Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2005, Side 11
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2005 11
Líkamsárás
á þorrablóti
Ein líkamsárás var kærð
til lögreglunnar á ísafirði
um helgina. Um er að ræða
árás á dyravörð sem var við
störf á þorrablóti á Suður-
eyri aðfaranótt sunnudags-
ins. Sá sem réðst á dyra-
vörðinn mun hafa verið
undir áhrifum áfengis.
Áverkar dyravarðarins
munu þó ekki hafa verið
mjög miklir. Málið er tii
rannsóknar. Að öðru leyti
var helgin róleg fyrir
vestan.
Skip brann í
Sandgerði
í fyrrakvöld kviknaði í
skipi við Sandgerðishöfn.
Er slökkvilið og lögregla
komu á staðinn lagði
mikinn reyk ff á Val GK-6
sem lá yst við Norður-
garð. Einnig var talsverð-
ur eldur stjómborðsmeg-
in á millidekki. Slökkvi-
starf gekk hægt þar sem
mjög erfitt var að komast
að eldinum. Slökkvistarfi
lauk kl. 02.30 en slökkvi-
liðsmenn vom á staðn-
um fr am undir morgun.
Valur GK-6 er tog- og
netabátur 169 rúmlest-
irog er hann mikið
bmnninn. Ókunnugt er
um eldsupptök.
Innbrotaalda
í Hafnarfirði
Þessi nýliðna helgi var
ansi erilsöm í umdæmi lög-
reglunnar á u, .7«.-.*---: »^«?'
Álftanesi, í
Garöaha-og L-yt L-'aÍ' ■■
Hafnarfiröi.
TLÍkvTint var
um innhrol
f þrjú íbúð- HBESaBHEaBI
arhús, tvö í Haftiarfirði, en í
öðm þeirra var stolið far-
símum og myndavélum, og
eitt í Garðabæ. Þá var
einnig brotist inn í leikskóla
í Hafnarfirði og stolið tölvu-
búnaði. Þá var tilkynnt um
að farið hefði verið inn í
þrjár bifreiðar í Hafnarfirði
og úr tveimur þeirra var
stolið hljómflutningstækj-
um. Þessi mál em öll í
rannsókn. Þá komu fjögur
minniháttar fíkniefnamál til
kasta lögreglunnar þessa
helgi. f þeim vom haldlögð
meint fíkniefni, hass, am-
fetamín og kókaín.
Treystu sér
ekki í könnun
Félagsvísindastofnun
Háskóla íslands hefur ekki
treyst sér til að
gera könnun fyrir
Fjármálaráðu-
neytið um úttekt á
áhrifum launa-
kerfis á launamun
karla og kvenna.
Geir H. Haarde
fjármálaráðherra
svaraði í gær fyrirspurn Jó-
hönnu Sigurðardóttur um
þessi mál sem áttu að vera
til að minnka launamun
kynjanna. Geir segir að
undirbúningur og innleið-
ing nýrra kerfa hafi dregist
og ekki tekist að halda
tímaáætlun. Ný áætlun
gerir ráð fyrir að nýja
launa- og starfsmannakerf-
ið komist í gagnið í ár.
Baldur Freyr Telur
myndbandiö sýna
aðhann hafidtt
skilið vægari dóm.
Myndband sem sýnir árás sem leiddi til dauða Magnúsar Freys Sveinbjörnssonar
i Hafnarstræti vorið 2002 gengur á netinu. Baldur Freyr Einarsson segir mynd-
bandið sýna að hann hafi ekki átt að fá svo þungan dóm. Móðir fórnarlambsins
segir að báðir gerendur hafi átt að fá miklu þyngri dóma.
Grát yfir myndunum
af dauða sonar míns
gara, fæddist sú hugmynd að ég
þyrfti að hrinda af stað auglýsinga-
herferð. Auglýsingaherferðin á að
hamra á mikilvægi þess að anda.
Slagorðið á að vera svona: „Drög-
um andann -Það er góður kostur."
Baldur Freyr Einarsson sem situr af sér sex ára fangelsisdóm
fýrir líkamsárás sem leiddi til dauða imgs manns í Hafnarstræti
vorið 2002 segir myndband sem er í umferð sýna að hann hafi
fengið of þungan dóm miðað við þann sem veitti lokahöggið.
Þorbjörg Finnbogadóttir móðir
fórnarlambsins hefði viljað að bæði
Baldur og Gunnar Friðrik Friðriks-
son sætu í fangelsi í tólf ár. „Mér
finnst náttúrlega leiðinlegt að þetta
myndband sé komið í umferð og að
fólk sé mikið að kíkja á það. Það er
vont fyrir ættingja hans,“ segir
Baldur Freyr Einarsson sem var
dæmdur í sex ára fangelsi fyrir að
verða Magnúsi Frey Sveinbjöms-
syni að bana í Hafiiarstræti aðfara-
nótt sunnudagsins 7. apríl 2002.
Myndband af þessum atburði hef-
ur nú gengið á milli manna á net-
inu.
Baldur segir hins vegar að það
sé ekki alslæmt fýrir sína aðstand-
endur að sjá þetta myndband sem
sýnir það sem náðist á öryggis-
myndavélar í Hafnarstrætinu um-
rædda nótt. „Aðstandendur mínir
hafa verið að hringja í mig, en þeir
hafa nú séð hvemig þetta var og að
ég átti alls ekki skilið að fá sex ára
dóm á meðan sá sem var dæmdur
með mér fékk þriggja ára dóm,“
segir Baldur. Gunnar Friðrik Frið-
riksson sem veitti hinum láma
lokahöggið fékk helmingi skemmri
dóm en Baldur og er nú laus úr
fangelsi. Baldur situr enn á Litla-
Hrauni. Magnús Freyr var 22 ára
þegar hann lést, nokkmm dögum
eftir árásina.
Áttu að vera inni í tólf ár
Þorbjörg Finnbogadóttir móðir
Magnúsar Freys skilur ekkert í því
að þetta myndband hafi komist í
umferð. „Þegar ég vissi að þetta
myndband væri komið í umferð
fór ég út í kirkjugarð og ég grét á
bakaleiðinni," segir hún. „Hann
Baldur er klikkaður," segir hún og
gefúr lítið fyrir sjónarmið Baldurs
um að myndbandið sýni að hann
hefði ekki átt að fá þyngri dóm en
Gunnar. „Ég hefði viljað að þeir
fengju báðir fullan, tólf ár.“ Henni
finnst ekkert réttlæti í því að Gunn-
ar Friðrik gangi laus og að Baldur
„Ég heföi víljaö aÖ
þeir fengju báðir
fullan dóm, tólfáf."
muni losna bráðum.
Þorbjörg segir mikilvægast að fá
dómsvaldið til að hugsa sinn gang
og finnst mjög slæmt að mynd-
band þetta sé í umferð. Hún sá
myndbandið í héraðsdómi. „Ég sat
beint fyrir aftan vitleysinginn hann
Baldur. Það var ekíd auðvelt að
horfa á þetta," segir hún. „Það sem
ég sá var hópárás þannig að ein-
hveijir hafa sloppið betur en þeir
áttu að gera.“
Brá að sjá myndbandið í
sjónvarpinu
„Það sést að ég gef honum spörk
en það var lokahöggið sem gerði út
af við hann. Ég fékk líka þyngri
dóm af því saksóknari sagði að ég
hefði skipað Gunnari að drepa
hann, en hann sagði ekkert um það
fyrir dómi. Þetta var spúkí mál,"
segir Baldur sem fékk að eigin mati
of þungan dóm. „Mér brá að sjá
þetta myndband í sjónvarpinu en
maður er líka hálffeginn að fólk fái
að sjá hvemig þetta var og fyrir
hvað maður var dæmdur. Það var
allt fellt út sem var mér í hag og
vitnin voru ruglingsleg." Hann seg-
ir líka að dómarar í Hæstarétti hafi
ekki tekið mark á Gunnlaugi Geirs-
syni réttarlækni.
Ætlar í lögfræði
„Sex ár eru svo harkalegur dóm-
ur, þó að ég hafi alveg átt skilið að
fá dóm fyrir líkamsárás og ég hefði
náttúrlega aldrei átt að gera þetta.
Það sér maður og er að reyna að
vinna á því. Maður ólst upp við að
þurfa að berjast fyrir sínu en það
átti ekki að fara svona."
„Maður verður að gera eins gott
úr þessari aðstöðu og maður get-
ur,“ segir Baldur. „Ég er að klára
stúdentinn núna og ætla í háskól-
a.“
Þegar Baldur er spurður hvað
hann ætli að læra, segir hann: „Ég
ætlaílögfræði."
Mynd-
bandið var
sýnt fyrir
Flæstarétti
og því eru
þetta ekki
nýjar upp-
lýsingarímál-
inu. Þar voru
dómar yfir bæði
Gunnari Friðriki
og Baldri þyngdir
verulega frá því
í héraðsdómi.
í héraði fékk
Baldur
þriggja ára
dóm og
Gunnar tvö ár1
en í Hæstarétti
fékk Gunnar
þrjú en Baldur
sex og var vís-
að til alvar-
leika málsins.
Inni í dómi
hans voru einnig tvær
aðrar líkamsárásir. Mikil'
reiði braust út í samfélag-
inu eftir dóm héraðsdóms sem
þótti mjög vægur miðað við tjónið
sem mennirnir ollu.
Fjölskyldan sem syrgir
Þorbjörg Finnbogadóttir, móðir Magn-
úsar Freys, telur að Batdur og Gunnar
hafí báöir átt aö fá tólfár.
Árásin í Hafnarstræti Á myndbandinu
sést atlaga Baldurs Freys og Gunnars Frið-
riks að Magnúsi Frey Sveinbjörnssyni, ung-
kgb@dv.is um ísfírðingi sem lést slðar á sjúkrahúsi.
Allir eru á móti nauðgunum
Sumir telja að klámvæðing
samfélagsins sé viðbragð við
auknum kvenréttindum. Þetta
finnst mér gáfuleg kenning.
Kannski er klámið bara eitt merki
þess að þróunin sé að fara í rétta
átt. Ekki ósvipað því þegar herir á
undanhaldi skilja eftir sig sviðna
jörð á flóttanum. Við erum í dag
mitt í þessu
Teitur Atlason
mælir með
auglýsingaherferð
með öndum.
undarlega landslagi þar sem mæt-
ast niðurbrot og uppbygging á
sama tíma. I þessar óreiðu gild-
anna (klám/kvenréttindi/ofbeldi)
verður veruleikinn stundum nokk-
uð skrýtinn. Ástæðan fyrir þessum
vangaveltum er sú að ég rak augun
í veggspjald frá karlahópi Femini-
stafélags íslands. Ákaflega flott
veggspjald. Það var ekki fagman-
leg hönnum veggspjaldsins sem
sló mig, heldur það sem stóð á því.
Þar var því nefnilega haldið fram
að karlmenn væru á móti nauðg-
unum (Karlmenn segja NEI við
nauðgunum). Ég varð pínulítið
móðgaður vegna þessarar stað-
hæfingar. Mér leið eins og nauð-
gara. Þetta er eig-
inlega oft sjálfsagt
til að það þurfi að
auglýsa það sér-
staklega. Þarna
sýnist mér góður
ásetningur vera
kominn út í mýri.
Auðvitað eru allir
karlmenn á móti
því að nauðga ein-
hverjum. Líka
konur ef út í það er farið. Einnig
KR-ingar, opinberir starfsmenn og
félagar í svifflugfélagi Akureyrar.
Allir eru á móti nauðgunum. Þar
sem ég stóð þarna fyrir framan
veggspjaldið og leið eins og nauð-