Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2005, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2005
Fréttir jjy
Kennitala í
miðasölu
Persónuvemd tók
ekki afstöðu til kæm
kaupanda tónleika-
miða sem taldi á sér
brotið með því að í
miðasölu var hann kraflnn
um kennitölu jafnvel þótt
hann greiddi með reiðufé.
Miðasölufyrirtækið sagðist
hafa tekið niður kennitölur
tónleikagesta til hagræðis, til
dæmis ef miðar glötuðust
eða ef tónleikum væri aflýst.
Þar sem kaupandanum og
fyrirtækinu bar ekki saman
um það hvort honum hafi
verið boðið að sleppa því að
upplýsa kennitöluna telur
Persónuvemd sig ekki geta
tekið afstöðu til þess hvort
lög hafi verið brotin.
Sló mann með
bjórflösku
Héraðsdómur Reykja-
ness dæmdi í gær Kristin
Hólm Rúnarsson í fjög-
urra mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að
hafa aðfaranótt laugar-
dagsins 2. ágúst 2003,
slegið ungan mann með
bjórflösku í andlitið og
sparkað í höfuð hans,
með þeim afleiðingum
að hann bólgnaði og
marðist í andliti, hlaut á
kinnbeinsboga brot í
Ifiiðarvegg kjálkaholu og
smá brot í augnbotni
vinsta megin. Kristinn
var einnig dæmdur til að
greiða fórnarlambi sínu
192 þúsund krónur í
skaðabætur og máls-
vamarlaun.
Er illa búið að
öldmðum
hérlmdh?
Ólafur Ólafsson, fyrrverandi
landlæknir.
„Þaö er enginn vafi á þvíað
þeirsem eru algjörlega háöir
bótum standa mun verrað
vlgi hér á landi en I nágranna-
löndunum. Þaö bætir hins
vegar hag aldraöra aö at-
vinnuþáttaka sextíu og fímm
ára og eldri er mun meiri hér.
Ekki lagast það þegar skoðað-
ur er aöbúnaöur á öldrunar-
heimilum en þar er bókstaf-
lega viðhaldiö baðstofumenn-
ingu. Ég er hræddur um að
næstu kynslóðir, sem lifað
hafa í vellystingum, láti ekki
bjóða sér slíkt í framtlðinni."
Hann segir / Hún segir
„Það þarfað búa betur að
þeim bæði hvað varðar fjár-
hagslega afkomu og að einka-
lífþeirra sé tryggt inni á stofn-
unum. Mannréttindi þeirra eru
ekki virt með því að skammta
þeim vasapeninga. Aldraðir
þurfa líka að eiga val um þá
þjónustu sem þeim er boðið
upp á. Það skortir mikiö upp á
að þessir hlutir séu l lagi."
Ásta Ragnhelður Jóhannes-
dóttir alþingismaður.
Davíð Oddsson utanríkisráðherra er að byggja sér sumarhöll í Rangárþingi þangað
sem hann hyggst leita úr erli höfuðborgarinnar. Um er að ræða hundrað fermetra
steinsteypt hús, teiknað af Guðmundi Gunnlaugssyni arkitekt.
Ekki vita heimamenn hvers vegna
Davíð valdi þennan stad tilað
hyggfa sér sumarhöll en hallast
einna helst að því oð þarna eigi
hann eða eiginkona hans rætur.
í Rangárhingi
Davíð Oddsson utanríkisráðherra er langt kominn með að
byggja sér sumarhöU í landi Móeiðarhvols í Rangárþingi. Um er
að ræða hundrað fermetra reisulegt steinhús sem Davíð hefur
verið að byggja síðasta árið. Sjálfur hefur hann þó ekki verið
þarna í byggingarvinnu heldur látið verktaka um verkið.
fullburða
steinhús
sem teiknað
er af Guðmundi
Gunnlaugssyni
arkitekt.
Sumarhöll Davíðs stendur rétt
við þjóðveg eitt þegar komið er yfir
Eystri-Rangá og beygt til suður mót
sjó. Á sömu slóðum, fyrir ofan þjóð-
veginn, stendur hins vegar hið
landsfræga Hótel Eystri-Rangá sem
margir kannast við. Sumarhöll Dav-
íðs stendur ekki í hefðbundnu
sumarhúsalandi, heldur eitt sér í
víðáttunni á miklu flatíendi. Ekki
vita heimamenn hvers vegna Davíð
valdi þennan stað til að byggja sér
sumarhöll en hallast einna helst að
því að þarna eigi hann eða eigin-
kona hans rætur. Hvaða rætur vita
menn ekki en hitt vita þeir að
enginn myndi byggja sér þarna
sumarhús að ástæðulausu.
Stutt í lax
Sumarhöll Davíðs verður heils-
árshús og ekki að efa að fyrrverandi
forsætisráðherra landsins hyggist
leita þangað sér til hvíldar og hress-
ingar eftir erilsama daga í höfuð-
borginni. Stutt er að fara í eina
bestu laxveiðiá landsins og álíka j
langt í Hótel Eystri-Rangá þar
sem er framúrskarandi veitinga-
staður og stöðugt rennerí af
skemmtilegu fólki. Þá er ágætur
golfvöllur í túnfætínum hjá Davíð
og hestamennska á heimsmæli-
kvarða stunduð á nær því hverj-
um bæ.
Sem fyrr greinir er sumarhöll
Davíð ekki hefðbundið
sumarhús eins og algeng
eru hér á landi, heldur
idið J
A
Davíð Oddsson Ný-
lega búinn að byggja
sér einbýlishús /
Skerjafirði þegar hann
Sumarsæla Davíðs Sumarið I
Fimmtánfaldur glæpamaöur játar
líkamsárás á gamlársdag
Tíu mánuðir fyrir kjálkabrot
Þorbjöm Haukur Liljarsson, 32
ára Kópavogsbúi, hefur verið
dæmdur í tíu mánaða fangelsi fyrir
að kjálkabrjóta sér sex árum eldri
konu.
Þorbjörn réðst á konuna að
morgni gamlársdags fyrir rúmu
ári. Hann sló konuna í höfuðið
og misþyrmdi á annan hátt
þannig að hún kjálka
brotnaði og bólgnaði
og marðist á öxl og í
andfití.
Héraðsdómur
Reykjaness tók fleiri
ákæmr á hendur
Þorbirni fyrir
samhliða lík-
amsárásarmál-
inu. Meðal
þeirra afbrota
var innbrot í
einbýfishús þar sem hann stal geisla-
spilara og eintaki af kvikmyndinni
The Hulk. Einnig stal hann sjónvarpi
og kvikmyndatökuvél úr bíl.
Þorbjörn játaði allar sakargiftir.
Áður en hinn óskilorðsbundni tíu
mánaða fangelsisdómur var kveð-
inn upp í gær hafði hann hlotið
tíu refsidóma, þar af fjóra
fyrir líkamsmeiðingar. Að
öðm leyti hefur Þorbjörn
helst einbeitt sér að þjófn-
uðum og fikniefnabrot-
um.
Héraðsdómur Reykjaness Þor-
björn Haukur Liljarsson staldiski
með Hulk og kjúlkabraut konu.
Þor-
björn á að
greiða fórn-
arlambi
sínu 200 þúsund
krónur í bæt-
ur auk sakar-
kostnaðar.
Karl Benediktsson mætir fyrir dómara
Framsýnarstjóri í Hæstarétti
Mál ákæmvaldsins gegn Karfi
Benediktssyni, rúmlega sjötugum
fyrrverandi framkvæmdastjóra Líf-
eyrissjóðsins Framsýnar, var tekið
fyrir hjá Hæstarétti í gær. Karl var í
apríl dæmdur í 10 mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir misferli í fram-
kvæmdastjórastarfinu. Ríkislög-
reglustjóri ákærði Karl fyrir að hafa
lánað sjálfum sér og syni sínum sam-
tals 95 milljónir króna úr sjóðum
Framsýnar án þess að hafa til þess
heimild. Hann var sakfelldur fyrir öll
lánin nema eitt skuldabréfalán upp á
4 milljónir króna. Hæstu upphæð-
imar vom vegna jarðarinnar Ingólfs-
hvols í Ölfúsi og vegna stórhýsis á
Hverfisgötu, hvom tveggja í eigu
sonar Karls. Héraðsdómur Reykja-
víkur sagði að við ákvörðun refsing-
arinnar væri til þess að líta að Karl
hafi gegnt trúnaðarstöðu fyrir Fram-
sýn: „Honum var fafin rík ábyrgð við
Karl Benediktsson Karlmeð verjanda
slnum Sveini Andra Sveinssyni. Þeir áfrýj-
uðu héraðsdómi þessa fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Ufeyrissjóðsins Framsýnar.
fjárfestingar fyrir hönd fi'feyrissjóðs-
ins fýrir umtalsverðar fjárhæðir."
Karl Benediktsson hefur sjálfur
stefnt Framsýn vegna rúmlega 10
milljónir króna sem ógreiddar em af
starfslokasamningi hans.