Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2005, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2005, Page 25
DV Menning MÁNUDAGUR 21. FEBRÚAR 2005 25 Ný verðlaunaflokkur kemur til álita á afhendingu Menningarverðlauna DV á fimmtudaginn: fræði. Hér að neðan eru birtar tilnefningar til verðlaunanna í þessum nýja flokki og elsta verðlaunaflokknum, bók- menntum. Afhending Menningarverðlauna DV verður á fimmtudag í Iðnó kl. 17 og verður útvarpað frá athöfninni á Talstöðinni. Andræði eftir Sigfús Bjartmarsson Framsetning Ijóðanna i Andræðum er frumleg og kunnugleg í senn. Þó svo að þarna sé stuðst við forna skáldskaparhætti sem atómskáidin lýstu dauð á sínum tíma og Ijóðin vísi á þekkt fyrirbæri frá fornu fari likt og öfugmæli, spakmæli - Háva- mál - þá er hér síður en svo um afturhvarf eða fortíðardekur að ræða. Sigfús hefur einfaldlega stillt taflmönnunum upp á byrjunarreiti sína og leikur hvassan og skemmtilegan stíl. Þetta er oddaflug og hin fleygmyndaða uppsetning Ijóð- anna undirstrikar hina djörfu sókn. Skáldið hefur sagt að þessi Ijóðmæli hafi orðið til nánast í fikti. Sú staðreynd dregur sist úr gildi þessarar öflugu bókar. Fortíðardraumar og Snöggir blettir eftir Sigurð Gylfa Magnús- son Bækur Sigurðar Gylfa eru tvær birtingarmyndir starfs hans undanfarinn áratug við að ryðja nýj- um straumum braut í islenskum sagnfræðirann- sóknum. Fortíðardraumar veita itarlegt yfirlit yfir margvislegar tegundir texta um sjálfið og gildi þeirra sem sögulegar heimildir i Ijósi nýrra strauma i hugvisindum. Snöggir blettir eru per- sónuleg „játningabók" um gildi persónulegra heimilda og skemmtileg tilraun til sjálfsævisögu. Lömuðu kennslukonurnar eftir Guðberg Bergsson Lömuðu kennslukohurnar er hæðin, sorgleg sjokkerandi og drepfyndin að hætti höfundar sem vílar ekki fyrir sér að hirta um leið oghann upp- fræðir. Hér erm.a. sögð saga afþjóð sem lætur fremur heillast af eftirspurn en gæðum ogþarfað gæta sín svo hún endi ekki við rúmstokk lamaðra og klúrra kennslukvenna sem á endanum draga úr henni mátt, vilja og sjálfstæða hugsun. ILöm- uðu kennslukonunum snýr Guðbergur Bergsson aftur með hvelli og bravúr, sá eilifðartáningur sem hann er; róttækur með svipu á lofti. Rigning i nóvember eftirAuði Óíafsdóttur I Rigningu i nóvember býr sjarmerandi æðruleysi sem kristallast i sterkri og lífsglaðri konu sem í framgangi sögunnar skynjar að lykill aðvel- gengni og hamingju felst i jákvæðni, bjartsýni og léttri lund. Rigning í nóvember er ekki aðeins bráðskemmtileg frásögn heldur sýnir höfundur fágætt vald á tungumálinu sem til skiptis birtist i kaldhæðni, glettni, íhygli og einlægni. Ekki spillir fyrir að höfundur kann þá kúnst að viðhalda óvissu sem lesandinn þarfsjálfur að glima við. Samkvæmisleikir eftir Braga Ólafsson Sagan hefst reyndar á sakleysislegan hátt, með afmælisveislu sem aðalpersónan, Frlðbert, blæs til á þrítugsafmæli sinu. Daginn eftir afmælið dregur hins vegar til skelfilegra tiðinda i lifi persónunnar og inn í þau átök dragast margar persónur sem mikið eða litið þekkja til Friðberts. Smátt og smátt tekur sagan á sig hrollvekjukennda mynd sem af- hjúpar siðleysi, siðblindu og ofbeldi. Stigandin i sögunni er hæg en þeim mun áhrifameiri og enda- lok sögunnar eru vægast sagt taugatrekkjandi. I magnaðri sögu sýnir Bragi Ólafsson að hann er án efa i hópi okkar bestu og færustu rithöfunda. Sólskinsfólkið eftir Steinar Braga íSólskinsfólkinu tekur Steinar Bragi viðkvæmt málefni fyrir á ögrandi hátt. Hér ríkir martraðar- kennt ástand sem á óskilgreindan hátt er bæði fagurt og Ijótt, aðlaðandi og fráhrindandi, ógn- vænlegt og heillandi. Bókin er skemmtileg og sér- kennileg blanda afraunsæi og hrollvekju og höf- undur teflir saman heimi lifenda og dauöra af kunnáttu og fagmennsku. I textanum býr óvenju- leg mystik, ný og grípandi og spennandi til þess að hugsa upp á hverju þessi frumlegi höfundur tekurnæst. Valnefnd í bókmenntum skipuðu þau Sigríður Albertsdóttir bókmenntafræð- ingur og gagnrýnandi DV sem var formaður nefndarinnar, Jakob Bjarnar Gréta- rsson blaðamaður og bókmenntafræðingur og lllugi Jökulsson útvarpsstjóri. Islenski hesturinn eftir Gísla B. Björnsson og Hjalta Jón Sveinsson I oókinni er fjallað um nær allt sem viðkemur hestinum; uppruna hans, sögu, notkun, eiginleika, liti, llfnaðarhætti og hæfileika en einnig hlutverk hans i daglegu lífi, á ferðalögum, í skáldskap auk landnáms hans erlendis. Yfir 700 Ijósmyndir eru i bókinni og til ráðgjafar við hana var miklll fjöldi sérfræðinga og fagmanna. Hjalti Jón er megin- höfundur bókarinnar en kafla um sérstök efni rita Kári Arnórsson, Sigríður Sigurðardóttir og Þorgeir Guðlaugsson. Skipulag byggðar á íslandi eftir Trausta Valsson Yfirlitsrit í fimm hlutum um megineinkenni hins manngerða umhverfis á tslandi. Leitað er til upp- hafsins til að ná fram skilningi á þvl hvaða lögmál voru að verki við mótun byggðamynstursins. Irit- inu eru 1250 kort og myndir og þar er einnig Skipulagsmannatal. Hinn sanni íslendingur; kyngervi og vald á íslandi 1900-1930 eftir Sigríði Matthíasdóttur Doktorsritgerð Sigriðar Matthíasdóttur er mikils- vert framlag tll þeirrar greinlngar á Islenskri þjóð- ernisstefnu sem fram hefur farið undanfarin ár. Hún sýnir með itarlegum og traustum rannsókn- um hvernlg hugmyndir manna um réttindi og samfélagslegt hlutverk kvenna snerust frá frjáls- lyndi til ihaldssemi i beinu samhengi viö þjóðern- isstefnuna. Ræða Rauðsmýrarmaddömunnar er komin i fræðilegt samhengi. Tjörnesbrotabeltið. Könnun brotabelta og jarðhitasvæða á hafsbotni fyrir norðan larid. Verk- efnisstjóri: Bryndis Brandsdóttir Mikill alþjóðlegur áhugi er á grunnrannsóknum á jarðfræði og lifriki úthafshryggja og hefur flókin uppbygging islenska landgrunnsins, einkanlega þarsem gosbeltin tengjast úthafshryggnum, verið jarðfræöingum hugleikin. Rannsóknin á Tjörnes- brotabeltinu hófst 2001 og enn er verið að vinna úr henni. Valnefnd í flokki fræða var skipuð þeim Ragnheiði Gyðu Jónsdóttur dagskrár- gerðarmanni sem varformaður nefndarinnar, Viðari Hreinssyni rithöfundi og Hafliða Pétri Gíslasyni eðlisfræðingi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.