spúa út
nikótíni, brennisteinslofttegundum
og fleiru sem áður þekktist úr and-
remmu dreka. Nú hafa nokkrar
konur á hinu háa Alþingi tekið að
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþaö rosalega flnt,"segirJói Fel bakari.„Reyndar aldrei haftjafn
mikið að gera vegna þess að ég er I upptökum frá sex á morgnana til tíu
á kvöldin vegna nýrrar þáttaraðar sem sýnd verður áStöð 2 fyrir páska;
Eldsnöggt meö Jóa Fel. Ég hefekki tíma til að baka á meðan."