Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2005, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 18. MARS 2005
Fréttir DV
Líkamsárás á
Kaffi Austur-
stræti
Borgþór Gústafsson var í
gær dæmdur í þriggja mán-
aða fangelsi og gert að greiða
tæpar 300 þúsund krónur í
skaðabætur vegna líkams-
árásar. Borgþór veittist að
manni á veitingastaðnum
Kaffi Austurstræti, togaði
hann af stól sem hann sat á
og sparkaði undan honum
fótunum svo að hann féll í
gólfið og ökklabrotnaði.
Borgþór á nokkuð langan
sakaferil að baki, allt frá ár-
inu 1983 og hefur verið
dæmdur 29 sinnum fyrir
brot á umferðarlögum um
ölvunar- og réttindaleysis-
akstur.
Kona í nýjan
skólastjórastól
Jónína Ágústsdóttir hef-
ur verið ráðinn skólastjóri
við nýjan barnaskóla í
Reykjanesbæ sem hlotið
hefur nafnið Akurskóli.
Jónína hefur lokið B.Ed,-
námi við Kennaraháskóla
íslands með stærðfræði og
líffræði sem kjörsvið og
Dipl. Ed. í stjómun
menntastofnana við
sama skóla eins og
greint er frá á reykja-
nesbaer.is. Nýi skóla-
stjórinn var valinn úr
hópi umsækjenda um
starfið og mun Jónína hefja
störf 1. apríl næstkomandi.
Skólinn verður formlega
opnaður í haust.
Handtakan á
ítalanum
Sigurður Kári Kristjánsson,
þingmaöur Sjálfstæðisflokksins.
„Ég hefbara þá skoðun á mál-
inu að þarna hafí augljóslega
átt sér stað einhver mistök.
Þaö gengur auðvitaö ekki að
saklausir menn fái á sig Vík-
ingasveitina fyrir engar sakir.
Það hefði nú örugglega nægt
að spyrja hann út íhvað hann
væri aö gera þarna.“
Hann segir / Hún segir
„Mér finnst allt I lagi að út-
lendingar komi hingað og dá-
ist að íslenskum arkitektúr og
taki hann út og þá llka til að
gagnrýna þau arkitektúrslys
sem til staöar eru I borginni.
Þetta sýnir okkur hvert þessi
spuni um strlð gegn hryðju-
verkum getur leitt okkur."
Kolbrún Halldórsdóttir,
þingmaöur vinstri grænna.
í yfirlýsingu frá Ástþóri Magnússyni segist hann hafa reynt að „afvopna“ Gunnar
V. Andrésson ljósmyndara DV í héraðsdómi. Þar var tekið fyrir mál gegn Ástþóri
þar sem fjöldi vitna sá hann mölbrjóta myndavél ritstjóra Iceland Express á
Glaumbar í september.
Verjandi Ástþórs
reyndi að róa hann
og koma fyrir
hann vitinu og
eftirsmá
æsmg /
náði í
hann
þvL" w. -
Ástþór og Verjandinn
Hilmar Ingimundarson,
verjahdi Ástþórs, reyndi
að róa Ástþór niður.
Astþór kærip Ijosmyndara
sem hann reyndl að „aivonna"
Ástþór Magnússon- forsetaframbjóðandi veittist að Gunnari V.
Andréssyni, Ijósmyndara DV og Fréttablaðsins, í gær og reyndi að
ná af honum myndavél hans eftir að Gunnar hafði tekið myndir af
Ástþóri þegar hann gekk úr dómssal í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Ástþór hefur kært Gunnar til lögreglu fyrir líkamsárás.
Ástþór var í héraðsdómi vegna
ásakana um að hann hefði gjöreyði-
lagt stafræna myndavél í eigu flug-
blaðs Iceland Express á skemmti-
staðnum Glaumbar í september síð-
astliðnum. í dómnum í gær veittist
Ástþór aftur að ljósmyndara og
reyndi að „afvopna hann“, sam-
kvæmt yfirlýsingu sem hann hefur
sent frá sér. Ástþór segir að ljós-
myndarinn hafi „veist að sér með
myndavél".
Verjandi Ástþórs róaði hann
Gunnar segist hafa heilsað Ást-
þóri þegar hann kom í héraðsdóm
enda séu þeir Ástþór gamlir kump-
ánar. „Ástþór hefur til dæmis
hringt í mig og beðið mig að koma
og taka myndir af sér í jólasveina-
búningi í héraðsdómi,“ bætir hann
við.
Að sögn Gunnárs spurði Ástþór í
gær hvort hann hygðist taka myndir
af sér og játti Gunnar því. Þá hafi
Ástþór staðið upp og gengið inn í
dómssalinn.
„Þegar Ástþór kom út úr dóms-
salnum og sá að ég var með
myndavélina veittist hann um leið
að mér og reyndi að ná myndavél-
inni af mér. Mér brá auðvitað við
þetta og skaut vélinni aftur fyrir
bak svo Ástþór næði ekki til henn-
ar. Ég hélt á vélinni með vinstri
hendinni og með hægri hendinni
hélt ég Ástþóri frá mér. Verjandi
Ástþórs reyndi að róa hann og
koma fyrir hann vitinu og eftir smá
æsing náði hann því.“
Ástþór í órétti
Gunnar segir að hann sé í fullum
rétti til að taka myndir í héraðsdómi og
Ástþóri hafi verið fullkomlega óheimilt
að ráðast að honum og reyna að taka af
honum myndavélina. Þetta tekur
Hilmar Ingimundarson hæstaréttar-
lögmaður og verjandi Ástþórs undir.
„Ég held að Ástþór sé nú ekki í rétti
þama. Réttast hefði verið fyrir Ástþór
að reyna að fá lögbann á birtingu
myndanna sem ljósmyndari DV tók ef
hann var mótfallinn birtíngu þeirra."
„Ég gekk þarna á milU og reyndi
að róa menn niður," segir Hilmar
um átökin í héraðsdómi. Hann segir
skjólstæðing sinn langþreyttan á því
sem Ástþór kallar einelti DV í sinn
garð, en blaðið hefur fjallað um
nokkur tilfelli þar sem lögregla hefur
haft afskipti af honum. Hilmar segir
Ástþór vilja láta reyna á hvort ljós-
myndun í héraðsdómi sé lögleg.
Tjáir sig ekki
Ástþór vildi ekki tjá sig um málið
við DV en í fréttatillcynningu sem
hann sendi ritstjórn blaðsins lýsir
hann atburðarásinni orðrétt á eftir-
farandi hátt: „Ljósmyndari DV veitt-
ist að Ástþóri með myndavél þrátt
fyrir að hafa verið beðinn um að taka
ekki myndir. Ástþór reyndi að af-
vopna ljósmyndarann með því að
grípa til myndavélarinnar en ljós-
myndarinn skaut þá vélinni bakvið
sig og réðist að Ástþóri, reif í föt
hans, snéri uppá og hélt honum
þannig nokkra stund eða þar til fyrir
tilstilli Hilmars Ingimundarsonar
hæstaréttarlögmanns að ljósmynd-
arinn lét af líkamstakinu."
Gunnar V. Andrésson Ijósmynd-
ari gefur ekki mikið út á yfirlýsingar
Ástþórs um atburðina í héraðsdómi í
gær. „Ef hlutunum hefur einhvern
tímann verið snúið á haus þá er það
í þessari lýsingu Ástþórs," segir
hann.
andri@dv.is
Tímamót í íslenskri fjölmiðlasögu . . . ,
Jónas aftur á DV sveitabæ
Jónas Kristjánsson hefúr verið ráð-
inn ritstjóri DV og mun hann starfa við
hlið Mikaels Torfasonar, sem einn
hefur ritstýrt blaðinu að undanfömu. Er
hér um mikinn happafeng að ræða fyrir
blaðið, sem verið hefur í stórsókn og
blæs nú til enn frekari sóknar inn á ís-
lenskan fjölmiðlamarkað með ráðningu
Jónasar.
„Ég hlakka mikið til," segir Jónas
Kristjánsson, sem kemur til starfa á rit-
stjóm DV eftír mánuð. „DV er sú tegund
af blaði sem hentar íslenskum blaðales-
endum í dag og þar er núna verið að
gera mjög marga skemmtilega hlutí.
Maður getur ekki annað en hlakkað til.“
Fáir menn hafa sett jafn sterkan svip
á íslenska fjölmiðlun á undanfömum
áratugum og Jónas Kristjánsson. Hann
var ráðinn ritstjóri Vísis 1968 og gegndi
þeirri stöðu í sjö ár. Þá stofriaði hann
Dagblaðið ásamt Sveini Eyjólfssyni og
fleirum og ritstýrði því til ársins 1981
þegar blaðið var sameinað Vísi undir
nafninu DV. Því blaði ritstýrði Jónas svo
fram til ársins 2001 þegar nýir eigendur
komu þar að. Þá var Jónas um skeið rit-
stjóri Fréttablaðsins á fyrstu mánuðum
þess og hefur síðan ritstýrt Eiðfaxa,
tímarití hestamanna.
„Þetta er gamall draumm sem er að
rætast. Ég get ekki annað en hlakkað til
líka," segir Mikael Torfason, ritstjóri
DV, um ráðningu Jónasar.
Tilkynnt var um innbrot í
íbúðarhús á sveitabænum
Sveinatungu í Norðurárdal.
Að sögn lögreglunn-
ar í Borgarnesi
var litlu
stolið. Ein-
hverjar
skemmdir
urðu við
innbrotið,
m.a. á glugga sem
spenntur var upp, auk þess
sem eitthvað var rótað til inni
í íbúðarhúsinu. Innbrotið átti
sér stað annað hvort á mánu-
dag eða þriðjudag, að sögn
lögreglunnar. Ábúendur voru
ekki heima þá daga. Lögregl-
an vinnur að rannsókn og
segist ekki hafa neinar hald-
bærar vísbendingar.